Fréttablaðið - 14.04.2011, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 14.04.2011, Blaðsíða 24
14. apríl 2011 FIMMTUDAGUR24 Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. timamot@frettabladid.is „Íslendingar eru afar duglegir að nýta sér bókasöfn og þá sérstaklega nú eftir efnahagshrunið. Útlán safnanna hafa aukist mjög mikið síðustu tvö til þrjú árin,“ segir Hrafnhildur Hreins dóttir, formaður Upplýsingar, félags bóka- safns- og upplýsingafræða. Félagið stendur fyrir því að dagur helgaður bókasöfnum verður haldinn hátíðlega í fyrsta sinn um allt land í dag. „Okkur finnst mikilvægt að benda á það hvað bókasöfnin okkar eru mikil- væg fyrir þjóðfélagið. Við ákváðum því að halda þennan dag til að minna á það en ekki síður er þetta hugsað til að bókasafn- og upplýsingafræðingar, sem og allir þeir sem vinna í kringum söfnin, geri sér glaðan dag.“ Að sögn Hrafnhildar er tölfræði um fjölda bókasafna á landinu einfaldlega ekki til. „Mín ágiskun er að þau séu í kringum 280-300 og eru þá meðtalin öll sérfræðisöfn, söfn háskóla, rann- sóknarstofnana, skólasöfn og hrein- lega öll flóra bókasafna. Aukningu útlána er almennt að finna á öllum þessum söfnum og á Háskólasöfnunum líka en þau voru þó mjög góð fyrir.“ Hrafnhildur nefnir sem dæmi að árið 2007 voru 866.896 titlar lánaðir út sam- kvæmt tölum úr Gegni, sem er bóka- safnsgrunnur sem stór hluti bókasafna nota. Lánþegar voru þá um 160.000 talsins. Í fyrra voru 980.404 titlar lán- aðir út, um 113.500 fleiri titlar en þrem- ur árum áður. Þá voru lánþegar orðnir 195.000. „Á meðan þessi mikla aukning verður erum við að skera niður á söfn- unum, bæði í innkaupafé og mannafla auk þess sem opnunartími hefur verið styttur. Við sem teljum okkur vera mikla bókaþjóð þar sem bókasöfn hafa alltaf spilað stórt hlutverk í bókamenn- ingunni verðum að standa vörð um söfnin okkar.“ Starf upplýsinga- og bókasafnsfræð- inga snýst um ýmislegt að sögn Hrafn- hildur. „Við vinnum í takt við tækni- þróun og þarfir þjóðfélagsins við að skipuleggja upplýsingar á hvaða formi sem er, þar með taldar bækur. Þann- ig er leitast við að auka þekkingu og styðja við menntun og rannsóknir. Í félagi okkar eru rúmlega 600 félagar en það eru ekki bara upplýsinga- og bóksafnsfræðingar sem vinna á söfnum heldur fólk með alls kyns bakgrunn, bókmenntafræðingar, sagnfræðingar, bókaverðir og fleiri.“ Ýmislegt spennandi verður á boðstól- um á bókasöfnum landsins í dag. Um 140 bókasöfn taka þátt í dagskránni, efna til leikja, kynninga, upplestra og alls kyns viðburða eða bjóða safngesti einfaldlega hjartanlega velkomna. „Dagskrána má finna inni á vef okkar, upplysing.is. Svo eitthvað sé nefnt mun Héraðsbókasafn Rang- æinga gefa bókamerki. Amtsbókasafn- ið á Akureyri birtir lista yfir 100 bestu íslensku bækurnar sem stéttin var að velja. Safnið í Hveragerði sýnir hvernig bækur eru plastaðar. Bókasafn Fella- skóla leitar að slagorði og í Borgar- bókasafninu býðst þeim sem ekki eiga bókasafnsskírteini eitt slíkt ókeypis. Þá er metnaðarfull dagskrá hjá Lands- bókasafninu en þetta eru ótal margir viðburðir og þess virði að fólk geri sér ferð og kynni sér söfnin sín.“ juliam@frettabladid.is DAGUR BÓKASAFNSINS: HALDINN Í FYRSTA SKIPTI Í DAG STÓRAUKIN BÓKAÚTLÁN SÖFNIN MIKILVÆG „Við sem teljum okkur vera mikla bókaþjóð þar sem bókasöfn hafa alltaf spilað stórt hlutverk í bókamenningunni verðum að standa vörð um söfnin okkar,“ segir Hrafnhildur Hreinsdóttir, formaður Upplýsingar, félags bókasafns- og upplýsingafræða. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG Á þessum degi árið 1939 kom út skáldsagan Þrúgur reiðinnar eftir rithöfundinn John Stein- beck. Steinbeck hlaut Pulitzer-verðlaunin fyrir bók sína og síðar Nóbelsverðlaunin í bók- menntum. Ekki fögnuðu þó allir bókinni þegar hún kom fyrst fyrir sjónir almennings. Í bókinni segir frá Joad-fjölskyldunni, land- búnaðarverkamönnum á kreppuárunum. Fjöl- skyldan flyst frá Oklahoma til Kaliforníu í von um frelsi og hamingju. Mörgum þótti Steinbeck gera of mikið úr eymd fátækra verkamanna og var ráðist á rithöfundinn úr öllum áttum sam- félagsins. Roosevelt Bandaríkjaforseti tók þó mark á skrifum Steinbecks og lagði sig fram um að ræða um og bæta kjör stéttarinnar. Þrúgur reiðinnar er fyrir löngu orðin sígild. Bókin er enn lesin í bandarískum skólum og nýtur talsverðra vinsælda. Kvikmynd var gerð eftir sögunni í Hollywood árið 1940. Í aðal- hlutverki var Henry Fonda en John Ford leik- stýrði. Bókin kom út í íslenskri þýðingu Stefáns Bjarman árið 1943. ÞETTA GERÐIST: 14. APRÍL 1939 Þrúgur reiðinnar kom út Merkisatburðir 1695 Hafís rekur inn á Faxaflóa í fyrsta sinn í áttatíu ár. Ísinn hafði rekið suður með Austfjörðum og vestur með Suðurlandi. 1931 Alþingi er rofið og boðað til kosninga. Þingrofið veldur mikl- um deilum. 1963 Hrímfaxi, flugvél Flugfélags Íslands, ferst við Ósló. Tólf manns týna lífi, flestir Íslendingar. 1987 Leifsstöð, flugstöð Leifs Eiríkssonar, er vígð. Framkvæmdir höfðu staðið yfir í fjögur ár. 1992 Ráðhús Reykjavíkur er tekið í notkun, fjórum árum eftir fyrstu skóflustungu. 91 ÓLÖF PÁLSDÓTTIR myndhöggvari er 91 árs í dag.„Ég hef oft hugsað hvað það hefði nú verið mikið léttara að verða málari og geta sest niður á hvaða hundaþúfu sem er með blað og blýant.“ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, Ragna Sigrún Guðmundsdóttir lést að heimili sínu laugardaginn 9 apríl. Útför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 20 apríl klukkan 13:00 Pétur Hafsteinn Bjarnason Selma Karlsdóttir Bryndís Bjarnadóttir Hörður Gunnarsson Bjarnheiður S. Bjarnadóttir Kristjón Másson Bjarni Þór Pétursson Edda Björk Pétursdóttir Már Kristjónsson Brynjar Harðarson Ragna Sigrún Kristjónsdóttir Auður Þóra Harðardóttir Birta Hugadóttir Eva Lóa Pétursdóttir Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Áskels V. Bjarnasonar Ránargötu 18, Akureyri. Sérstakar þakkir til heimahlynningar á Akureyri fyrir einstaka hlýju og umönnun. Þórhildur Margrét Ingólfsdóttir Jakobína Elín Áskelsdóttir Rúnar Davíðsson Bjarni Áskelsson Anna Rósa Magnúsdóttir Ingólfur Áskelsson Helga Signý Hannesdóttir Sæmundur Guðmundsson og afabörn Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma Erla Hulda Valdimarsdóttir frá Hrútsholti, andaðist á Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi, laugardaginn 9. apríl. Útförin fer fram frá Borgarneskirkju laugardaginn 16. apríl kl. 15.00. Jónas Jónasson Inga Guðjónsdóttir Helgi Guðjónsson Sesselja Guðjónsdóttir Björgvin Svavarsson Steinunn Guðjónsdóttir Jón Atli Jónsson Jenný Guðjónsdóttir Hallsteinn Haraldsson Guðríður Guðjónsdóttir Stefán Þorsteinsson Magnús Guðjónsson Litany Tayag Guno Erla Jóna Guðjónsdóttir Ómar Bjarki Hauksson ömmu- og langömmubörn. 70 ára afmæli Sigurður Kristjánsson fyrrv. kaupfélagsstjóri verður sjötugur 16. apríl nk. Af því tilefni bjóða þau hjónin Sigurður og Kristín þeim sem vilja heiðra afmælisbarnið með nærveru sinni að þigg ja léttar veitingar í sal Guðríðarkirkju í Grafarholti kl. 20.00 föstudagskvöldið 15. apríl. Þau hjónin vonast til þess að sjá sem fl est kunnugleg andlit. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa Ragnars Pálssonar Skarðshlíð 40F, Akureyri. Sérstakar þakkir til heimahlynningar og kórs og starfsfólks Glerárkirkju. Guð blessi ykkur öll. Katrín Ingvarsdóttir Jóhanna Ragnarsdóttir Kristján Matthíasson Albert Ragnarsson Bryndís Viðarsdóttir Níels Ragnarsson Þórhildur Vilhjálmsdóttir barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.