Sameiningin - 01.03.1929, Page 8
70
auglýsingu. Upphafsmaður hreyfingarinnar, sem áunnið hefir
sér þaÖ heiti aÖ vera nefndur “postuli æskunnar” vegna áhrifa
sinna í kristilega átt á ungt fólk, forðast beinlínis að láta sín getið.
Hann hefir starfað aðallega á Englandi og í Bandaríkjunum. Á
Englandi vakti starf hans athygli hins velþekta -blaðamanns og
rithöfundar, Harold Begbie, sem fór þess á leit að fá að skrifa bók
um starfið. Var leyfi til þess veitt með þvi skilyrði að upphafs-
maður hreyfingarinnar ekki væri nefndur. Var bókin, er nefnist
Life Changers, síðan gefin út bæði á Englandi og í Ameríku.
Einnig hefir all-ítarleg frásögn um hreyfinguna birst hér í Ame-
ríku í Atlantic Monthly. En þeir, sem að hreyfingunni standa
virða-st sammála upphafsmanni hennar í því, að auglýsingafum
komi ekki að miklu liði.
Fvrst skal minnast að nokkru mannsins, er á upptökin að
hrevfingu þessari. Er hann lúterskur prestur um fimtugt, F. N.
D. Buchman að nafni. Er hann fæddur og uppalinn í smáb-æ í
Pennsylvania ríki, útskrifaður frá Muhlenberg College og lút-
erskum prestaskóla, Mt. Airy að eg hygg. Er maðurinn að sögn
mög látlaus og sýnir það lítið á yfirborði að hann sé áhrifamaður.
Eftir að hafa lokið námi fékst hann í eitt eða tvö ár við siðbóta-
starf fsocial service), auk þess að ferðast' i útlöndum. Árið
1908 var hann staddur í Keswiok á Englandi. Fram að þeim tima
hafði hann ekki átt neina ákveðna kristilega trúarreynslu. Hann
var vansæll og á reiki. Hann ól gremju í hjarta sínu gagnvart
vissum einstaklingum í hópi trúrækinna manna. Um nokkurt skeið
hafði hann haft það á tilfinningunni ónotalega, að þetta myndi
orsökin til vansælu sinnar. En dramb stóð i vegi þess að hann;
auðmýkti sig fvrir mótstöðumönnum sínum. I þessu ástandi
varð honum reikað inn í litla sveita-kirkju og hlýddi þar á konu
nokkra flytja erindi um merkingu krossins. Hann veit ekki
sjálfur nafn konu þessarar, en eitthvað sem hún sagði kom djúpu
róti á sálarlíf hans, svo hann sá sjálfan sig í nýju ljósi. Var
það úrslitastund í lífi hans. Næsta dag lét hann í póstinn sex
bréf til Ameríku, látlausar afsökunarbeiðnir til mótstöðumanna
sinna. Arar upphafið á hverju bréfi þessar hendingar úr sálmi:
When I survey the wondrous eross
On which the Prince of Glory died,
My richest gain I count but loss,
And pour contempt on all my pride.
Frá þessum sex mönnum fékk hann vist aklrei svar, en 1111
í fyrsta sinn fann hann til áhrifa Krists raunverulega hið innra
hjá sér. Hann var ekki lengur á reiki. Siðan liefir hann gert
sér grein fyrir að “synd er það, sem aðskilur mann frá Guði eða