Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1920, Blaðsíða 21

Sameiningin - 01.01.1920, Blaðsíða 21
21 2. ó, himna Guð! eg hrópa’ á þig í heimsins istríði’ og sorg, æ, liðsinn mér og leiddu mig í lífsins ihelgu borg. 3. pað er svo dauft og dapurt hér, og dimm er æfibraut; kveik ljós í hug og hjarta mér og hrind burt sorg og þraut. 4. pitt Ijós, ó Jesú! lýsir rann, það lyftir sorg af brá, og kennir mér að þekkja þann, sem Iþú ert kominn frá. 5. í ljósi þínu leyfðu mér að lifa hverja stund, svo sál mín hljóti sess hjá þér, þá isofna’ eg hinsta blund. 6. Eg glögt nú finn, æ, faðir kær! hve föðurhöndin þín hún hjálpar, styður, hjúkrun ljær og huggar sálu mín. --------0--------- I RADDIR FRÁ ALMENNINGI | Dcild þcssa annast séra G. Guttormsson. í S A M T A L. A—Eitt langar mig til að vita, sem enginn prestur hefir sagt mér og eg hefi ekki getað fundið í nokkurri bók. B—Ef það er nokkuð viðvíkjandi kristindómi, þá láttu mig heyra það. A—pað er mér minnisstætt, að þegar Kristján níundi Danakonungur kom til íslands á þjóðhátíðinni, þá voru margir af þeim, sem áttu að koma fram fyrir hann, svo ófróðir um hirð- siði, að þeir leituðu sér upplýsinga um það, hvernig þeir ætti að koma fram fyrir konung og heilsa honum með viðeigandi kurteisi. B—Mér finst það ekki koma neitt trúarefnum við, hvernig menn eiga að korna fram fyrir Danakonung.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.