Fréttablaðið - 14.04.2011, Qupperneq 20
20 14. apríl 2011 FIMMTUDAGUR
Hinn 11. mars reið öflugur jarð-skjálfti sem mældist 9 á Richter
yfir norðausturströnd Japans. Í kjöl-
farið fylgdi flóðbylgja sem reis allt
að 38 metrum og rústaði 500 km af
strandlengjunni. Ég fann greinilega
fyrir skjálftanum og horfði örvænt-
ingarfullur á fyrstu sjónvarps-
útsendingar frá flóðbylgjunni sem
braut niður varnargarðana okkar og
sópaði burt bátum, bílum og húsum
eins og ekkert væri.
Þegar ég komst á hamfarasvæðið
í fylgd neyðarsveita Rauða krossins
horfðist ég í augu við eyðileggingu
sem ég hefði ekki getað ímyndað
mér í mínum verstu martröðum.
Á meira en 60 ára ferli mínum hjá
Rauða krossinum hef ég orðið vitni
að afleiðingum hræðilegra nátt-
úruhamfara. Þessar eru einar þær
verstu sem ég hef séð. Eyðilegging-
in var algjör. Eini samanburðurinn
sem kom upp í huga mér voru mynd-
ir af Osaka, Hiroshima og Nagasaki
í lok síðari heimsstyrjaldar. Jap-
anski Rauði krossinn var með þeim
fyrstu sem brugðust við hamförun-
um. Og minningin um Hiroshima
árið 1945 kom sterkt upp í huga mér
– þar sem sjúkrahús Rauða kross-
ins var eina byggingin sem stóð enn
uppi á sprengjusvæðinu – því Rauða-
krosssjúkrahúsið í Ishinomaki-borg
var eini spítalinn sem enn var starf-
hæfur eftir flóðbylgjuna. Fyrr en
varði fylltist hann af fólki sem slapp
lifandi frá hörmungunum: lífshættu-
lega særðu fólki, fólki sem gat enn
staðið upprétt, börnum sem misst
höfðu foreldra sína, og fólki sem
misst hafði heimili sín.
Þegar ég rita þetta hafa 12.000
manns fundist látnir og meira en
15.000 er enn saknað. Mörg hundr-
uð þúsund manns hafa misst ástvini
sína, heimili sín og lífsviðurværi.
Allt þeirra líf hefur umhverfst á
svipstundu og verður aldrei samt.
En þeir lifðu af og það er enn von.
Ég finn fyrir auðmýkt í garð fólks
um allan heim sem hefur af miklu
örlæti sýnt okkur samúð og sam-
stöðu í verki. Japan er eitt þeirra
landa sem veita hvað mestu fé til
þróunarsamvinnu og neyðaraðstoðar
um allan heim, og við finnum fyrir
miklu þakklæti nú þegar við njótum
góðs af góðmennsku og samúð. Við
munum gæta fyllsta gagnsæis um
hvernig fjármunum sem aflað hefur
verið í okkar nafni verður varið. Nú,
sextán árum eftir jarðskjálftann
mikla í Kobe, munum við nota sömu
aðferðir til að deila út peningum til
fjölskyldna svo þær geti aftur komið
undir sig fótum. Ítarleg grein verður
gerð fyrir því hvernig framlögum
sem safnað var fyrir Rauða kross-
inn verður varið. Við erum ekki
einungis skuldbundin að gera þetta
gagnvart þeim sem hafa gefið fjár-
muni heldur er þetta líka gagnvart
fjölskyldum í Japan sem hafa misst
allt sitt. Það er löng og ströng leið
fram undan við enduruppbyggingu
í Japan. Að auki stafar mikil ógn af
kjarnorkuverinu í Fukushima. Hinar
hrikalegu afleiðingar gætu orðið enn
alvarlegri ef mengun verður vegna
kjarnorkugeislunar. Ástandið minnir
helst á Tsjernobyl, en 25 ár eru nú
liðin frá kjarnorkuslysinu þar.
Tíminn mun lækna flest sár. Eitt
er þó víst: við munum ætíð finna
til ábyrgðar á þeim þúsundum fjöl-
skyldna sem flóðbylgjan hreif með
sér. Við verðum að vera enn betur
undirbúin fyrir hamfarir fram-
tíðarinnar, við verðum að byggja
aftur upp þrautseigju fólks, og við
megum ekki gleyma þeim sem þjást
annars staðar í veröldinni. Þrátt
fyrir að þetta áfall hafi dunið yfir
þjóð mína, finnst mér nauðsynlegt
að horfa fram á veginn og líta til
annarra landa sem nú takast á við
hörmungar. Í Bólivíu og á Srí Lanka
hafa flóð og aurskriður valdið mikl-
um usla, flóttafjölskyldur frá Líbíu
og Fílabeinsströndinni leita hælis í
nágrannalöndum, þurrkar og hung-
ursneyð ógna löndum í Sahelbeltinu
í vestur- og austurhluta Afríku, og í
Tsjad hefur nýlega brotist úr misl-
inga-, kóleru- og heilahimnubólgu-
faraldur.
Hamfarirnar í Japan mega ekki
skyggja á þessar hörmungar heldur
í raun knýja á um enn frekari sam-
stöðu, viðbrögð og þrautseigju á
öllum stigum – hjá einstaklingum,
samfélögum, þjóðum og á alþjóða-
vísu. Þetta er í fyrsta sinn sem við
stöndum frammi fyrir svo marg-
slungnu neyðarástandi, samlegðar-
áhrifum af jarðskjálfta, flóðbylgju
og kjarnorkuvá. Þó að þetta hafi
ekki gerst fyrr verður þetta líkast
til ekki í eina skiptið sem við verðum
að bregðast við svo flóknum ham-
förum. Til að vernda þjóðir heims
verðum við að reyna að sjá fyrir það
óhugsanlega. Við verðum að fjár-
festa í viðbúnaði vegna hamfara og
draga úr ógnum í umhverfinu – til að
mynda hættum á kjarnorku slysum
– og styrkja samfélög svo að þau
geti sjálf verndað íbúa sína. Þetta
er neyðarviðbúnaður. Eina leiðin til
að bregðast við svona hörmungum er
með samhjálp og samhug – í mínu
landi, þínu landi og í öllum löndum
heims – og ákvörðun um að verja
okkur betur svo við séum í stakk
búin til að vernda líf þeirra sem
stendur ógn af hamförum.
Samhugur, samstaða og sam-
ábyrgð – eftir hamfarir í Japan
Japan
Tadateru Konoé
formaður Rauða
krossins í Japan og
formaður Alþjóða
Rauða krossins
Krafa dagsins er að velt verði við hverjum steini til að hag-
ræða og spara, og þá ekki aðeins
fyrir hið opinbera, heldur ekki
síður fyrir heimilin og fjölskyld-
urnar. Hér skal bent á leið innan
heilbrigðisgeirans, sem erlendis
hefur reynst stuðla að betri nýt-
ingu fjármuna og tíma.
Sú leið er að taka upp beint
aðgengi að sjúkraþjálfun, eins
og gefið hefur góða raun víða á
Vestur löndum. Hér á landi hefur
um áraraðir verið sú meginregla
við lýði að framvísa þarf til vísun
frá lækni við komu til sjúkra-
þjálfara.
Í löndum sem tekið hafa upp
milliliðalaust samband skjól-
stæðings og sjúkraþjálfara, styðja
rannsóknir að náðst hefur fram
sparnaður. Þannig sýndi banda-
rísk rannsókn að fjöldi sjúkra-
þjálfunartíma var mun færri hjá
þeim sem komu beint til sjúkra-
þjálfara en hjá þeim sem komu
með beiðni (7,6 á móti 12,2).
Beint aðgengi að sjúkra þjálfun
þekkist víða. Þar fer Ástralía
fremst í flokki en þetta fyrir-
komulag hefur tíðkast þar í meira
en aldarfjórðung. Bretlandseyjar
að hluta og flest ríki Bandaríkj-
anna hafa tekið upp beint aðgengi
að sjúkraþjálfun, sem og Hollend-
ingar, svo fáein dæmi séu nefnd.
Niðurstöður rannsókna á beinu
aðgengi að sjúkraþjálfun benda
ekki aðeins til fjárhagslegrar hag-
kvæmni heldur batnaði jafnframt
þjónustan. Skjólstæðingar fengu
fyrr úrlausn sinna mála og þurftu
því styttri meðferð.
Beint aðgengi að sjúkra þjálfun
hérlendis þýddi milliliðalausa
þjónustu með minni kostnaði fyrir
skjólstæðinginn. Hann þyrfti ekki
að verja fjármunum og tíma í
heimsókn á heilsugæsluna eða til
sérfræðilæknis, sem myndi létta
á álagi þar og draga úr kostnaði
ríkis ins. Samfélagslegur ábati
fengist jafnframt með minni fjar-
veru frá vinnu.
Lítið dæmi sýnir að við gætum
verið að tala um verulegar fjár-
hæðir í ljósi þess að um 35 þús-
und manns notfæra sér þjónustu
sjúkraþjálfara árlega. Ef helm-
ingur þeirra, sem koma í 25 með-
ferðir eða færri, sparar sér eina
læknisheimsókn vegna tilvísunar,
sparast tæplega 16 þúsund læknis-
heimsóknir. Sparnaður heimila og
ríkis hleypur á tugum milljóna, og
er þó varlega áætlað.
Nú kynni einhver að spyrja: Er
beint aðgengi að sjúkraþjálfun
hættulegt heilsu og öryggi fólks?
Reynslan erlendis frá bendir til
að slíkar áhyggjur séu óþarfar.
Bandarísk tryggingafélög lýstu
því yfir, að lögsóknum vegna með-
ferða fjölgaði ekki þar sem beint
aðgengi hafði verið lögleitt. Rann-
sóknir hafa einnig sýnt að fagleg
ábyrgð sjúkraþjálfara er mikil.
Þeir vísi sínum skjólstæðingum
til læknis eða beri málefni þeirra
undir lækni sé þess þörf.
Í dag er samráð við lækna bund-
ið í lög. Á meðan svo er eru sjúkra-
þjálfarar ekki fullkomlega faglega
sjálfstæðir, ólíkt því sem gildir til
dæmis um hjúkrunarfræðinga og
ljósmæður.
Samskipti lækna og sjúkraþjálf-
ara hafa aftur á móti almennt
verið mjög góð og gagnkvæm
virðing er mikil. Góð samvinna er
og verður ávallt mjög mikilvæg.
Þegar öllu er á botninn hvolft er
það umhyggjan fyrir skjólstæð-
ingum okkar sem skiptir öllu máli.
Bætt þjónusta –
minni útgjöld
Heilbrigðismál
Þorgerður
Sigurðardóttir
sjúkraþjálfari M.Sc.
Hinar hrikalegu
afleiðingar gætu
orðið enn alvarlegri.
Er du et konsulenttalent?
Itera Consulting har store vekstambisjoner, og er på utkikk etter nye konsulenttalenter.
Hvis du har stor faglig interesse for systemutvikling og ser etter et sterkt fagmiljø der du
kan utvikle deg videre så kom og treff oss på EURES Islands jobbmesse 15. og 16.
April i Rádhus Reykjavikur - vi gleder oss til å treffe deg!
Senior Sharepointkonsulenter
Min. 3 års relevant utdanning
Min. 3 års erfaring fra store leveranser på
SharePoint-plattformen
Du har erfaring med utvikling, paketering og
implementation av løsninger
Du ønsker å delta i hele prosjektets livssyklus,
fra analyse og design til utvikling og imple-
mentasjon
Konsulenter / Seniorkonsulenter,
Java og .NET
Min. 3 års relevant utdanning
Min. 3 års relevant erfaring
Erfaring med systemutvikling og prosjekter
innenfor henholdsvis Java og .NET
Bred og dyp teknologisk kunnskap, spesielt
innenfor de viktigste teknologiene og ram-
meverkene:
Spring/Maven/Hibernate/JSF/JSP/
Struts/Servlets/AJAX (Java)
ASP.NET/ASP.NET MVC/WCF/WPF/
Silverlight (.NET)
.......................................................................................................................................................................................
.......................................................................................................................................................................................
Itera Consulting tilbyr fine lokaler i Oslo, fleksibilitet for pendlere, fastlønn pluss bonus,
stort fokus på faglig utvikling og store muligheter till å påvirke i en flat organisation.
Kontakt Thordur Arnason på: +47 99 63 63 63
thordur.arnason@iteraconsulting.no
............................................