Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.04.2011, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 14.04.2011, Qupperneq 6
14. apríl 2011 FIMMTUDAGUR6 SAMGÖNGUR Lagður verður til milljarður á ári næstu tíu ár til að efla almenningssamgöngur á höfuð borgarsvæðinu og áhrifa- svæði þess, gangi tillögur starfs- hóps á vegum samgönguráðs eftir. Starfshópurinn hefur unnið að tillögum um endurbætur á grunn- neti almenningssamgangna á suð- vesturhorni landsins síðan í des- ember og voru þær lagðar fram á fundi innanríkisráðuneytisins í gærmorgun. Tillagan var sam- þykkt hjá skipulagsráði og hefur hún einnig fengið jákvæðan með- byr hjá Ögmundi Jónassyni innan- ríkisráðherra. Verkefnið er til tíu ára og verð- ur samstarf ríkis og sveitar- félaga. Lagt er til að það verði hluti af tólf ára samgönguáætl- un sem lögð verður fyrir Alþingi í haust. Þorsteinn M. Hermanns- son, formaður starfshópsins, segir viðbrögð sveitarfélaga á svæðinu hafa verið jákvæð. „Það er verið að bjóða upp í dans. Þetta verður sameiginlegt verkefni ríkis og sveitarfélaga,“ segir Þorsteinn. Markmiðið sé að í það minnsta tvöfalda hlutdeild almenningssamgangna á höfuð- borgarsvæðinu og áhrifasvæði þess. Tillaga starfshópsins var unnin í samstarfi við Strætó BS. Reynir Jónsson framkvæmdastjóri fagn- ar tillögunum og segir fjárveit- inguna efla samgöngukerfið til muna. Ríkið muni með þessu koma með veglegum hætti inn í almenningssamgöngur, bæði með endurskoðun kerfisins á landsbyggðinni og höfuðborgar- svæðinu. „Óráðið er hvernig aðgerðir sveitarfélaganna verði mótað- ar og hvernig fjármunum verði ráðstafað,“ segir Reynir. „Hvort þetta fari allt í aukna strætó- þjónustu eða áframhaldandi þróun og framboð á öðrum sam- gönguúrræðum á eftir að ákveða.“ Reynir segir þörfina á auknum almenningssamgöngum mesta á morgnana. Þá liggi beint við að auka við strætóflotann til að anna eftirspurn á meðan fólk er á leið í vinnu eða skóla. Á kvöldin og um helgar sé hins vegar nauðsynlegt að samnýta samgöngutæki betur og horfa til nágrannalanda okkar til þess að einkabílar og leigu- bílar verði ekki einu ferðamögu- leikar Íslendinga á þessum tíma til frambúðar. sunna@frettabladid.is Það er verið að bjóða upp í dans. Þetta verður sameiginlegt verkefni ríkis og sveitarfélaga. ÞORSTEINN M. HERMANNSSON FORMAÐUR STARFSHÓPS SAMGÖNGU- RÁÐS Milljarður á ári til að efla samgöngur Ríki og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni hyggjast leggja milljarð á ári til að efla almenningssamgöngur í landinu á næstu tíu árum. Mun tvö- falda hlutdeild almenningssamgangna. Tillagan verður lögð fram á haustþingi. STRÆTÓ Í REYKJAVÍK Framkvæmdastjóri Strætó segir aukna fjárveitingu til almenningssamgangna efla starf Strætó til muna. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Betra brauð með pastaréttinum! SAMFÉLAGSMÁL Tilkynningum til barnaverndaryfirvalda fjölgaði um rúmlega eitt þúsund á milli áranna 2008 og 2009. Fjöldi barna sem tilkynnt var um árið 2009 var 5.322 og voru það tæplega sex pró- sentum fleiri börn en árið á undan. Hlutfalli tilvika þar sem ákveðið var að hefja könnun af hálfu yfir- valda fjölgaði úr 51 prósenti í 58 prósent. Þetta kemur fram í nýrri ársskýrslu Barnaverndarstofu (BVS). Steinunn Bergmann, félagsráð- gjafi hjá BVS, segir að aukinn fjöldi þeirra mála sem könnuð eru áfram af yfirvöldum þýði að alvar- legri mál séu að koma inn á borð heldur en áður. 58 prósent sé tals- vert hátt hlutfall. „Málin eru að verða flóknari. Það virðast vera að koma þyngri mál til nefndanna og aukinn vandi þeirra barna sem verið er að vinna með,“ segir Steinunn. „Vandinn er að verða margþættari hjá barni og fjölskyldu sem er erfiðara að vinna með.“ Steinunn segir for- eldra sjálfa leita nú í auknum mæli til barnaverndaryfirvalda. Flestir eru þeir að leita sér aðstoðar en einnig eru tilvik þar sem tilkynnt er um hitt foreldrið séu þau skilin. Bragi Guðbrandsson, forstjóri BVS, segir í skýrslunni að þegar leitað sé skýringa á fjölgun til- kynninga megi ætla að um sé að ræða áhrif efnahagshrunsins, en einnig aukna samfélagsmeðvitund um velferð barna. - sv Tilkynningum til barnaverndaryfirvalda fjölgaði á milli áranna 2008 og 2009: Málin þyngjast og verða flóknari Tilkynningar um áhættuhegðun barna hafa jafnan verið yfir helmingur allra tilkynninga til barnaverndaryfirvalda, en fækkað árið 2009 í um 46 prósent. Tilkynningar vegna vanrækslu barna hafa að jafnaði verið innan við 30 prósent en jukust upp í 35 prósent árið 2009. „Helst þetta í hendur við hlutfallslega fjölgun tilkynninga frá öðrum en lögreglu, en fram að þessu hafa tilkynningar frá lögreglu verið ríflega helmingur allra tilkynninga. Allt eru þetta vísbendingar um nokkuð breytt landslag frá því fyrir efnahagshrun,“ segir Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu. Breytt hlutföll Auglýsingasími STJÓRNMÁL Árni Þór Sigurðsson sagði af sér embætti þingflokks- formanns Vinstri grænna í gær. Einungis voru fjórir dagar síðan hann var kjörinn í embættið. Þur- íður Backman tekur við embættinu. Kjörið á sunnudag hefur sætt gagnrýni nokkurra þingmanna flokksins, enda var þingflokksfor- maðurinn Guðfríður Lilja Grétars- dóttir nýsnúin aftur úr fæðingar- orlofi þegar ákveðið var að kjósa á milli hennar og Árna Þórs. Hún hlaut atkvæði fjögurra þingmanna flokksins gegn níu atkvæðum Árna. Í yfirlýsingu sem Árni Þór sendi frá sér vegna málsins í gær segir að aldrei hafi hvarflað að honum að skilyrða stuðnings sinn við flokk- inn og ríkisstjórnina því að hann hefði með höndum tiltekin emb- ætti. Það hafi komið honum í opna skjöldu hversu umdeilt kjör hans reyndist. „Mér þykir miður að það mál hefur að ósekju verið persónugert og tengt bæði kvenfrelsisstefnu flokksins og lögum um fæðingar- orlof. Sú umræða er skaðleg okkar flokki og þar með óásættanleg,“ segir Árni. Hann hafi því ákveðið að segja af sér í von um að sætta ólík sjónarmið í flokknum. Guðfríði Lilju mun hafa verið boðið að taka aftur við formennsku í þingflokkn- um en hún baðst undan því. - sh Guðfríður Lilja Grétarsdóttir neitaði að taka aftur við þingflokksformennsku: Árni Þór hættir sem formaður ÁRNI ÞÓR SIGURÐSSON GUÐFRÍÐUR LILJA GRÉTARSDÓTTIR VIÐSKIPTI Actavis er líklegur kaup- andi að pólska ríkislyfjafyrirtæk- inu Polfa Warsawa. Þetta er eitt stærsta samheitalyfjafyrirtæki landsins og er með höfuðstöðvar í Varsjá. Gert er ráð fyrir að salan gangi í gegn fyrir mitt ár. Fjögur önnur fyrirtæki gerðu tilboð. Þau eru Gloria Harbin í Kína, Arterium frá Úkraínu og pólsku lyfjafyrirtækin Hersteller Adamed og Polpharma. Þýski net- miðillinn Apotheke Adhoc segir Actavis og Hersteller Adamed lík- legust til að hreppa hnossið. - jab Actavis við þröskuld Póllands: Keppa um kaup á lyfjafyrirtæki Sérðu eftir Guðfríði Lilju Grétars dóttur úr stóli þing- flokksformanns Vinstri grænna? Já 43% Nei 57% SPURNING DAGSINS Í DAG Treystir þú ríkisstjórninni? Segðu skoðun þína á Visir.is. KJÖRKASSINN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.