Sameiningin - 01.03.1929, Blaðsíða 17
79
devr? Á sálin að hafa verið til, til einkis? Mér finst þaÖ ekki
hugsanlegt. Vísindin leggja ekkii til neina stærðfræðilega sönn-
un fyrir því aÖ mannssálin sé ódauðleg, en þau gefa nægilegt til-
efni til skynsamlegrar vonar. Og þau efla þá skoðun vora að
líkamlegt líf sé einungis þroskastig í lífi sálarinnar. Það er
persónuleg skoðun mín að alt, sem við ber í alheiminum, þjóni
augnamiði, og að það augnamið sé þroski mannssálarinnar. Þar
mætast vísindi og trúarbrögð. Vísindin auka óendanlega á grund-
völl trúarlegrar sannfæringar. Vísindin munu efla trúna—eins
og þau hafa eflt trú mína.
“Trú mín sem visindamanns er ekki í mótsögn við nokkurt
atriði þeirrar trúar, sem rnóðir mín og fólkið í fæðingarþorpi
mínu aðhyltist, þegar eg var drengur. Vísindin hafa einungis
gefið mér æðri og víðtækari sjón á skaparanum.
“Það er aðal ánægjan í vísindalegu starfi. Tilgangur vis-
indanna er ekki einungis að skapa efnislega hluti, uppfyndingar
sem auka auð og þægindi. Þau eru áreiðanlega dýrmæt gæði,
en ekki dýrmætustu gæðin. Ef vísindin hjálpa mér ekki í því að
eignast sjálfur og færa öðrum betri trú, betri skilning á skaparan-
um, og nánara persónúlegt samfélag við hann; ef vísindin hjálpa
mér ekki í því að framkvæma hinn guðlega tilgang, þá hefir mér
mistekist sem vísindamanni. En vísindin hafa gert mig betur
kristinn. Eg trúi því að þau geri betur kristna alla menn og
konur, sem reyna að skilja þeirra einfalda og fagra lögmál, því
það er lögmál Guðs.”
Þýtt of K. K. Ó.
Samkvæmt lagafrumvarpi, er samþykt hefir verið i brezka þing-
inu, verða páskar haldnir hér eftir i ensku ríkiskirkjunni ár hvert
sunnudaginn næsta eftir annan laugardag í apríl. Me'ð því mótl
hlýtur páskadagurinn að vera á tímabilinu frá 9.—15. apríl. Eftir
eldra fyrirkomulaginu eru páskar haldnir, eins og kunnugt er, sunnu-
daginn næsta eftir fyrstu tunglfyllingu eftir vor jafndægrin. Geta
þá páskar aldrei verið fyr en 22. marz og aldrei seinna en 25. apríh
Á þessu vori heldur enska kirkjan páska sunnudaginn 14. april eftir
hinu nýja fyrirkomulagi, en páskahátíðin venjulega er þann 31.
marz. Ekki hefir heyrst að aðrar kirkjudeildir á Englandi ætli að'
minsta kosti í bráðina að semja sig að þessari nýju tilskipun. Eru
því horfur á að þar verði tvær páskahátíðir á þessu voru. Er slíkt
ekki eins dæmi, því til skamms tíma hélt grísk-kaþólska kirkjan há-
tíðir eftir júlíanska tímatalinu, þó áðrir hlutar ristninnar færu eftir
gregoríanska tímatalinu. Urðu þannig tvennir helgidagar fyrir hverja