Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.04.1960, Side 43

Sameiningin - 01.04.1960, Side 43
af stærri kirkju, er hefir útbreiðslu fagnaðarerindis Krists að megintilgangi. Kirkja Krists er ekki bundin neinum sér- stökum þjóðflokkum í boðskap sínum, heldur er hún almenn og alþjóðleg í því tilliti, og þannig ætti hún einnig að vera í ytra skipulagi sínu. Þar ætti ekki að vera neitt rúm fyrir varðveizlu þjóðlegra og þjóðernislegra séreinkenna. „Sam- tök“ sem þau, er ég gat um áðan, eru miklu hentugri og hæfari til slíks hlutverks. Vér börn Hins íslenzka kirkjufélags erum hreykin af arfleifð vorri og uppruna, hinu sterka bjargi, sem vér erum höggnir af. En vér erum, eða vér ættum að vera enn hreyknari af hinni kristilegu arfleifð vorri og trú, sem höfðar til dýpri og varanlegri þarfa vorra. Og vér ættum ekki að vera of treg til að beina augum okkar frá þrengri sjónar- miðum til æðri sýna, að kristinni kirkju sameinaðri í stærri hóp, til að þjóna betur Guði og sambræðrum vorum. Séra Kristinn K. Ólafsson hefir nú lokið við að þýða hina ágætu bók dr. Ásmundar Guðmundssonar biskups, „Ævi Jesú“, á ensku. Er handritið nú í höndum dr. Ás- mundar og leitar hann nú fyrir sér um útgefendur. * * * Dr. Ásmundur Guðmundsson og dr. Sigurður Nordal starfa nú að nýrri þýðingu á Nýja testamentinu úr grísku á islenzku. Báðir eru þessir menn fræðimenn og vand- virkir. Vænta menn hins bezta af starfi þeirra. :J: :|c Fi’iðrik Friðriksson dr. theol., hinn víðfrægi æskulýðs- leiðtogi íslendinga, er nú nýlátinn í hárri elli í Reykjavík. Um skeið dvaldist hann hér vestanhafs og eignaðist fjölda vina og aðdáenda.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.