Fréttablaðið - 14.04.2011, Síða 14
14. apríl 2011 FIMMTUDAGUR14
Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins 2011
Fréttablaðið veitir í dag Samfélagsverðlaun í sjötta sinn. Verðlaunin eru sem fyrr veitt í fjórum flokkum, auk heiðursverðlauna. Að
þessu sinni eru þrír tilnefndir í hverjum flokki og eru þeir kynntir hér á síðunni. Í dag kemur í ljós hver verðlaunin hlýtur í hverjum
flokki, auk þess sem heiðursverðlaunahafinn verður kynntur. Markmið verðlaunanna er að vekja athygli á margvíslegum góðverkum.
Athygli vakin á góðum verkum
JÓN STEFÁNSSON
Jón Stefánsson hefur stýrt
tónlistar starfi í Langholtskirkju
um áratugaskeið. Kórstarf Jóns
í Langholts -
k i rkju me ð
börnum og ung-
mennum hófst
árið 1991. Nú
starfa í kirkj-
unni Krúttakór
fyrir yngstu
börnin, Kórskóli
Langholtskirkju
tekur svo við, þá
Graduale Futuri fyrir 10 til 14 ára
börn og unglingakórinn Graduale-
kór Langholtskirkju. Graduale
Nobili er svo úrvalskór stúlkna
sem sungið hafa í Graduale-
kórnum. Tónlistar uppeldi Jóns í
Langholtskirkju hefur opnað heim
tónlistar fyrir fjöldamörgum börn-
um og unglingum og skilað hæfu
tónlistarfólki.
MÖGULEIKHÚSIÐ
Möguleikhúsið er atvinnuleikhús
sem í meira en tuttugu ár hefur
staðið að metnaðarfullum leiksýn-
ingum fyrir börn. Leikhúsið hefur
á starfstíma sínum fært upp meira
en þrjátíu leiksýningar og var síð-
asta frumsýningin fyrir fáeinum
vikum. Þorri sýninga leikhússins
fer fram í leik- og grunnskólum
landsins og er markmiðið með því
að gefa sem flestum börnum og
unglingum kost á að njóta sýninga
þess. Hjónin Pétur Eggerz og Alda
Arnardóttir hafa staðið að Mögu-
leikhúsinu frá upphafi.
SKÓLAHREYSTI
Skólahreysti er liðakeppni í nokkr-
um íþróttagreinum milli grunn-
skóla í landinu. Í hverju liði keppa
tvær stelpur og tveir strákar úr
9. og 10. bekk eftir ákveðinni for-
skrift. Keppt var í fyrsta sinn í
Skólahreysti árið
2005 en þá tóku
sex skólar þátt.
Keppninni hefur
vaxið fiskur um
hrygg og nú keppa
yfir 130 skólar
í Skólahreysti.
Hjónin Andrés
Guðmundsson og
Lára B. Helga-
dóttir reka Skóla-
hreysti, sem er
byggð á þeirri
hugsjón að hvetja börn til alhliða
íþróttaupplifunar sem byggð er
á grunnforsendum almennrar
íþróttakennslu.
Frá kynslóð til kynslóðar
Til greina koma þeir sem hafa unnið eftirtektarvert starf í þágu menntunar, uppfræðslu eða umönnunar þeirrar
kynslóðar sem er að vaxa úr grasi, jafnt einstaklingar sem samtök eða stofnanir.
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ STYRMIR
Einkunnarorð Íþróttafélagsins
Styrmis eru „fyrirmyndir, ekki
staðalímyndir“. Uppruna félags-
ins má rekja til þess að nokkrum
hommum var safnað saman til að
spila fótbolta á Klambratúni fyrir
tæpum fimm árum. Óhætt er að
segja að boltinn hafi rúllað síðan.
Nú skipta meðlimir Styrmis tugum
og æfðar eru þrjár íþróttagreinar
undir merkjum félagsins: fótbolti,
sund og blak. Markmið Styrmis er
að ná góðum árangri í keppni en
um leið að setja þátttöku ofar sigri.
LISTASMIÐJAN LITRÓF
Listasmiðjan Litróf starfar í Fella-
og Hólakirkju. Markmið lista-
smiðjunnar er annars vegar að
bjóða börnum upp á söng, dans og
leiklist og hins vegar að stuðla að
vináttu og sterk-
ari tengslum milli
barna af erlend-
um uppruna og
íslenskum. Öll
börn eru velkom-
in í listasmiðj-
una og þar eru
engin þátttöku-
gjöld. Starfið ein-
kennist af látleysi og einfaldleika
en unnið er að því að laða fram
hæfileika hvers og eins og styrkja
sjálfsmynd. Starfsemin hófst með
tíu stelpum haustið 2008 en í haust
hófu sjötíu stelpur leikinn í Litrófi.
Ragnhildur Ágústsdóttir stýrir
listasmiðjunni.
POLLAPÖNK
Pollapönk varð upphaflega til
fyrir fimm árum sem lokaverk-
efni tveggja leikskólakennara frá
Kennaraháskóla Íslands, þeirra
Haraldar Freys Gíslasonar og
Heiðars Arnar Kristjánssonar.
Síðar bættust Arnar Gíslason og
Guðni Finnsson í hópinn. Mark-
miðið með Pollapönki er að búa til
tónlist sem höfðar bæði til barna
og fullorðinna. Strákarnir í Polla-
pönki eru mikilvægar fyrirmyndir
með því að vera í senn sannkallað-
ir töffarar og um leið stoltir starfs-
menn leikskóla.
Til atlögu gegn fordómum
Til greina koma einstaklingar eða félagasamtök sem hafa unnið ötullega að því að eyða fordómum í samfélaginu.
ÁSMUNDUR ÞÓR KRISTMUNDSSON
Ásmundur Þór er björgunarsveitarmaður en var í
skemmtiferð í Þórsmörk þegar hann vann þar björg-
unarafrek í ágúst 2010. Hann lét ekki axlarmeiðsl sem
hann glímdi við hindra sig í að vaða út í Krossá til að
bjarga tveimur ferðamönnum sem höfðu fest bíl sinn í
ánni. Ásmundur batt kaðal við sig og náði fyrst mann-
inum upp á bakkann. Hann var þá þegar þrekaður en óð
samt að nýju út í ána og sótti konuna.
JÚLÍANA SIGNÝ GUNNARSDÓTTIR
Júlíana Signý hefur hátt í fjörutíu ár tekið sér fyrir hend-
ur að safna gjöfum fyrir jól, pakka þeim fallega inn og
gefa svo heimilislausu fólki gegnum gistiskýlið í Þing-
holtsstræti og Konukot. Framan af var verkið unnið
gegnum félagasamtök en síðari ár hefur frumkvæðið og
framkvæmdin alfarið verið Júlíönu, sem vitanlega nýtur
stuðnings góðra fyrirtækja, þeirra sömu ár eftir ár. Starf
Júlíönu er dæmi um góðverk sem unnin eru í hljóði, í
þessu tilviki áratug eftir áratug.
STEFÁN HELGI STEFÁNSSON
Stefán Helgi Stefánsson og Margrét Sesselja Magnús-
dóttir standa saman að verkefninu Elligleði. Þau fara á
milli staða þar sem fólk með heilabilun dvelur og Stefán
Helgi, sem er tenórsöngvari, syngur gömul íslensk lög
fyrir fólkið. Mikil ánægja ríkir með heimsóknir Elli-
gleði bæði meðal eldri borgaranna sjálfra og aðstand-
enda þeirra og starfsfólks. Starfsemin er rekin á tilfall-
andi styrkjum.
Hvunndagshetja
Til greina koma einstaklingar sem sýnt hafa einstaka ósérhlífni eða hug-
rekki, hvort sem er í tengslum við einn atburð eða vinnu að ákveðnum
málaflokki í lengri tíma.
GÓÐI HIRÐIRINN
Markmiðið með starfsemi Góða
hirðisins er tvíþætt. Í fyrsta lagi
að stuðla að því að nytjahlutir sem
eru hættir að koma að gagni á
einum stað verði öðrum til gagns og
gleði. Í öðru
lagi rennur
allur ágóði
sölu í Góða
hirðinum
til góðgerð-
armála. Endurnýting stuðlar að
betri umgengni við umhverfið og
er veruleg kjarabót fyrir þá fjöl-
mörgu sem kaupa það sem þá vant-
ar til heimilisins í Góða hirðinum.
Umfang starfseminnar hefur aukist
ár frá ári og aldrei hefur framlag
Góða hirðisins til góðgerðarmála
verið hærra en í fyrra.
REYKJADALUR Í MOSFELLSDAL
Í Reykjadal hafa verið rekn-
ar sumar búðir í nærri hálfa öld.
Þar dvelj-
ast árlega
milli tvö og
þrjú hundr-
uð börn af
öllu land-
inu. Á sumrin býðst sumardvöl,
í eina eða tvær vikur í senn, en
yfir vetrarmánuðina er þar boðin
helgar dvöl. Útivera skipar veiga-
mikinn sess í starfinu í Reykjadal,
meðal annars í sundi og heitum
potti sem þar er. Í Reykjadal starf-
ar drífandi hópur ungs metnaðar-
fulls fólks. Það kom sér vel þegar
útlit var fyrir að leggja þyrfti
vetrar dvöl barna í Reykjadal niður
vegna fjárskorts. Þá efndi starfs-
fólkið til áheitagöngu og tókst að
safna fé til að halda starfseminni
gangandi í vetur.
SAMTÖK KVENNA AF ERLENDUM
UPPRUNA
Markmið Samtaka kvenna af
erlendum uppruna er að vinna að
jafnrétti og jafnri stöðu kvenna af
erlendum uppruna á öllum sviðum
þjóðlífsins. Samtökin hafa lagt sig
fram um að breyta einsleitri mynd
erlendra kvenna á Íslandi, meðal
annars með virkri þátttöku í opin-
berri umræðu um innflytjendamál
og framlagi til menningarviðburða
sem tengjast fjölmenningarlegu
samfélagi. Samtökin hafa starfað
frá árinu 2003.
Samfélagsverðlaun
Til greina koma félagasamtök sem hafa unnið framúrskarandi mann-
úðar- eða náttúruverndarstarf og lagt sitt af mörkum til að gera íslenskt
samfélag betra fyrir okkur öll.
Í upphafi árs var lýst eftir tilnefningum til Samfélagsverðlauna frá lesendum
blaðsins.
Sem fyrr barst fjöldi tilnefninga og hafði dómnefndin úr nógu að moða
þegar hún tók til starfa. Hennar hlutverk var að útnefna þrjá í hverjum flokk-
anna fjögurra og því næst heiðursverðlaunahafann og vinningshafana.
Að þessu sinni sátu í dómnefnd: Steinunn Stefánsdóttir aðstoðarritstjóri
Fréttablaðsins, formaður, Anna Kristinsdóttir, mannréttindastjóri Reykja-
víkurborgar, Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, Felix Bergsson,
leikari með meiru, og séra Jóna Hrönn Bolladóttir.
Dómnefndin
Sumarvaran er komin
Opið:
Má. - Fö. 12 - 18 - Lau. 12 - 16 - Sun. 13 - 16
Kauptúni 3 • 210 Garðabær • S 771 3800 • www.signature.is