Fréttablaðið - 14.04.2011, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 14.04.2011, Blaðsíða 74
14. apríl 2011 FIMMTUDAGUR46 golfogveidi@frettabladid.is Veiðimönnum sem kaupa leyfi í Ytri-Rangá og Eystri-Rangá í sumar stendur til boða ókeypis veiðistaðalýsing á bökkum ánna um miðjan maí. Stefán Sigurðsson, sölustjóri hjá Lax-á, segir að 14. maí verði farið á bakka Ytri-Rangár og daginn eftir í Eystri-Rangá. „Við förum í gegnum hvern einasta veiðistað og holur sem hafa verið að gefa fyrir þá sem hafa keypt leyfi. Þetta er alveg frábært fyrir þá sem eru að fara í sumar að fá þessa kynn- ingu,“ segir Stefán. Um 2.400 dagstangir eru í boði í Rangánum hvert sumar þannig að gríðarlegur fjöldi veiðimanna leggur þangað leið sína. Því má búast við að margir sýni framtak- inu áhuga. „Töluverður fjöldi hefur skráð sig nú þegar. Það lítur jafnvel út fyrir að við þurfum að skipta þessu og vera með tvo hópa báða dagana,“ segir Stefán, sem kveðst reikna með að hver kynning taki um fjórar klukkustundir. Ef vel takist til megi búast við að boðið verði upp á sambærilegar kynn- ingar á öðrum veiðisvæðum fyrir- tækisins. - gar Fá fría leiðsögn við ána HARPA HLÍN ÞÓRÐARDÓTTIR Veiðikona með flugulax við Hellisey í Ytri-Rangá. MYND/STEFÁN SIGURÐSSON Uppskrift: Öngull – Legglangur straumfluguöngull, Tvinni – Appelsínugulur UNI 6/0, Stél – Fanir úr appelsínugulri marabou fjöður og nokkrir þræðir af flashabou, Kragi – Gulgrænt chenille, Vöf – Ávalt silfur, Búkfjaðrir – Appelsínugul hanahálsfjöður, Búkur – Appelsínugult chenille, Augu – Þverhaus Góð í bleikju og sjóbirting Frá því sjóbirtingsveiðin hófst hinn 1. apríl hefur mikið farið fyrir þessari flugu í umræðunni. Appelsínugulur Nobbler hefur gefið mörgum veiðimanni góða veiði í upphafi veiðitíma- bils. FL U G A N MYND/FLUGAN.IS „Vorveiðin hefur gengið ágætlega þótt það sé búið að vera hundleiðin- legt veður,“ segir Páll Þór Ármann, framkvæmdastjóri Stangaveiði- félags Reykjavíkur. Páll segir tíðarfarið hafa gert veiðimönnum erfitt fyrir. „En það hefur samt gengið vel. Til dæmis hefur verið ágætis veiði í Soginu. Þar var hoplax til að byrja með en síðan hefur verið svolítið af sjóbirt- ingi og það finnst mönnum mjög skemmtileg tilbreyting,“ segir Páll, sem kveður sjóbirtingsveiðina í Sog- inu nú ekki dæmigerða. „Það hefur ekki verið eins mikið af sjóbirtingi í Soginu undanfarin ár og hann er því að koma okkur skemmtilega á óvart. Það er spurning hvort það er einhver breyting í gangi.“ Þá segir Páll að þokkalega veiðist í Varmá við Hveragerði. „Það hefur ekki verið nein veisla heldur bara jafnt og þétt,“ segir hann. Aðallega hafi veiðst á svæðinu við Stöðvarhyl en veiðimenn hafi einnig verið að fikra sig neðar í ána þar sem stað- bundinn fiskur sé að gefa sig. „Það hefur líka verið fín veiði í Steins- mýrarvötnum,“ bætir hann við. Miklar breytingar eru orðnar við Tungufljót í Skaftárhreppi. Páll segir veiðimenn hafa verið að kroppa upp eitthvað af fiski en strik setji í reikninginn að Eldvatn komi nú saman við Tungufljót miklu neðar en verið hefur. Í stað þess að vatnaskilin séu við hinn drjúga veiðistað Syðri-Hólma séu skilin komin niður undir Hrífunes. „Þetta er orðið eins og það var fyrir um tuttugu árum. Menn eru svolítið að velta því fyrir sér hvað áhrif þetta hefur og muni hafa. Það virðist að minnsta kosti ljóst að þetta verður svona í sumar,“ segir Páll. Stangaveiðifélagið hefur nú samið við Veiðifélag Elliðavatns um að annast sölu veiðileyfa. Á aðalfundi veiðifélagsins verður væntanlega staðfest að veiðin í vatninu hefjist að þessu sinni 20. apríl. „Svæðaskipt- ing verður áfram sú sama og annað hefðbundið eins og verið hefur, til dæmis verður áfram frítt fyrir ung- linga og eldri borgara í Reykjavík og Kópavogi.“ gar@frettabladid.is Óvæntir sjóbirtingar vekja lukku í Soginu SYÐRI-HÓLMUR Hin gamalkunnu skil í Syðri-Hólma sem gefið hafa ófáa sjóbirtinga í Tungufljóti eru nú hvergi sjáanleg á þeim veiðistað. MYND/SIGURBERG GUÐBRANDSSON Vorveiðin hefur víða verið þokkaleg þrátt fyrir endem- is veðráttu undanfarið. Í Soginu hafa sjóbirtingar slegið í gegn en við Tungu- fljót brjóta menn heilann um áhrif þess að vatnaskil- in við Eldvatn hafa færst langt niður eftir. HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND WWW.UTILIF.IS FERÐAÆVINTÝRI Í FERMINGARGJÖF ÍS LE N SK A /S IA .I S /U TI 5 42 12 0 3/ 11 NÚ BER VEL Í VEIÐI Urriðaveiði í Laxárdal og Mývatnssveit 495 1.341 LAXAR hafa að meðaltali veiðst í Hrútafjarðará á þrjár stangir síðustu sjö ár. LAX veiddist að meðaltali sumar hvert úr Laxá í Kjós síðustu tíu árin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.