Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.01.1920, Page 24

Sameiningin - 01.01.1920, Page 24
24 ast samhliða heiðnum bókmentum og gullaldarverkum. Hvað er að?” petta og þvílíkt bendir til þess, hve mikil þörf er á kristi- legri mentun. Kountze Memorial lúterski söfnuðurinn í Omaha, Nebr., telur nú sex hundruð, sem verið er að búa undir fermingu á næsta vori. Margir eru fullorðnir. Verður þetta stærsti fermingarhópurinn í sögu safnaðarins, og ef til vill í sögu lútersku kirkjunar í Ameríku. Tala fermdra safnaðarlima verður um 'þrjú þúsund, þegar þessi hópur hefir verið fermdur. Hr. Jóhn F. Kramer, lúterksur lögfræðingur frá Mansfield, Ohio, hefir verið skipaður af sambandsstjórn Bandaríkja sem aðal eftirlitsmaður með því að alþjóðar vínibannslögunum verði framfylgt. Skrifstofa hans verður í Washington, og skipar hann svo undirtyllur um land alt. Gera menn sér góðar vonir um að eftirlitið verði gott; því maðurinn er þektur að dugnaði og samvizkusemi. Bent er á þá ósanngirni i mörgum blöðum undanfarandi, sem. kemur fram í því, að ríkisstjórinn í Bengal á Indlandi hefir gert upptæka og bannað útbreiðslu bókar, er nefnist: “Islam, a Challenge to the Faith”, eftir Samuel M. Zwemer, fyrir það, að hún sé meiðandi fyrir Múhameðstrúarmenn, en á sama tíma er gefið út á Englandi Múhameðstrúar málgagn, er heitir: “Is- lamic Review”, og flytur það oft svæsnar árásir á kristindóm- inn. Hefir oft áður komið fram umkvörtun um Iþað, að ýmsir háttstandandi fulltrúar brezku stjórnarinnar á Indlandi séu af pólitiskum ástæðum hlyntari Múhameðstrú en kristindómi. Nýr söfnuður. í Glenboro-bæ eiga heima um 150 íslendingar. Nokkrir þeirra hafa undanfarin ár tilheyrt Frelsis-söfnuði en flestir ekki verið í neinum söfnuði. Guðsþjónustum hefir þó verið haldið uppi þar síðastliðin 16 ár, einu sinni á mánuði. Sunnu- daginn 19. Október síðastliðinn var haldinn þar fjölmennur fundur eftir guðsþjónustu, og samþykt að stofna söfnuð, er nefnist Glenboro-söfnuður. Kvöldið eftir var annar fundur haldinn, og voru þá samþykt safnaðarlög og embættismenn kosnir; þessir voru kosnir fulltrúar: G. J. Óleson, Jón Sig- valdason, Jón Gillis, Stefán Ohristie og Hermann Arason; djáknar: Mrs. J. Gillis og Jón Anderson. — Jón Ólafsson tók að sér að veita forstöðu sunnudagsskóla safnaðarins. Söfnuð- urinn hefir ákveðið að leita samvinnu við hina söfnuðina í bygð- inni um prestsþjónustu.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.