Fréttablaðið - 14.04.2011, Side 38

Fréttablaðið - 14.04.2011, Side 38
14. APRÍL 2011 FIMMTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● brúðkaup Blómvendir endurspegla ótvírætt rómantíkina á brúðkaupsdaginn. Rósir eru sígildar og það eru liljur líka að sögn þeirra fagmanna sem Fréttablaðið leitaði til. „Svokallaðir kúluvendir hafa verið langvinsælastir upp á síðkastið hjá brúðum enda eru þeir léttir, leikandi og elegant. Njóta sín líka vel hvort sem er við einfaldan, stílhreinan kjól eða íburðarmikinn,“ segir Ragnhildur Fjeldsted í versluninni Dans á rósum við Bald- ursgötu 36 í Reykjavík sem hefur áralanga reynslu af blómaskreytingum. Í sama streng tekur Katrín Reynisdóttir í Kötukoti – bros- andi blómabúð við Kársnesbraut 114 í Kópa- vogi sem telur rómantíska, gamaldags vendi eiga upp á pallborðið. „Það hlýlega höfðar til fólks núna. Maður sér það alls staðar í tískunni, þar eru blóm og litir,“ segir hún. Dropalaga, hangandi vendir eru líka alltaf sígildir að sögn Ragnhildar og hún segir litavalið oft verða skærara þegar sólin skín sem hæst. Þá sé farið út í skærbleikt, gult og jafnvel bláa tóna. - gun „Verslunin er oft ekki opin fyrr en síðdegis en það er alltaf hægt að hringja,“ segir Katrín í Kötukoti. Blómin stinga sér mishátt upp úr vend- inum sem gerður er úr rósa knúppum, hortensíu og orkídeum. Demantskristallar koma svo með hátíðlegan blæ því á þá stirnir hér og þar. Úr Dansi á rósum. „Ég bendi fólki alltaf á að velja blóm sem brúðurin hefur mest dálæti á,“ segir Ragnhildur Fjeldsted í Dansi á rósum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Ragnhildur í Dansi á rósum bjó til barmblóm fyrir herra úr orkídeu, litlum rósaknúppum og bergfléttu- blöðum. „Hér var ég að ögra saman tveimur rósum, antikrauðum og lilla,“ segir Kata í Kötukoti um þennan kúluvönd sem hún bjó til. Vöndur úr Kötukoti með kallalilju, írisi og trjágreinum úr skóginum. Stilkarnir eru skreyttir perlum. Kúluvendirnir vinsælastir FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ÞRÝSTIJÖFNUNAR HEILSUDÝNUR OG HEILSUKODDAR A ‹E INS FRÁ TEMPUR ® EINA DÝNAN OG KODDINN SEM VIÐURKENND ERU AF NASA OG VOTTUÐ AF GEIMFERÐASTOFNUNINNI Þegur þú sefur á TEMPUR heilsudýnu, hvílast hryggur og liðir í sinni náttúrulegu stöðu. TEMPUR þrýstijöfnunarefnið er mjúkt þar sem þú vilt og stíft þar sem þú þarft™ og veitir þannig þrýstijöfnun, þægindi og náttúru legan stuðning. Vaknaðu upp endurnærð(ur) og tilbúin(n) í átök dagsins. Heilsudýnan sem styður svo vel við þig að þér finnst þú svífa í svefni Öll brúðhjón 2011 fá 10% kaupauka á öll gjafabréf ! Gildir einnig af tilboðum!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.