Sameiningin - 01.03.1929, Page 9
71
öðrum mönnum.” Nú var ekkert dramb í vegi þess að hann,
veitti öðrum hlutdeild í þessari uppgötvun sinni.
Næsta ár mælti dr. Mott með Buchman til að veita forstöðu
K. F. U. M. (Y.M.C.A.) við stóran ríkisháskóla í Bandarikj-
unurn Tók hann stöðunni. Viðfangsefnið var ekki auðvelt.
Námsfólkið var óvinveitt starfinu, og kennararnir sýndu kurteis-
lega að þeir höfðu enga trú á því. Opinberar trúboðssamkomur
mundu litlu áorka. Að hafa áhrif á einstaklinga var eini mögu-
leikinn. Oft er í slíku starfi aðal áherzlan á því að geta talið sem
flesta með. Hinn ungi forstöðumaður skyldi að það var ekki
aðal atriðið. Hann trúði því fastlega að enginn hefði verulega
gengið Kristi á hönd, fyr en hann sjálfur færi að gefa sig við því
að| vinna aðra.
Buchman kom það svo fyrir að þrír menn réðu mestu um
áhrif í skólanum. \roru það yfirkennarinn í skólanum fDean),
vinsæll og vel gefinn háskólastúdent, og foringi í vínsmyglara-
hópi nefndur vanalega Bill “Pickle.” Hafði stjórn skólans
reynst það ofjarl að hafa hendur í hári þeirra. — Vinsæli stú-
dentinn hneigðist mjög að siðfræði, og taldi sig lærisvein Con-
fúciusar, að minsta kosti í spaugi. En Buchman tók þetta í al-
vöru, mót því sem hinn hafði búist við', og hélt því að honum að
ef kenning Confúcíusar væri honum fullnægjandi, þá ætti hún að
geta komið öðrum að liði. Hann skoraði á stúdentinn að reyna
trú sína á Mike Milligan, aljjektum hænsnaþjófi í nágrennmu.
Þegar hér var komið var náin vinátta orðin tneð Buchman og
stúdentinum. Gekk hinn síðarnefndi inn á að taka áskoruninni.
Áttu þrír mánuðir að ganga í þessa tilraun. Hinn ungi og ó-
eigingjarni maður komst i kynni við fjölskylduna, heimsótti hana
viku eftir viku, gaf börnunum gjafir og lagði konunni lið á ýms-
an hátt. En húsbóndinn, Mike, var óbreyttur. Við lok hins á-
kveðna tímabils kannaðist stúdentinn við að sér hefði ekkert
orðið ágengt. Þá lagði Buchman til að þeir gerðu sameiginlega
tilraun við Bill vínsmyglara. Buchman tókst að ná tiltrú hans
og innan skamms gjörbreyttist ekki einungis þessi maður, sem átti
upptökin að verstu áhrifum í skólanum, heldur líka lagði hann
sig fram að vinna félaga sína til fylgdar við Krist. Stúdentinn,
sem gert hafði tilraunina við hænsnaþjófinn, var svo hugfanginn
af þessu að hann afréði að reyna sjálfur þá trú. sem öðru eins
gæti afrekað. Fann hann betur til hvílíkt kraftaverk jjetta var,
vegna þess hann hafði gert svipaða tilraun sjálfur. Yfirkennar-
>nn var algerður trúleysingi, en er regla i skólanum varð honum
auðveldari fyrir brevtt ástand hvað vínföng snerti, fann hann