Fréttablaðið - 29.12.2010, Blaðsíða 10
29. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Humar
SKÖTUSELUR
Humarsoð
frá
Hornafirði 1.990 kr/k
g
roðlaus og beinlaus
áður 3.990
allar stærðir og gerðir
INNBAKAÐUR HUMAR
SKYNDI
HJÁLPAR
MAÐUR
ÁRSINS
2010
-
-
www.raudikrossinn.is
Rauði kross Íslands auglýsir eftir
ábendingum um einstakling sem
hefur á árinu 2010 bjargað
mannslífi með réttum viðbrögðum
í skyndihjálp.
Ábendingar skulu berast fyrir
15. janúar. Viðurkenningar verða
veittar þann 11. febrúar. Nánari
upplýsingar má finna á
raudikrossinn.is
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
STÝRÐU UMRÆÐUNNI Í ÁTT TIL ÞÍN
Meiri Vísir.
LÖGREGLUMÁL Tvö nauðgunarmál
og þrjú heimilisofbeldismál eru
nú til rannsóknar hjá lögreglunni
á höfuðborgarsvæðinu. Öll atvikin
áttu sér stað yfir jólahátíðina.
Bæði nauðgunarmálin voru
kærð til lögreglu. Þau áttu sér stað
eftir að áfengi hafði verið haft um
hönd í gleðskap í heimahúsum og
þolendur enduðu heima hjá mönn-
um sem þær þekktu ekki. Annað
fórnarlambanna vaknaði við að
karlmaður var að hafa samfarir
við hana. Um er að ræða stúlkur
um og yfir tvítugt. Þær fóru báðar
á neyðarmóttöku fyrir þolendur
kynferðisofbeldis á Landspítala.
Þrír menn hafa verið handteknir
vegna rannsókna á málunum eftir
að stúlkurnar gátu lýst þeim sem
gerendum. Þeir voru yfirheyrð-
ir en sleppt að því loknu. Rann-
sókn er enn í fullum gangi og yfir-
heyrslur vitna standa yfir.
Hvað varðar heimilisofbeldis-
málin var bæði um sambýlisfólk
og hjón að ræða. Tvær konur urðu
fyrir árás af hálfu maka. Börn
voru á báðum heimilunum og saga
um langvarandi ofbeldi í báðum
tilvikum. Í þriðja málinu var um
konu að ræða sem stakk kærasta
sinn með hnífi. Hann hlaut skurði
en særðist ekki alvarlega. Í öllum
tilvikum var um ölvun eða fíkni-
efnaneyslu að ræða. Engin börn
voru á síðastnefnda heimilinu.
Fólkið sem um ræðir er allt milli
tvítugs og þrítugs.
„Það kemur því miður allt of
oft fyrir að lögregla er kölluð til
vegna ófriðar á heimili,“ segir Geir
Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn á
höfuð borgar svæðinu. Hann bætir
við að ekki sé hægt að fullyrða að
meira sé um slíkt í ár heldur en
endranær. Til þess þyrfti að bera
saman tölulegar upplýsingar milli
ára.
Geir Jón segir að sprenging hafi
orðið á miðnætti annars dags jóla
þegar skemmtistaðir voru opnað-
ir. Ölvun hafi verið talsverð, mikið
um ónæði í heimahúsum og fleiri
tilvik sem lögregla hafi átt fullt í
fangi með að sinna.
„Við erum alltaf að biðja fólk
að ganga hægt um gleðinnar dyr
og huga að börnunum og jólahá-
tíðinni,“ undirstrikar Geir Jón.
„En það eru alltaf einhverjir sem
telja sig ekki geta sleppt úr helgi
eða öðrum frítíma í því sambandi
og jólin eru ekki helgari en aðrir
tímar ársins fyrir þessum hópi.“
jss@frettabladid.is
SKOTÁRÁS Sex menn voru handteknir á aðfangadag eftir að gerð hafði verið skotárás
á heimili í Bústaðahverfi. Fjórir þeirra sitja nú í gæsluvarðhaldi. MYND/STÖÐ 2
Nauðganir og
ofbeldi á jólum
Tvær nauðganir og þrjú heimilisofbeldismál voru
kærð til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir jóla-
dagana. Í einu málanna var hnífi beitt. Yfirlögreglu-
þjónn biður fólk að huga að börnum yfir hátíðarnar.
Það kemur því miður
allt of oft fyrir að
lögregla er kölluð til vegna
ófriðar á heimili.
GEIR JÓN ÞÓRISSON
YFIRLÖGREGLUÞJÓNN
NOREGUR 31 morð hefur verið
framið í Noregi það sem af er ári,
að því er fram kemur í úttekt á vef
Aftenposten.
Þar segir einnig að eingöngu eitt
morðanna sé óupplýst og að í lang-
flestum tilfellum, í öllum nema
tveimur, hafi fórnarlömbin þekkt
banamann sinn.
Ekki eru óvenjulega mörg morð
þetta árið í Noregi og þau eru til-
tölulega fá í samanburði við önnur
lönd. Morðin 31 samsvara um 0,6
morðum á hverja 100.000 íbúa, en í
samanburði við það eru framin 0,9
morð á 100.000 íbúa í Svíþjóð og 5,2
í Bandaríkjunum.
Mest sláandi var hinn hryllilegi
atburður sem átti sér stað í haust
þegar rúmlega fertugur karlmaður
drap eiginkonu sína og þrjár dætur
áður en hann svipti sig lífi. - þj
31 morð framið í Noregi það sem af er árinu 2010:
Flest fórnarlömbin
þekktu morðingjann