Fréttablaðið - 14.04.2011, Blaðsíða 16
14. apríl 2011 FIMMTUDAGUR16 16
hagur heimilanna
Umfelgun
2.990frá kr.
Farþegar Sumarferða í ferð
til Tenerife í fyrra hafa
fæstir heyrt af úrskurði um
að fyrirtækið eigi að bæta
sólarhringstöf sem varð á
brottförinni. Forstjórinn
segir flesta hafa verið sátta
með þær bætur sem fyrir-
tækið bauð á þeim tíma.
Mæðgur sem keypt höfðu vikuferð
til Tenerife í byrjun júní í fyrra
fengu einn sjöunda hluta ferðar-
innar endurgreiddan auk annarra
bóta vegna þess að brottför tafðist
um einn dag.
Um tvö hundruð manns voru í
hóp sem fara átti með Sumarferð-
um til Tenerife 31. maí í fyrra.
Flugvél frá Iceland Express sem
flytja átti hópinn utan var ekki til
reiðu þegar kom að áætlaðri brott-
för klukkan níu um morguninn.
Bilun var í framrúðu vélarinnar
sem fór ekki í loftið fyrr en klukk-
an fimm næsta morgunn. Í milli-
tíðinni var búið að ganga á með
breytilegum tilkynningum til far-
þeganna um væntanlegan fram-
gang mála. Mægðunum bauðst að
fá fimmtán þúsund króna gjafa-
bréf frá Sumarferðum í bætur en
það þáðu þær ekki.
Konan kærði málið til úrskurð-
arnefndar Samtaka ferðaþjónust-
unnar og Neytendasamtakanna.
Í úrskurði nefndarinnar segir
um frásögn konunnar að hún hafi
verið orðin afar þreytt við komuna
til Tenerife enda þá verið búin að
sofa lítið í tvær nætur. Vikuferðin
í raun verið orðin fimm daga ferð.
„Til að mynda hafi hún ekki treyst
sér til að hjóla um eyjuna, en það
hafi verið aðaltilgangur ferðarinn-
ar, fyrr en á þriðja degi,“ segir í
úrskurðinum.
Sumarferðir sögðu úrskurðar-
nefndinni að fyrirtækið væri ekki
skaðabótaskylt því seinkunin hafi
verið ófyrirsjáanleg. Farþegum
hefði þó verið boðin endurgreiðsla
vegna einnar gistinætur á hóteli
og auk þess fimmtán þúsund króna
inneignarnóta hjá fyrirtækinu.
Úrskurðarnefndin sagði að
Sumar ferðum bæri að endurgreiða
mæðgunum upphæð sem svaraði
til eins sjöunda hluta af vikuferð-
inni og bætur að auki fyrir flutn-
ing til og frá flugvellinum og
greiðslu fyrir hressingu á flug-
vellinum, samtals 61.044 krónur.
Úrskurðurinn var kveðinn upp í
nóvember síðastliðnum en Sumar-
ferðir hafa þó ekki kynnt hann
fyrir öðrum úr ferðahópnum. Ein-
hverjir farþeganna hafa þó haft
pata af úrskurðinum og náð að fá
endurgreiðslu í samræmi við hann.
Þorsteinn Guðjónsson, forstjóri
fyrirtækisins, segist ekki telja það
í verkahring þess að gera viðvart
um slíka úrskurði í máli einstakra
viðskiptavina. „Hvert mál er sér-
stakt og við náðum sátt við alla
aðila nema þessa tvo sem við gerð-
um síðan upp við í samræmi við
úrskurð nefndarinnar, enda mun-
aði afar litlu á því sem við buðum
og því sem nefndin úrskurðaði,“
segir forstjórinn. gar@frettabladid.is
TENERIFE Kona sem ætlaði að verja viku á Tenerife var svo útkeyrð eftir sólarhrings
töf á fluginu frá Keflavík að hún megnaði ekki fyrr en á þriðja degi að hjóla um
eyjuna eins og hún segir hafa verið megintilgang ferðarinnar.
2 bollar vatn
4 pakkar matarlím
15-20 dropar af ilmkjarnaolíu
(Essential oil) fæst m.a. í Heilsu-
húsinu
1-2 msk. salt
matarlitur
Blandið saman einum bolla af
vatni, ilmkjarnaolíunni og matar-
litnum og hitið í potti þangað til
sýður. Takið af hellunni og blandið
matarlími og salti saman við, látið
leysast upp. Setjið síðan afganginn
af vatninu út í pottinn og hrærið
vel saman en varlega svo það
freyði ekki.
Hellið í sótthreinsaða krukku
með loki og kælið í ísskáp í sólar-
hring. Stingið síðan nokkur göt á
lokið og þá eruð þið komin með
ykkar eigin ilmkrukku. Gleymið
alls ekki saltinu því annars myglar
gelið. Setjið krukkuna upp á skáp
inni á baðherbergi eða þar sem
þörf er á.
GÓÐ HÚSRÁÐ Ilmgel
Góð leið til að losna við vonda lykt
Bætur fyrir eins dags
töf á ferð til Tenerife
Neytendasamtökin hafa fengið í kringum 200 fyrirspurnir og erindi vegna
húsaleigumála það sem af er árinu. Það jafngildir um 800 á ári, en í fyrra
voru erindi vegna húsaleigumála 414 og aðeins 218 árið 2009. Fyrirspurn-
irnar eru mjög fjölbreyttar, segir á vef Neytendasamtakanna, og ljóst að þörf
leigjenda fyrir aðstoð og ráðgjöf af þessum toga er mikil. Engin leigjenda-
samtök eru starfandi og hafa Neytendasamtökin reynt að aðstoða leigj-
endur en munu ekki geta haldið því áfram ef fram heldur sem horfir.
■ Húsaleiga
Neytendasamtökin fá fjölda fyrirspurna
KRÓNUR var verð á einum miða í Þjóðleikhúsið árið 2010. Árið 2000 kostaði miðinn 2.100 krónur
og árið 1980 kostaði hann 40 krónur. Heimild: Hagstofan
„Mín bestu kaup voru þegar ég fékk mér
einkaþjálfara,“ segir Eyþór Arnalds,
tónlistarmaður og bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokks í Árborg. „Það var fyrir
um sjö árum og þannig lærði ég
að koma mér í form.“ Eyþór segist
hafa tekið sig alveg í gegn með
hjálp einkaþjálfarans eftir að hafa
horfst í augu við þann raunveru-
leika að hafa fitnað og áttað sig á
því að nauðsynlegt væri að huga
að heilsunni til framtíðar. „Með því
að kaupa þjónustu einkaþjálfara lærði
maður agann og því verður miklu meira
úr æfingunum,“ segir Eyþór.
Þegar bæjarfulltrúinn er spurður um
verstu kaup sín kom tvennt upp í hugann.
Annars vegar hlutabréf í Skjá 1, sem voru að
mati Eyþórs ekki góð kaup, og hins vegar
bensínið.
„Það er orðið afskaplega endingarlítil
fjárfesting,“ segir hann.
NEYTANDINN: EYÞÓR ARNALDS BÆJARFULLTRÚI Í ÁRBORG
Einkaþjálfarinn hefur
margborgað sig
3.900
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki