Sameiningin - 01.04.1960, Qupperneq 8
6
Sameiningin
og metur, nægir til þess, að hann er hreykinn af þessari
sögu, þegar hann er minntur á hana. Vér vitum allir, að
myndun og skipulagning lúterskra safnaða af örsnauðum
landnemum í nýjum heimi þeirra var mikið afrek, eins
maklegt aðdáunar, blátt áfram frá mannlegu sjónarmiði og
hvað annað, sem liggur eftir íslenzka menn á liðnum þremur
aldarfjórðungum. Við getum að vísu ekki verið hreyknir af
þessari sögu vegna þess, að heimalandar hafi lagt henni
mikið til. En um það gegnir sama máli og alla liðna sögu,
vér getum aldrei miklazt af því, sem aðrir hafa gert. Þetta
hafa aðrir erfiðað, en vér fáum að ganga inn í uppskeru
þeirra, njótum þess beint og óbeint. Hvert gott og bless-
unarríkt starf, sem vér höfum spurnir af, einkum ef það
er með einhverjum hætti nákomið oss, vekur oss hollan
metnað, lyftir oss, hvetur oss til áræðis, gerir oss þannig
meiri menn og betri menn. Slíkt þakkarefni hef ég hér
fram að færa fyrir hönd íslenzkrar þjóðar. Meðtakið, vinir,
þá þökk. ísland og öll þess börn fylgja þeirri þökk eftir.
Vér blessum minningu þeirra manna, sem skópu þá sögu,
sem vér minnumst hér, tjáum henni lotningu vora í nafni
þess lands, þeirrar þjóðar, sem þeir voru sprottnir af.
Ég hefi minnzt á það, sem er almennast og sjálfsagðast
og stendur í sambandi við þau bönd, sem íslendingar eru
tengdir, hvar sem þeir lifa, bæði í fortíð og nútíð. Þegar
feður yðar og mæður hurfu frá íslandi og leituðu nýrra
heimkynna í öðru landi, hurfu þeir ekki frá fortíð sinni.
Það gerum vér aldrei með öllu. Það er meira í oss öllum af
fortíðinni en vér gerum oss grein fyrir, af sigrum og ósigr-
um, gleði og raunum forfeðra vorra. En hið liðna lifir að
mestu leyti í oss ómeðvitað. Þó er líka til lifandi arfur,
sem hefir þau auðkenni lífsins sjálfs, að hann skýtur æ
nýjum sprotum, berst frá einni kynslóð til annarrar eins
og neisti, er tendrar út frá sér. Slíkan arf tóku feður yðar
með sér frá íslandi. Og það var ekki séríslenzk arfleifð.
Það var brot af auðlegð kristilegrar kirkju Guðs á jörð,
hinnar miklu móður, sem fyrir orð Guðs fæðir og nærir
hvern kristinn mann, eins og Lúter kemst að orði. Börn
íslands, sem hurfu af landi feðra sinna til þess að setjast