Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1960, Síða 20

Sameiningin - 01.04.1960, Síða 20
18 Sameiningin Ég hefi spurt sjálfan mig, er hér brostinn hlekkur? Ég vil taka það fram, að ég álít hér ekki vera um að ræða eingöngu stað- og tímabundið fyrirbæri, heldur mjög Svo algengt meðal afkomenda íslenzku landnemanna hér í álfu. Það er áreiðanlegt, að sunnudagaskólarnir hafa ekki brugð- izt skyldu sinni; það sem börnin kunna í þessum efnum, það hafa þau flest lært þar. En tíminn, sem sunnudaga- skólarnir hafa yfir að ráða, er allt of naumur, og hann getur aldrei komið í stað þess tíma, sem foreldrarnir hafa yfir að ráða til að kenna börnum sínum. Álit mitt er sem sé, að hlekkurinn hafi brostið hjá foreldrunum. Ástæðan fyrir því að svo fer finnst mér einnig vera augljós. Þegar þessir foreldrar voru að alast upp, var þeim kennt á heimilunum alveg frá bernsku bænirnar og versin, eins og gert hafði verið á Islandi áður fyrr. Jafnvel þegar að þau stækkuðu gengu þau á sunnudagaskóla, þar sem kennt var á íslenzku og sem tók beint við af heimilunum. En það er hjá þessari kynslóð, sem enskan verður tamari en íslenzkan, þeirra börn tala svo til enga íslenzku. Hér brestur hlekkurinn. Foreldr- unum er það ekki eiginlegt að kenna börnum sínum það á ensku, sem þeim var kennt á íslenzku, svo það er látið liggja í láginni að kenna þeim þessa hluti og treyst á sunnudagaskólana í staðinn. Mér finnst, að hér þurfi að koma á gagngerri breytingu. Það er óbættur skaðinn, sem barnið verður fyrir, sem ekki fær tækifæri til að læra fyrstu atriði kristindómsins við kné móður sinnar. Það er því ánægjuefni að vera vottur að því, að meiri áherzla skuli vera lögð á aukna heimilisguð- rækni í öllum kirkjudeildum þessa stóra og fagra megin- lands. En þess er brýn þörf, að við, sem berum þessi mál fyrir brjósti, látum okkar ekki eftir liggja, en reynum á allan hátt að styðja að því, að festin verði aftur heil og óslitin, sú sem liggur á milli foreldri og barns, og flytur einstaklingnum eina af stærstu gjöfum Guðs, að mega tala við hann, og það jafnvel með orðum Frelsarans.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.