Fréttablaðið - 22.12.2010, Blaðsíða 8
8 22. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR
1. Hvaða tónlistarmaður hefur
verið ráðinn verkefnastjóri tón-
listarviðburða í tónlistarhúsinu
Hörpu?
2. Í hvaða bæjarfélagi höfuð-
borgarsvæðisins munu íbúar
yfir 67 ára aldri fá áfram frítt
í strætó?
3. Hvaða íslenska hljómsveit er
á leið í tónleikaferð um Japan?
SVÖR:
1. Arngrímur Fannar Haraldsson.
2. Hafnarfirði. 3. Mezzoforte.
STJÓRNLAGAÞING Þrír hafa sent inn
kærur til Hæstaréttar og krafist
ógildingar á kosningunni til stjórn-
lagaþings fyrir tæpum mánuði.
Tveir kærendanna eru kjósendur
en einn frambjóðandi.
Kæruefnin snúa að framkvæmd
kosninganna, aðbúnaði á kjörstað,
meðferð kjörseðla og talningu, en
einnig því að meirihluti kjörinna
fulltrúa hafi ekki náð tilskildum
lágmarksfjölda atkvæða og séu
því ekki réttkjörnir.
Hæstiréttur hefur tilkynnt bæði
Ástráði Haraldssyni, formanni
landskjörstjórnar, og Ögmundi
Jónassyni dómsmálaráðherra
um kærurnar og óskað eftir rök-
studdri greinargerð frá þeim um
kæruatriðin. Svörin eiga að berast
Hæstarétti fyrir klukkan fjögur í
dag. stigur@frettabladid.is
Skilrúm og kjörkassar úr
pappa á meðal kæruatriða
Tveir kjósendur og einn frambjóðandi til stjórnlagaþings hafa kært kosninguna. Þeir telja pott víða brot-
inn í framkvæmdinni. Formaður landskjörstjórnar og dómsmálaráðherra skila viðbrögðum sínum í dag.
Kærandi í Neskaupstað krefst
ógildingar kosninganna af fimm
ástæðum:
1. Kjörseðlar hafi verið númeraðir
og auk þess með strikamerki.
„Ofangreindur ágalli er brot gegn
skráðum og óskráðum meginregl-
um um að kosningar skulu vera
leynilegar,“ segir í kærunni.
2. Að ekki hafi verið notaðir
hefðbundnir kjörklefar heldur
pappaskilrúm. „Útilokað er annað
en að kjósendur geti hafa kíkt
á kjörseðil næsta kjósanda, t.d.
þegar þeir standa upp við hliðina
á öðrum sem eru að fylla út seðil,
eða ganga fyrir aftan hann og
horfa yfir öxl hans.“
3. Ekki hafi verið hægt að skipta
um kjördeild eins og venja er í
kosningum.
4. Pappakassar hafi verið notaðir
í stað hefðbundinna kjörkassa.
Kjörkassar skuli vera læsanlegir
og þannig frágengnir að ekki sé
hægt að ná seðli upp úr þeim án
þess að opna þá. Svo hafi ekki
verið í þessum kosningum.
5. Ekki hafi mátt brjóta kjörseðilinn
saman. Samkvæmt lögum um
kosningar til Alþingis skuli hins
vegar brjóta kjörseðla saman til
að tryggja leynd kosninganna.
Kærandi í Borgarbyggð krefst
ógildingar með vísan til sömu
atriða og nefnd eru í liðum eitt,
tvö og fimm hér að ofan. Þá kærir
hann útgáfu kjörbréfa til fjórtán
þingmanna af 25, þar sem þeir hafi
ekki náð tilskildum sætishlut eða
lágmarksfjölda atkvæða. Þeir geti
því ekki talist réttkjörnir þingmenn.
Loks kærir frambjóðandi úr
Reykjavík með þeim rökum að
frambjóðendum hefði átt að vera
leyft að hafa fulltrúa sinn viðstadd-
an talningu atkvæða eins og tíðkist
í öllum kosningum. Svo hafi ekki
verið og í því ljósi þurfi að endur-
telja atkvæðin í höndunum.
Fjölmörg kæruatriði
PAPPI „Kjörklefarnir“ voru aðskildir með skilrúmum úr pappa. Það eru ekki allir alls
kostar sáttir við. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
STÓR
HUMAR
Ekta
Þorláksmessuskata
799 kr./kg.22. des.
Innbakaður Humar
Skelflettur Humar
Súpuhumar
Humarsoð frá
stjörnukokkinum
Jóni Sölva
SAMGÖNGUR Jóni Gnarr borgar-
stjóra þykir óeðlilegt að herflug
og björgunarflug sé skilgreint í
sama hóp varðandi lendingarleyfi
hernaðarflugvéla á Reykjavíkur-
flugvelli.
„Þarna er um gjörólíka hluti að
ræða. Þetta þarf að vera skýrt í
lögum,“ segir Jón. „Þessi áskorun
er tilmæli frá borgarráði, sem lýsa
vilja okkar. Við leggjumst að sjálf-
sögðu ekki gegn því að flugvélar
og þyrlur í björgunarflugi lendi á
Reykjavíkurflugvelli þegar þörf
er á.“
Borgarráð skoraði einróma á
utanríkisráðuneyti og flugmála-
yfirvöld að beita sér fyrir því að
umferð herflugvéla um Reykjavík-
urflugvöll verði stöðvuð. Verði til-
lagan samþykkt þýðir það meðal
annars að björgunarþyrlur danska
hersins fengju ekki lendingarleyfi
á vellinum. Þjóðhöfðingjar sem
fljúga í herfylgd fengju heldur
ekki leyfi til lendingar á Reykja-
víkurflugvelli.
„Ef þjóðhöfðingi þarf að koma
til Íslands og vill koma í herflug-
vél, þá getur hann lent á Keflavík-
urflugvelli, keyrt þaðan til Reykja-
víkur og í leiðinni séð meira af
okkar fallega landi og stórbrot-
inni náttúru Suðurnesja,“ segir Jón
spurður um það tiltekna mál.
„Reykjavíkurflugvöllur á að
þjóna innanlandsflugi og það eru
engar ástæður sem kalla á að her-
flugvélar lendi í Reykjavík, frekar
en á alþjóðaflugvellinum í Kefla-
vík, þar sem menn eru kannski
betur í stakk búnir að bregðast við
ef eitthvað fer úrskeiðis.“ Þá seg-
ist Jón persónulega ekki hafa neitt
umburðarlyndi gagnvart hernaðar-
umsvifum. - sv
Ekkert umburðarlyndi gagnvart hernaðarumsvifum:
Telur herflug og björg-
unarflug ekki það sama
JÓN GNARR Borgarstjóri segir að ef
þjóðhöfðingjar þurfi að sækja Ísland
heim í herflugvélum geti þeir lent í
Keflavík. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
DÓMSMÁL Hæstiréttur Íslands
hefur þyngt refsingu manns sem
dæmdur er fyrir nauðgun í tveggja
ára fangelsi. Héraðsdómur Norð-
urlands eystra hafði áður dæmt
manninn í eins og hálfs árs fang-
elsi. Hann var jafnframt dæmdur
til að greiða konunni 800 þúsund
krónur í bætur.
Maðurinn var sakfelldur fyrir
kynferðisbrot með því að hafa haft
samræði við konu og notfært sér að
hún gat ekki spornað við verknaðin-
um sökum ölvunar og svefndrunga.
Systir konunnar kom að manninum
hafa samfarir við hana þegar hún
lá ölvunarsvefni í sófa á heimili
þeirra. Maðurinn neitaði sök.
Fimm dómarar dæmdu málið og
skilaði einn þeirra sératkvæði. Ólaf-
ur Börkur Þorvaldsson hæstarétt-
ardómari sagði í sératkvæði sínu
að þótt miðað hafi verið við að sjón-
arvotturinn hafi séð manninn, sem
hún hafi vantreyst mjög, í rökkvaðri
stofu viðhafa samfarahreyfingar við
systur sína, þar sem hún hafi legið
ölvuð í sófa verði við sönnunarmat
í sakamáli að hafa í huga þau atriði
sem séu ákærða í hag. Ákæruvaldinu
hafi ekki tekist að sanna sekt manns-
ins og því beri að sýkna hann. - jss
HÆSTIRÉTTUR Þyngdi dóm yfir manni
um hálft ár.
Hæstiréttur þyngir refsingu vegna nauðgunar en einn dómari vildi sýkna:
Tvö ár í fangelsi fyrir nauðgun
UTANRÍKISMÁL Engilbert Guð-
mundsson hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Þróunarsam-
vinnustofnunar Íslands. Hann
mun hefja störf 1. mars næstkom-
andi.
Engilbert tekur við af Sighvati
Björgvinssyni, sem hefur verið
framkvæmdastjóri frá árinu
2001 og lætur af störfum um
áramótin. Þórdís Sigurðardótt-
ir, skrifstofustjóri og staðgeng-
ill framkvæmdastjórans, mun
gegna embættinu þar til Engilbert
kemur til starfa.
Engilbert hefur starfað við
þróunarmál í 25 ár. Hann hefur
starfað fyrir dönsku þróunar-
samvinnustofnunina og Norræna
þróunarsjóðinn. Þá hefur hann
starfað hjá Alþjóðabankanum og
er deildarstjóri hjá friðargæslu
Sameinuðu þjóðanna í Síerra
Leóne. - þeb
Þróunarsamvinnustofnun:
Engilbert fær
starf fram-
kvæmdastjóra
Svipað veitt milli ára
Heimsaflinn var tæpar níutíu milljónir
tonna árið 2008 og dróst saman um
158 þúsund tonn frá árinu 2007.
Kyrrahafið gaf mestan afla og stærsta
einstaka fisktegundin var Perúansj-
ósa. Kínverjar veiddu mest allra þjóða
árið 2008 en Íslendingar voru í 18.
sæti heimslistans.
SJÁVARÚTVEGUR
BAGDAD, AP Stjórnvöld í Írak hafa
komið sér saman um að hin nýja
ríkisstjórn landsins skuli leidd af
Nouri al-Maliki forsætisráðherra
sjía-múslima. Með því er verið að
binda enda á níu mánaða pólítíska
baráttu sem ógnaði stöðugleika í
landinu.
Auk Nouri al-Maliki mynda 29
ráðherrar hina nýju ríkisstjórn
landsins. Í henni munu sitja full-
trúar sjía, súnnía og Kúrda.
Kosningar voru haldnar í Írak
þann 7. mars síðastliðinn.
- sv
Ríkisstjórn mynduð í Írak:
Fulltrúar allra
hópa í stjórn
VEISTU SVARIÐ?