Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.04.1960, Side 12

Sameiningin - 01.04.1960, Side 12
10 Sameiningin lega talað, mátti um mig segja, að ég átti litla eða enga trú mér í sál. Stöðug umgengni við vonlausa sjúkdóma og þjáningar höfðu gert mig kaldan og tilfinningalausan. Ég var mér þess meðvitandi, að ég hafði lagt mína ítrustu krafta og alla mína þekkingu til að gera tilraun til að frelsa líf þessara ungu og göfugu manna, og í flestum til- fellum hafði ég beðið ósigur. Dauðinn tók herfang sitt úr höndunum á mér. Þennan Páskadagsmorgun vakti það mikla undrun í huga mínum, hve mikil gleði og eftirvænting skein út úr augum margra sjúklinganna, sem komu til guðsþjónust- unnar 1 hjólastól sínum, eða gengu með veikum burðum, leiddir af tveimur til sætis. Ég tók eftir hve innilega þeir tóku þátt í að syngja sálmana — þessa sigursöngva Pásk- anna. Ég heyrði prestinn lesa páskafrásögnina og bera fram orð textans: Guði séu þakkir, sem gefur oss sigurinn fyrir Droitin vorn Jesúm Krisi. Það var sem sterk tilfinningar- alda færi gegn um salinn. í hug mér kom spurningin. Sig- urinn? Hvaða sigur er hér verið að tala um við þessa blessaða menn með brákaða líkami og ólæknandi sjúkdóma? Presturinn talaði stutta stund, um þýðingu Páskaboðskap- arins — Dauðinn er yfirunninn, fáein fótmál eftir fyrir hvern og einn, unga sem gamla, hrausta sem sjúka, en þau fótmál leiddu frá dauðanum til lífsins. — Sálmurinn var sunginn — blessun var lýst, og guðsþjónustan var á enda. Ég gekk út úr salnum í leiðslu, annar maður en ég var, er ég kom þangað. Eitthvert óskiljanlegt undra afl hafði snert við mér. Síðan hefur allt mitt viðhorf breytzt. Ég er sannfærður um, að hinn upprisni frelsari var nær- staddur í þessum sal sjúkrahússins, sannfærður um að með sinni blessandi nálægð veitti hann hverjum okkar, sem þar vorum, þann styrk, er við helzt við þurftum.“ Þannig lýkur læknirinn frásögn sinni. ☆ Guð blessi oss öllum þessa páskahátíð. Megi eilífðar- vissan ná tökum á hugum vor allra og slá ljóma sínum á ófarin ævispor. SIGURÐUR ÓLAFSSON

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.