Fréttablaðið - 14.04.2011, Side 62
14. apríl 2011 FIMMTUDAGUR34
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Iceland Airwaves í Reykjavík og Aldrei fór ég suður á Ísafirði hafa
verið flottustu tónlistarhátíðir landsins undanfarin ár. Airwaves ein-
okar sviðið í októbermánuði og Aldrei fór ég suður er fastur passi um
páskana hjá mörgum. Það hefur hins vegar verið frekar lítið að gerast
á vordögum í höfuðborginni. Tónlistarhátíðin Reykjavík Music Mess,
sem hefst á morgun og stendur fram á sunnudagskvöld, er tilraun til
að breyta því.
Dagskráin lofar mjög góðu. Í fyrsta lagi spila á hátíðinni margir
af heitustu tónlistarmönnnum Íslands, þ.á m. Agent Fresco, Sudden
Weather Change, Miri, Kimono, Sóley, Swords of Chaos, Ég, Sin Fang,
Nolo og Quadruplos og í öðru lagi eru nokkur vel valin útlend nöfn. Þar
ber auðvitað hæst bandarísku sveitina Deerhunter, en að
auki koma að utan danska keyrslurokkdúóið Fossils,
grænlenska söngkonan Nive Nielsen, Baltimore
indie-sveitin Lower Dens og finnski raftónlistar-
brjálæðingurinn Tomutonttu, sem ég er mjög
spenntur fyrir því að sjá. Tomutonttu er lista-
mannsnafn Jans Anderzen, en hann spilar til-
raunakennda og á köflum hamslausa raftónlist.
Og svo eru þarna líka nöfn eins og AMFJ,
Kippi kanínus, Mugison, Einar Örn ásamt SWC
og Lazyblood sem er dúó skipað Ernu Ómarsdóttur
dansara og Valda gítarleikara úr Reykjavík, en þau
eru að vinna að sinni fyrstu plötu. Og mörg
fleiri.
Semsagt nóg af djúsi! Hátíðin fer fram
í Norræna húsinu og á Nasa og Sódómu.
Upplýsingar og tóndæmi má finna á
www.reykjavikmusicmess.com.
Safarík dagskrá fram undan
RAFTÓNLISTARBRJÁLÆÐINGUR Hinn finnski
Tomutonttu er á meðal þeirra sem koma
fram á hátíðinni Reykjavík Music Mess.
> PLATA VIKUNNAR
Megas og Senuþjófarnir –
(Hugboð um) vandræði
★★★★
„Enn ein gæðaplatan frá Megasi og
Senuþjófunum.“ TJ
> Í SPILARANUM
Foo Fighters - Wasting Light
Atmosphere - Family Sign
Steve Sampling - The Optimist
The Feelies - Here Before
Battles - Gloss Drop
FOO FIGHTERS BATTLES
Steven Tyler, söngvari Aerosmith,
segir að væntanleg sjálfsævisaga
sín verði uppfull af ólifnaði, þar á
meðal kynlífs- og eiturlyfjasögum.
Bókin nefnist Does the Noise in
My Head Bother You? og kemur út
3. maí. „Þetta verður persónuleg
og djörf saga um Steven Tyler þar
sem ekkert verður dregið undan,“
sagði söngvarinn. Fjallað verður
um skilnað hans við aðra eiginkonu
sína, áfengismeðferðina sem
hann hefur gengist undir,
barátta hans við lifrar-
bólgu C og opinberar
deilur hans við félaga
sína í Aerosmith. Tyler,
sem er 63 ára, hefur
áður gefið út ævisöguna Walk
This Way árið 1997 í samstarfi
við hljómsveitina.
Söngvarinn hefur vakið
athygli í vetur fyrir góða
frammistöðu sem dómari
í þáttunum American Idol
og skemmir sú athygli sem
hann fær þar væntanlega
ekki fyrir sölu á nýju bókinni.
Dóp og kynlíf í nýrri ævisögu
ÓLIFNAÐUR Sjálfsævisaga
Tylers verður uppfull af
kynlífs- og eiturlyfja-
sögum.
Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds-
son, 12 tónar, Smekkleysa plötubúð, Havarí, Elkó, tonlist.is
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Skýringar:
TÓNLISTINN
Vikuna 7. - 13. apríl 2011
LAGALISTINN
Vikuna 7. - 13. apríl 2011
Sæti Flytjandi Lag
1 Adele ...................................................Someone Like You
2 Bubbi Morthens................................................... Ísabella
3 Vinir Sjonna.............................................. Coming Home
4 P!nk .............................................................F**kin‘ Perfect
5 Jessie J ..................................................................Price Tag
6 Ingó .......................................................................... Fanney
7 Valdimar Guðm. & Memfismafían... Okkar eigin Osló
8 Adele .................................................Rolling in the Deep
9 Magni .....................................................Ég trúi á betra líf
10 Hvanndalsbræður ......................................................Koss
Sæti Flytjandi Plata
1 Megas og Senuþjófarnir ..... (Hugboð um) vandræði
2 Justin Bieber ....................................................My Worlds
3 Sin Fang ................................................. Summer Echoes
4 Skálmöld ...................................................................Baldur
5 Svavar Knútur ..........................................................Amma
6 Eagles.........................................Complete Greatest Hits
7 Adele .................................................................................. 21
8 Valdimar ............................................................Undraland
9 Elly Vilhjálms .......................................... Heyr mína bæn
10 Úr leikriti ......................................Ballið á Bessastöðum
TV on the Radio frá Brook-
lyn í New York hefur gefið
út plötuna Nine Types of
Light. Hljómsveitin er
þekkt fyrir að hrista saman
ýmsar tónlistarstefnur
í litríkan og bragðgóðan
kokkteil.
Bandaríska hljómsveitin TV on the
Radio hefur frá upphafi blandað
saman ýmsum tónlistarstefnum,
þar á meðal rokki, fönki, dans-
tónlist, djassi og sálartónlist með
athyglisverðum árangri. Nýjasta
hljóðversplata sveitarinnar, Nine
Types of Light, er nýkomin út og
fylgir hún eftir hinni vel heppn-
uðu Dear Science sem kom út fyrir
þremur árum.
TV on the Radio var stofnuð í
Brooklyn í New York árið 2001 af
söngvaranum Tunde Adebimpe,
sem er ættaður frá Nígeríu, og
gítar- og hljómborðsleikaranum
David Andrew Sitek. Fyrsta plat-
an, Ok Calculator, kom út árið 2002
og var gefin út af þeim Adebimpe
og Sitek. Skömmu síðar gekk Kyp
Malone til liðs við þá félaga og út
kom EP-platan Young Liars sem
fékk fínar viðtökur gagnrýnenda.
Á svipuðum tíma spilaði TV on the
Radio á Iceland Airwaves hátíð-
inni þar sem hún sýndi og sann-
aði að stórir hlutir væru í vændum.
Árið 2004 kom út fyrsta
„alvöru“ hljóðversplata sveitar-
innar, Desperate Youth, Blood
Thirsty Babes, og hlaut hún hin
virtu Shortlist-tónlistarverðlaun
í Bandaríkjunum. Tilnefningar
til þeirra fá þær plötur sem hafa
selst undir hálfri milljón eintaka
og hlaut til að mynda Sigur Rós
þessi sömu verðlaun fyrir Ágætis
byrjun þegar þau voru fyrst veitt
2001.
Næsta hljóðsversplata TV on the
Radio, Return to Cookie Mountain,
kom út 2006. Hún fékk mjög góða
dóma og var kjörin plata ársins af
tímaritinu Spin. Góðir gestir komu
þar við sögu, meðal annars David
Bowie, sem hafði áður lýst yfir
aðdáun sinni á sveitinni. Fjórða
platan, Dear Science, kom svo út
tveimur árum síðar. Hún hlaut enn
betri dóma og jók vinsældir TV on
the Radio til muna. Rolling Stone,
Pitchfork, Spin og Guardian hrif-
ust af innihaldinu og völdu Dear
Science bestu plötu ársins.
Árið 2009 tilkynnti Tunde Ade-
bimpe að TV on the Radio ætlaði í
árs frí. Sama ár gaf Kyp Malone
út sólóplötu undir nafninu Rain
Machine og sólóplata frá Dave
Sitek kom einnig út undir nafninu
Maximum Balloon þar sem Karen
O úr Yeah Yeah Yeahs og David
Byrne úr Talking Heads voru á
meðal gesta.
Upptökur á Nine Types of Light
hófust síðan í fyrra í heimahljóð-
veri Siteks í Los Angeles en þang-
að flutti hann til að breyta um
umhverfi. Platan hefur fengið góða
dóma eins og fyrri verk sveitar-
innar. Fjórar stjörnur af fimm
mögulegum hjá Rolling Stone,
Uncut og Spin bera vott um að
hljómsveitin sé enn á meðal þeirra
allra fremstu þegar tilraunakennd
og margslungin tónlist er annars
vegar.
freyr@frettabladid.is
Spennandi tónlistarkokkteill
STOFNANDI Söngvar-
inn Tunde Adebimpe
er annar af stofnmeð-
limum hljómsveitar-
innar TV on the Radio
sem var að senda frá
sér nýja plötu.
NORDICPHOTOS/GETTY
Fimmtudaginn
14. apríl kl. 20.00
Landsþekktu rithöfundarnir þau Kristian Olsen Aaju og Mariane Petersen frá Grænlandi kynna ritverk sín.Kristian Olsen Aaju er í ár tilnefndur til bókmenntaverðlauna Norður-landaráðs fyrir bók sína Det
Tatoverede Budskap og Mariane Petersen ljóðasafn sitt: Storfangerens
Efterkommende. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
NORRÆNA
HÚSIÐ KYNNIR:
HÖFUNDA-
KVÖLD #1
„Bækur eru saklausir hlutir, en rithöfundar eru ægilegar verur“.Þórbergur Þórðarson, Mitt rómantíska æði.