Fréttablaðið - 14.04.2011, Page 18
18 14. apríl 2011 FIMMTUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
Forstöðumenn gegna mikil-vægum hlutverkum í
íslenskri stjórnsýslu og á þeim
brennur að reka stofnanir sam-
félagsins með sem bestum og
hagkvæmustum hætti. Forstöðu-
menn eru einnig lykilhópur við
að innleiða nýsköpun og umbæt-
ur í íslenskri stjórnsýslu til þess
að hægt sé að veita samfélaginu
góða þjónustu þrátt fyrir lækk-
andi fjárveitingar.
Því miður er nú svo komið að
í öllu umbótastarfinu blasir við
það vandamál að forstöðumenn
upplifa að þeir séu beittir órétti af
hendi stjórnvalda á sama tíma og kröfur til
þeirra eru meiri en nokkru sinni fyrr.
Stétt forstöðumanna ríkisstofnana, sem
hvorki hefur samningsrétt né verkfalls-
rétt, hefur umfram aðra hópa í samfélag-
inu orðið fyrir óréttlátum aðgerðum í kjöl-
far hruns íslensks efnahagslífs í árslok
2008. Laun voru lækkuð og fryst með laga-
setningu í tvígang og hefur kaup máttur
þessa hóps lækkað um 10% umfram aðra
sambærilega hópa síðan í árs-
byrjun 2009. Ákvæðum laga
um frystingu og launalækkun
var aflétt 1. desember 2010 en
þrátt fyrir það hafa kjörin ekki
verið leiðrétt til fyrra horfs þó
að lög um Kjararáð tilgreini að
svo skuli gert. Þetta verður að
teljast afar slæm stjórnsýsla og
mögulegt lögbrot á sama tíma
og stjórnvöld gera kröfur um að
vinnubrögð verði bætt í stjórn-
sýslunni í heild.
Forstöðumenn geta og vilja
standa vaktina á fullum krafti
í krefjandi verkefnum en þeir
þurfa að fá eðlilega og sanngjarna umbun
fyrir störf og árangur. Það er órökrétt að
forstöðumenn fái neikvæð skilaboð í formi
óréttlætis af hendi stjórnvalda þegar þeir
þurfa á hvatningu og stuðningi að halda.
Eðlileg laun og samhengi á milli árangurs
og umbunar er hluti af nauðsynlegu
umbótastarfi í íslenskri stjórnsýslu. Ella
er hætta á atgervisflótta með ófyrirséðum
afleiðingum.
HALLDÓR
Forstöðu-
menn gegna
mikil vægum
hlutverkum
í íslenskri
stjórnsýslu.
Leiðrétt
Björgólfur Thor Björgólfsson boðaði
í Fréttablaðinu í gær leiðréttingar á
„augljósum villum, röngum álykt-
unum og hreinum uppspuna,“ sem
um hann er að finna í skýrslu rann-
sóknarnefndar Alþingis.
Munu þær birtast á
vef hans btb.is. Fengur
verður að því efni eins
og öðru sem kemur frá
Björgólfi.
„Sellerinn“
með gullúrið
Fróðlegt verður
að sjá hvort
hann leiðréttir eftirfarandi frásögn
Össurar Skarphéðinssonar í skýrsl-
unni:
„[Landsbankamenn] [k]omu að
kynna okkur eitthvað, frábært tilboð.
Og hann [Björgólfur Thor Björgólfs-
son] sat þarna í sínum flottu
fötum, ofsalegur „seller“, að
selja eitthvað sem gekk út á
það að þeir áttu að fá Glitni
ókeypis og fá alla skapaða hluti
og síðan allan gjaldeyrisforð-
ann og eitthvert
„guarantee“
til viðbótar.
Og Halldór
Kristjáns-
son sat þarna svona eins og laminn
hundur og tók ekki mikið undir
þetta. Svo var þessi fundur búinn,
Sigurjón var þarna, það voru snúðar
á borðunum, skornir í tvennt, stórir
snúðar. Sigurjón er nú munnstór
maður og mikill og þegar þeir
voru farnir út og hann var einn
eftir þá tók hann svona hálfan
snúð, tróð honum upp í andlitið
á sér og skaut undan snúðnum
þessari setningu: Ég hef ekki trú
á þessu, ég hef ekki trú
á þessu. Þá kom svona
hönd með gullúri og
kippti honum út.“
bjorn@frettabladid.is
Umbætur í íslenskri
stjórnsýslu, eða hvað?
Nýsköpunarsjóður tónlistar – Musica Nova
Styrkir vegna starfsársins 2011
Sjóðurinn auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki til nýsköp-
unar í tónlist. Flytjendur og tónleikahaldarar geta sótt um styrk til
að panta tónverk og skal styrkfjárhæðin aðeins notuð til þess.
Umsækjendur ábyrgjast frumflutning verksins.
Í umsókn skal taka fram:
- höfund tónverks
- tímalengd verks
- hljóðfæraskipan
- áætlaða tímasetningu frumflutnings
Þá skal fylgja fjárhagsáætlun verkefnisins sem og ferilskrá um-
sækjanda (flytjanda/tónleikahaldara)
Umsóknir berist til:
Nýsköpunarsjóðs tónlistar – Musica Nova
Laufásvegi 40
101 Reykjavík
Umsóknarfrestur rennur út föstudaginn 6. maí 2011. Póststimpill gildir.
Stjórnmál
Magnús
Guðmundsson
Formaður Félags
forstöðumanna
ríkisstofnana
A
tkvæðagreiðslan um tillögu Sjálfstæðisflokksins um
vantraust á ríkisstjórnina veikti hana en felldi hana
ekki. Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Vinstri
grænna, varð sá þriðji úr þingflokknum til að ganga
úr skaftinu. Meirihluti ríkisstjórnarinnar á þingi er
nú orðinn eins naumur og hann getur orðið.
Það er þó jafnljóst og áður að stór mál sundra stjórnarliðinu og
þótt ágreiningurinn hafi ekki orðið til þess að fella stjórnina er
hún í vandræðum með að taka ákvarðanir í ýmsum málum. Átök-
in um auðlindir, orkustefnu, stóriðjuframkvæmdir og Evrópumál
voru undirliggjandi í málflutn-
ingi ýmissa stjórnarliða. Þótt
ríkisstjórnin hafi staðið af sér
þessa atlögu er ekki líklegra en
áður að hún geti komið saman
atvinnustefnu sem eykur fjár-
festingu og fjölgar störfum í
landinu eins og þarf.
En þótt ríkisstjórnin sé sjálfri
sér sundurþykk og búin að glata stuðningi meirihluta kjósenda
samkvæmt skoðanakönnunum sýndi umræðan og atkvæða-
greiðslan í gærkvöldi ekki síður fram á sundrungu stjórnar-
andstöðunnar. Það er ekki beysin stjórnarandstaða sem ekki
getur öll staðið að því að samþykkja vantraust á ríkisstjórn.
Af ræðum þingmanna var augljóst að núverandi minnihluta-
flokkar bjóða ekki upp á sannfærandi kost í stað núverandi
stjórnar samstarfs, jafnvel þótt þeir næðu meirihluta í kosningum.
Litla framtíðarsýn var að finna í ræðum stjórnarandstæðinga og
sízt af öllu sameiginlega sýn. Hnúturnar gengu á milli andstöðu-
flokkanna, ekki síður en á milli stjórnar og stjórnarandstöðu.
Ekki var heldur neitt hugsanlegt stjórnarsamstarf milli flokka
úr núverandi stjórn og núverandi stjórnarandstöðu í kortunum.
Hvernig ættu til dæmis Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstri græn að
ná saman um orku- eða stóriðjustefnu? Og hvað um Evrópumálin?
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, gerði harða
atlögu að Samfylkingunni vegna afstöðu hennar í Evrópumálum
og sagði augljóst að ESB-aðild væri „í andstöðu við meginþorra
þjóðarinnar og aðildarferlið einungis til þess fallið að auka enn
frekar á sundrungu og erfiðleika hennar“.
Með þessu er Bjarni reyndar kominn í mótsögn bæði við þann
meirihluta kjósenda sem segist ítrekað í könnunum vilja halda
aðildarviðræðum við ESB áfram og við sjálfan sig áður en hann
varð formaður flokks síns, en þá sagði hann í grein hér í blaðinu
að þjóðin ætti í kjölfar aðildarviðræðna að taka ákvörðun um
aðild að ESB. Jafnvel þótt það yrði niðurstaða Sjálfstæðisflokks-
ins að hag þjóðarinnar væri betur borgið utan ESB væri það
„mjög í samræmi við ríka lýðræðishefð í Sjálfstæðisflokknum að
láta málið ganga til þjóðarinnar í kjölfar viðræðna“. Ein ástæða
þess að málflutningur sjálfstæðismanna um kosningar er ekki
sannfærandi er sá vafi sem leikur á að flokkurinn geti gengið í
heilu lagi til þeirra kosninga vegna deilna um Evrópumálin.
Niðurstaðan af umræðunum í gærkvöldi er því miður að öllum
líkindum áframhaldandi vantraust kjósenda á pólitíkinni.
Sundrung í stjórn og stjórnarandstöðu:
Vantraust
á pólitíkina
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
SKOÐUN