Fréttablaðið - 14.04.2011, Síða 19

Fréttablaðið - 14.04.2011, Síða 19
FIMMTUDAGUR 14. apríl 2011 19 Víti að varast Fyrir bráðum aldarfjórðungi tók ég í eina skiptið á ævinni sæti í stjórnskipaðri nefnd. Þessari nefnd hafði verið falið að semja nýtt frumvarp til laga, um erlenda fjárfestingu. Sex karlar sátu í nefndinni. Formaður hennar var Baldur Guðlaugsson, síðar ráðuneytis- stjóri í fjármálaráðuneytinu. Nefndin vann verk sitt vel, að mér fannst, og hafði að nokkrum tíma liðnum samið gagnleg drög að lagafrumvarpi með ýmsum tímabærum nýj- ungum. Á lokasprettinum gerðist það, að flokkshestarn- ir í nefndinni, fulltrúar gömlu helmingaskiptaflokkanna, fóru í gegn um frumvarpsdrögin lið fyrir lið og sögðu: Þessi ákvæði verða aldrei samþykkt í þinginu, svo að við verðum að taka þau út. Þannig fuku nýjungarnar út úr frumvarps- drögunum hver á fætur ann- arri; ein þeirra snerist um heimildir til erlendrar fjárfest- ingar í sjávarútvegi. Eftir stóðu frumvarpsdrög, sem voru eins og reyttur kjúklingur, hvorki fugl né fiskur. Nefndin gafst upp fyrir fram fyrir ímyndaðri andstöðu á Alþingi frekar en að láta reyna á viðbrögð þingsins. Óttablandin valdhlýðni varð góðum ásetningi yfirsterkari. Ísland í hnotskurn. Þjóðin ræður Þessa djúpu gryfju má stjórn- lagaráðið ekki falla í eftir allt, sem á undan er gengið. Það er, sýnist mér, einhugur í ráðinu um, að tillögur þess um breytingar á stjórnarskránni þurfi að leggja í dóm þjóðar- innar án efnislegra afskipta Alþingis eftir þeirri sjálfsögðu reglu, að aðili máls, Alþingi í þessu dæmi, má ekki gerast dómari í eigin sök. Það er til dæmis ekki Alþingis að fjalla um fjölda alþingismanna. Þetta segir sig sjálft. Af þessu helgast sú skoðun, að Alþingi þurfi í samræmi við núgildandi stjórnarskrá að leggja tillögur stjórnlagaráðsins beint í dóm þjóðarinnar. Af þessum sökum er eðlilegt, að stjórnlagaráðið velti fyrir sér, hvaða tillögur séu líklegar til að falla þjóðinni í geð. Ráðið þarf að ræða við þjóðina. Ég met stöðuna svo, að þjóðin óski í ljósi hrunsins gagngerra breytinga á stjórnarskránni. Hrunið er tilefni þess, að Alþingi ákvað að láta endur- skoða stjórnarskrána. Skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis (RNA) mælir afdráttarlaust með breytingum á stjórnarskránni vegna hrunsins. Þannig má líta á verkefni stjórnlagaráðsins sem lið í endurreisn efnahags- lífsins eftir hrun. Tillögur þjóð- fundarins í október 2010 um breytingar á stjórnarskránni eru skýrar umbótatillögur. Til- lögur stjórnlaganefndarinnar, sem birtar voru 6. apríl 2011, eru að sama skapi afdráttar- lausar. Stjórnlagaráðinu ber að lögum að taka mið af tillögum þjóðfundarins og stjórnlaga- nefndar. Það liggur í hlutarins eðli, að tillögum þjóðfundarins, stjórnlaganefndarinnar og síðan stjórnlagaráðsins er ekki ætlað að vera til skrauts, þvert á móti. Við þurfum vegna hrunsins að breyta leikreglunum til að breyta leiknum. Auðlindir í þjóðareign Tökum dæmi, svo að ekkert fari á milli mála. Þjóðfundur- inn og stjórnlaganefnd mæla með því, að ákvæði um þjóðar- eign á auðlindum verði sett í stjórnarskrána. Slíkt ákvæði er hægt að orða og útfæra með ýmsum hætti. Af þeim 23 stjórnlagaráðsfulltrúum, sem lýstu skoðunum sínum á málinu fyrir stjórnlagaþingskosning- arnar í nóvember 2010, sögðust 22 vera hlynntir slíku ákvæði. Af þessu öllu má ráða yfirgnæf- andi líkur þess, að slíkt ákvæði verði hluti af tillögum stjórn- lagaráðsins, þegar upp verð- ur staðið. Slíku ákvæði getur varla verið ætlaður staður í stjórnarskránni upp á punt. Nei, því hlýtur þvert á móti að vera ætlað að breyta gangi leiksins með því að færa þjóð- inni aftur virkt eignarhald á auðlindunum og arðinn af þeim. Þetta er í ljósi reynslunnar ekki jafnauðsótt og það kynni að virðast. Nýlega ítrekaði flokks- þing Framsóknarflokksins þá skoðun flokksins, að ákvæði um þjóðareign á auðlindum verði sett í stjórnarskrána, en lýsti jafnframt andstöðu við fyrn- ingarstefnu ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegsmálum. Í þessu felst, að Framsóknarflokkurinn er í reyndinni hlynntur ákvæði um þjóðareign á auðlindum í stjórnarskrá, en aðeins til málamynda: hann er fús til að breyta leikreglunum, en hann er andvígur breytingum á gangi leiksins. Aðrir flokkar hafa orðið berir að sama tví- skinnungi. Fyrst afhentu flokk- arnir útvegsmönnum kvótann á silfurfati án þess að upplýsa, hvað þeir fengu í staðinn (ætla má, að það hafi verið vænar fúlgur fjár miðað við upplýs- ingar RNA og Ríkisendurskoð- unar um greiðslur og lán bank- anna og skyldra fyrirtækja til stjórnmálaflokka og stjórn- málamanna fyrir hrun). Þegar allt var um garð gengið, þótti sömu stjórnmálamönnum tíma- bært að bæta lífvana ákvæði um þjóðareign inn í stjórnar- skrána. Stjórnlagaráðið þarf að veita þjóðinni kost á virku auðlindaákvæði. Þjóðfundur- inn, stjórnlaganefndin og þjóð- in kalla einum rómi eftir því. Því kalli þurfum við að hlýða. Dauður bókstafur dugir ekki. Í DAG Þorvaldur Gylfason Prófessor Þegar allt var um garð gengið, þótti sömu stjórnmálamönnum tímabært að bæta lífvana ákvæði um þjóðareign inn í stjórnarskrána. Við Íslendingar erum dugleg þjóð, erum tilbúin að vinna myrkranna á milli til að koma ár okkar og fjölskyldunnar vel fyrir borð. Við höfum unnið og unnið og greitt skatta, skatta sem notaðir eru í samfélagsþjónustu. Í dag eru þúsundir fjölskyldna sem standa frammi fyrir því að ævisparn- aðurinn er horfinn, gufaði upp á einni nóttu. Við sitjum eftir undr- andi yfir ástandinu. Við erum ekki með tryggða margfalda eftir- launasjóði, nei, við horfum fram á að eiga ömurlega daga á efri árum borðandi hafragraut í öll mál ef við bregðumst ekki við. Sparifénu sem duga átti okkur á efri árum var stolið frá okkur um hábjartan dag. Nú er okkur boðið að halda íbúðarhúsnæði okkar með 110% veðsetningu. Slík boð eru engum bjóðandi. Við munum aldrei eign- ast í raun húsnæðið sem við erum að þræla fyrir. Við munum greiða fasteignagjöld og standa straum af viðhaldskostnaði en í þágu hverra? Ætlum við að láta þetta yfir okkur ganga? Nei, það gerum við ekki og megum ekki gera. Við krefjumst þess að stökkbreytt lán verði færð aftur til janúar- mánaðar 2008. Annað er ómannúðlegt. Þrælaskuldabönd næstu áratugina Efnahagsmál Ásgerður Jóna Flosadóttir Formaður Fjölskylduhjálpar Íslands Hellisheiðarvirkjun nýtir jarðvarma til rafmagns- og heitavatnsframleiðslu Nýting jarðhita við Gráuhnúka fyrir Hellisheiðarvirkjun Mat á umhverfisáhrifum ÍS LE N SK A /S IA .I S/ O R K 5 45 04 0 4/ 11 Fimmtudaginn 14. apríl kl. 17:00 verður mat á umhverfisáhrifum nýtingar jarðhita við Gráuhnúka fyrir Hellisheiðarvirkjun kynnt almenningi í höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1. Húsið er opið frá kl. 16:30 til 18:30. Þar verða til sýnis kynningarspjöld um framkvæmdina. Kynningarspjöldin verða til sýnis til 10. maí og eru aðgengileg á skrifstofutíma. Allir velkomnir – Orkuveita Reykjavíkur

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.