Sameiningin - 01.03.1929, Síða 25
87
sem blcssaðan frelsara, er losar oss vit) syndabyrð'ina, sem lífgefandi
anda, er upplýsir oss, endurlífgar oss, hreinsar oss, leiSir oss til
Krists og helgar alt voi't líf.
Eg veit á hvern eg trúi! Eg þekki engainn og ekkert í alheim-
inum jafn vel og hinn þrí-eina gu®. Hann er mér alt—já alt.
Trúiin cr vísindaleg!
Carl J. Olson.
Beautiful Saviour
fSálmur frá 12 öld.)
Frelsarinn fagri,
Höfundur heimsins,
Sonur GuÖs og sonur manns!
Þér vil eg þjóna,
Þig skal eg elska,
Kóngur ljóssins og kærleikans.
Fögur er foldin,
Fögur er mörkin
Blómskrýtt vor er sitt býður skaut.
Jesús er fegri,
Jesús er hreinni,
Hann gerir sorg að sigurbraut.
Sindrar af sólum,-—•
Sól, tungli, stjörnum;
Fögur er himna föðurgjöf.
Jesús s'kín bjartar,
Jesús skín hreinni
öllum englum um himin höf.
Fresarinn fagri,
Friðargjöf þjóöum,
Sonur Guðs og sonur manns!
Friður á foldu,
Fagnandi lýður
Tignar við fæðing frelsarans.
Jónas A. Sigurðsson.