Fréttablaðið - 22.12.2010, Qupperneq 34
34 22. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR
AF NETINU
Hrokafullir og þjást af
minnimáttarkennd
WikiLeaks skjölin opinbera hroka-
fulla menn sem þjást af minni-
máttarkennd eins og flestallir
stríðsherrar mannkynssögunnar.
Þeir girnast land, vald, fé og frama
i sögubókum. Þrá að vera skrá-
settir sem mikilmenni. Hvernig
tekst þeim þetta?
Þeir áforma og eru hvattir af
öðrum körlum í öðrum löndum
til að skríða til skarar eins og
WikiLeaks sýnir dæmi um. Treyst-
um aldrei þessum körlum, felum
þeim aldrei veg okkar. Höfnum
þeim umsvifalaust. Treystum ekki
Bush, ekki Blair, ekki Cameron,
ekki Obama, ekki Rasmussen
eða Reinfeld, ekki Hu Jintao, ekki
Berlusconi, Sarkozy eða hvað sem
þeir heita. Stríð er aldrei svarið,
ekki kúgun, ofbeldi, nauðgun,
dauði. Allir vita svarið en flestir
láta telja sér trú um annað. Þar
liggja mistökin.
Mér er sagt að ég sé með
óra en ég er ekki einn um það.
Meginmálið er að taka afstöðu
og standa við hana: að friðvæða
jörðina. Hunsum stríðsherranna,
mætum ekki á vígvöllinn!
Hættum að kjósa þá. Veljum
alltaf frið fram yfir stríð. Auðvitað
lendum við linnulaust í flóknum
siðaklemmum og eigum eftir að
kveljast yfir valkostum, en það er
til mælikvarði.
Viðmiðið er uppbygging lífs
andspænis eyðileggingu og
dauða. Allt lendir á þessum skala
lífs og dauða og við þurfum
iðulega að standa lífsmegin and-
spænis dauðanum.
Smugan.is
Gunnar Hersveinn
Að fara í skóla eftir 38 ára hlé er bara algjört átak. Ég
ákvað að fara í nám af því að ég
var með skerta starfsorku. Eina
vikuna sem ég var veik heima
vegna slyssins sem ég varð fyrir
þá tók ég þessa ákvörðun. Ég
hef öðlast meira sjálfstraust og
ekki lengur í þeim gír að segja
að ég geti þetta ekki. Það er
ekki í boði.“ (Kvenkyns nemandi
Menntastoða haustið 2010.)
Það eru ekki síst sólskinssögur
sem þessar sem hvetja okkur hjá
Miðstöð símenntunar á Suður-
nesjum (MSS) til að halda áfram
á þeirri braut sem við höfum
verið að feta síðastliðin ár. Þeim
sem sækja þjónustu okkar hefur
fjölgað jafnt og þétt og eru for-
réttindi að fylgjast með einstakl-
ingum stíga mikilvæg skref inn í
nýja framtíð. Við lifum á tímum
breytinga þar sem krafist er að
fólk takist á við ákveðið þróunar-
ferli í lífi sínu og á sem flestum
sviðum þess. Hér í eina tíð þótti
ekkert óeðlilegt að fólk væri á
sama vinnustað við sömu vinnu
alla starfsævina.
Í dag þykir aftur á móti eðli-
legt að fólk tileinki sér ákveðna
starfsþróun innan sama vinnu-
staðarins eða skipti um starf eða
jafnvel starfssvið á nokkurra
ára fresti. Samkeppnisforskot
fyrirtækja byggist oft á því að
starfsfólk tileinki sér ákveðinn
sveigjanleika og staðni ekki á
einu sviði. Starfsþróun innan
fyrirtækja krefst þess að starfs-
fólk sé virkt í að afla sér þekk-
ingar, auki færni sína jafnt og
þétt og sé meðvitað um hvað
skiptir máli þegar kemur að sí-
og endurmenntun.
Það er staðreynd að einstakl-
ingar með stutta skólagöngu
eru yfirleitt í mestri hættu á að
missa störf sín á tímum breyt-
inga eins og samfélag okkar
gengur í gegnum þessi misserin.
Því er spurt hér: Hvernig getum
við mætt þessum hópi?
Fólk með litla eða enga form-
lega menntun á mismunandi
skólagöngu að baki en oft er
um einstaklinga að ræða sem
eiga sína drauma um nám, betri
störf eða annað sem gæti aukið
lífsgæðin. Hindranir af ýmsum
toga hafa þó orðið þess vald-
andi að ekki hefur verið sest á
skólabekk, farið á námskeið eða
annað sem gæti gert draumana
að veruleika. Þá er algengt að
einstaklingar séu ómeðvitaðir
um eigin færni og áhugasvið og
hvernig þessir þættir gætu nýst
þeim bæði hvað varðar nám og
störf og ekki síður í tengslum
við persónulegan þroska. Þarna
getur náms- og starfsráðgjafi
gripið inn í ferlið og aðstoðað
einstaklinga við að bæta stöðu
sína í tengslum við nám, störf
eða persónulega þroska.
Þetta er hægt að gera með
margvíslegum hætti, eins og
upplýsingagjöf varðandi nám
og störf, upplýsingum um styttri
námskeið, leiðum til starfsþró-
unar í núverandi starfi, setningu
markmiða, áhugasviðsgreiningu
og aðstoð vegna annarra per-
sónulegra mála.
Veldu framtíð þína!
Fólk er í auknum mæli að átta
sig á að sí- og endurmenntun
eru nauðsynlegir þættir í starfs-
þróun einstaklinga til að mæta
þeim breytingum sem eiga sér
stað í atvinnulífinu. Þá hafa
atvinnuleitendur nýtt sér að
bæta stöðu sína á meðan atvinnu-
leysið er jafn mikið og raun ber
vitni. Eru jafnframt meðvitaðir
um hversu mikilvægt er að skoða
hvernig nota megi tímann til
uppbyggingar og styrkja þannig
stöðu sína fyrir framtíðina.
Þegar einstaklingur tekst á við
breytingar í lífinu má líkja því
við persónulega stefnu mótun.
Þá velur einstaklingurinn sig
frá einu til að takast á við eitt-
hvað annað.
Val einstaklingsins er háð
þeirri samfélagsgerð sem við
búum við hverju sinni, innri
hvata og ekki síst stuðningi og
hvatningu annarra. Náms- og
starfsráðgjafi býður einstakl-
ingum upp á ytri hvatningu og
hjálpar hverjum og einum að
átta sig á hvaða tækifæri eru
til staðar og hvernig viðkom-
andi geti nýtt sér þau til að ná
þeim markmiðum sem stefnt er
að. Hlutverk ráðgjafans í ferlinu
gæti falist í að greina þarfir ein-
staklingsins, skilgreina úrlausn-
ir, leiðbeina við að draga fram
markmið og skilgreina leiðir að
þeim.
Flest hræðumst við breytingar
því við vitum hvað við höfum en
ekki hvað bíður okkar. Breyting-
ar eru þó eina leiðin til framfara
og gott að líta á þann ótta sem
við finnum fyrir sem ákveðinn
sviðsskrekk. Að stíga út fyrir
þægindahringinn okkar má
líkja við að stíga upp á svið og
leika eina hlutverkið sem skipt-
ir máli í lífinu ,,okkar eigið líf“.
Við eigum að stefna að því að
leika til sigurs því gæðin á lífi
okkar eru háð þeim kjarki sem
við höfum til að takast á við
ný hlutverk þrátt fyrir að í því
felist áhætta og jafnvel sársauki.
Sú áskorun er til staðar ævina
á enda og mikilvægasta leiðin
að sterkara sjálfsmati. Fyrsta
skrefið er oft það erfiðasta en
með því hefst oft ferðalag sem
einstaklinginn hefði ekki getað
órað fyrir að væri á ferða áætlun
hans.
Í dag eru starfandi náms- og
starfsráðgjafar á símenntunar-
miðstöðvum hringinn í kringum
landið, tilbúnir að veita þá þjón-
ustu sem er getið hér að ofan.
Hvað bíður þín á nýju ári?
Símenntun
Anna Lóa
Ólafsdóttir
Náms- og starfsráðgjafi
MSS
Þegar einstaklingur tekst á við breyting-
ar í lífinu má líkja því við persónulega
stefnumótun.
Tryggjum öllum börnum gleðileg jól
Taktu þátt í Pakkajólum Bylgjunnar við jólatréð í Smáralind
Gefðu eina aukagjöf um jólin og leggðu góðu málefni lið. Fjölskylduhjálp Íslands, Mæðrastyrksnefnd og
Hjálparstarf kirkjunnar koma pökkunum til þeirra sem á að gleðja.
Pósturinn kemur pökkum utan af landi til skila endurgjaldslaust, þú þarft bara að fara með pakkann á
næsta pósthús.
Gefðu eina gjöf og vertu með í Pakkajólum Bylgjunnar.
Við óskum öllum gleðilegra jóla