Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.01.1920, Page 31

Sameiningin - 01.01.1920, Page 31
31 hvernig- við eigurn að vaxa í kristindóminum. a. 1 andlegum skilningi eru kristnir menn upphaflega eins og nýfædd börn— hvort sem þeir hafa tekið við trúnni í æsku eða á fullorðinsár- um. peir þurfa að þroskast, vaxa, byggjast upp. b. Til þess að geta þroskast og dafnað í kristindóminum, þá þurfum við fyrst og fremst að forðast það eitur, sem stendur sálinni fyrir þrifum. Postulinn nefnir sérstaklega: vonzku, prettvísi, hræsni, öfund, og vond orð um aðra menn. petta eru alt ljótir og skað- legir lestir. sem stríða á móti kærleika og hógværð kristins manns. Algengir lestir og lymskir; margur maður, sem þykist vera kristinn, elur þær syndir hjá sér. c. pað er ekki nóg, að forðast eitrið; vér verðum að sækjast eftir hollri fæðu, sem er samneyti við hinn lifanda Guð. Vér eigum að “smakka, hvað Drottin er góður.” petta samneyti fæst með því, að vera vak- andi í bæninni og leggja stund á orð Drottins. d. pað er ekki nóg fyrir okkur, að vaxa í náðinni, hver í sínu lagi. Vér eigum að byggjast upp, sem söfnuður Guðs. par er tvent að athuga: Vér þurfum að byggjast ofan á sama grunninn allir, en það er Jesús Kristur. Pétur var sjálfur nefndur “steinn”, eða “klettur.” En þó vísar hann ekki til sjálfs sín, sem hornsteins, heldur til Jesú. pað var trúin á Jesúm, sem gjörði Pétur að kletti. Kristnin hefði ekki liðast í sundur, eins og raun hefir á orðið, ef kristnir menn hefðu gætt þess ætíð, að hafa Krist einn fyrir leiðtoga (1. Kor. 1, 11-13; 3, 11). Annað er hér athuga- vert: Kristur er nefndur “lifandi steinn”. og steinarnir í must- erinu, sem á honum er reist, eiga líka að vera lifandi. Steino- inn táknar festu, þunga, styrk. Við eigum að vera eins og meistarinn, sterkir, og .staðfastir í sannleikanum. En festan hjá sumum er líflaus; andi þeirra hreyfist hvergi, af því hann er dauður. Svo var ekki um Krist. Hann var lifandi steinn. Líkjum eftir honum. 6. Hvað kennir postulinn í mið-kafla textans? par sýnir postulinn hvernig við eigum að hegða okk- ur (11. 12. v.). Eigum að forðast illar girndir og ástríður, og lifa fagurlega, svo að þeir, sem ekki trúa, geti séð, hvað kristin trú er góð og rík að ávöxtum (sbr. Matt. 5, 16). 7. Hvað kennir hann í síðasta kaflanum? í þessum kafla (19.-25. v.) sýnir postulinn, hvernig við eigum að hegða okkur, þegar við verðum fyrir rangindum. Ekkert er eins fagurt eða sannfærandi um yfirburði kristinnar trúar eins og það, þegar við líkjum eftir írel-saranum í að fyrirgefa misgjörðir (21.-25. v.). Auk þess er það einmitt fyrirgefning Guðs, sem við byggjum alla okkar von á (25v.). pað er all's ekki þakkar vert, segir postulinn, þótt við þolum refsingu með jafnaðargeði, þegar við höfum unnið til h-ennar; en þegar við líðum saklausir, þá höfum við tækifæri til að líkjast frelsaranum.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.