Fréttablaðið - 14.04.2011, Side 26
14. apríl 2011 FIMMTUDAGUR26
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Svissneski náttúrulæknirinn, rithöfundurinn og fyrir-
lesarinn Christopher Vasey heldur tvo fyrirlestra um and-
leg málefni á Hótel Sögu við Hagatorg í kvöld og annað
kvöld. Vasey hefur ritað fjölda bóka um óhefðbundnar
lækningar og andleg málefni sem gefnar hafa verið út á
fjölmörgum tungumálum og er eftirsóttur fyrirlesari í
Evrópu og Norður-Ameríku.
Fyrirlesturinn í kvöld nefnist „Að deyja er að fæðast
fyrir handan“. Þar segir að tilvist manna ljúki ekki með
dauða heldur opni hann sál okkar dyr að handanheimum.
Fyrirlestur morgundagsins er „Þess vegna lifum við eftir
andlátið“. Í því fjallar Vasey ítarlega um okkar innsta sjálf
sem er andi, kjarni sálarinnar, en líkaminn er hjúpur einn.
Fyrirlestrarnir eru á ensku og hefjast klukkan 20.
Aðgangseyrir er 500 krónur. - þlg
Erindi um lífið eftir dauðann
Yfirgripsmikil dagskrá um gosið í Eyjafjallajökli og afleið-
ingar þess verður haldin í Háskóla Íslands í dag í tilefni
þess að eitt ár er liðið frá því að gos hófst í Eyjafjallajökli.
Stuttir fyrirlestrar verða haldnir í stofu 132 og í almennu
rými í Öskju verða tól og tæki jarðvísindamanna og gefst
fólki kostur á því að kynna sér þau og ræða við vísindamenn.
Meðal fyrirlesara eru Magnús Tumi Guðmundsson, pró-
fessor og forseti Jarðvísindadeildar, Eyjólfur Magnússon,
nýdoktor hjá Norræna eldfjallasetrinu, Ingibjörg Jónsdóttir,
dósent við Jarðvísindadeild, og Katrín Anna Lund, dósent
við Líf- og umhverfisvísindadeild.
Viðburðurinn, sem hefst klukkan 17 í dag, er hluti af dag-
skrá Verkfræði- og náttúruvísindasviðs í aprílmánuði í til-
efni aldarafmælis Háskóla Íslands.
- fsb
Eins árs gosafmæli Eyjafjallajökuls
AFMÆLI Þess er minnst í HÍ í dag að ár er frá upphafi goss í Eyja-
fjallajökli. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ANDANS MAÐUR
Christopher Vasey er
eftirsóttur fyrirlesari
víða um heim og heldur
nú tvo fyrirlestra fyrir
Íslendinga um andleg
málefni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Fagmennska í ferðaþjónustu
SKÓGAFOSS Hönnun útsýnispalls verður rædd á málþinginu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
Halldór Halldórsson
fyrrverandi slökkviliðsmaður
Keflavíkurflugvelli,
Sautjándajúnítorgi 7, Garðabæ,
lést á hjartadeild Landspítalans 10. apríl.
Útförin mun fara fram miðvikudaginn 20. apríl
kl. 13.00 frá Vídalínskirkju í Garðabæ.
Vigdís Ketilsdóttir
Halldór Halldórsson Rannveig Rögnvaldsdóttir
Anton Ketill Halldórsson
Ólöf Björk Halldórsdóttir Jónas Friðrik Hjartarson
og barnabörn.
Elskulegur sonur okkar, bróðir, mágur,
frændi og besti vinur
Sigurður Árni Árnason
sem lést á heimili sínu þann 1. apríl sl., verður
jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju föstudaginn
15. apríl kl. 14. Þeim sem vildu minnast hans
er bent á Líknarsjóð Keflavíkurkirkju.
Ásdís Móeiður Sigurðardóttir Árni Guðmundur Árnason
Brynja Árnadóttir Kolbeinn Steinþórsson
Aron Bachmann Árnason
Baldur Þór Kolbeinsson
og Nikki.
Elskulegur pabbi okkar, eiginmaður,
afi, langafi, bróðir og vinur
Ingi Vignir Jónasson
Skessugili 8
lést á Landspítalanum mánudaginn 11. apríl 2011 eftir
langvinn veikindi. Útför fer fram í Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 19. apríl kl 10:30. Við viljum þakka
Starfsfólki á deild 13e, blóðskilunardeild og gjörgæslu
á landspítalanu. Sérstakar þakkir fær Rósa djákni á
Landspítalanum fyrir einstaka, gæsku, alúð og ómet-
an lega aðstoð sem við munum verða ævinlega þakklát
fyrir. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Félag Nýrnasjúkra til að stuðla
að uppbyggingu starfsemi á sjúkrahúsinu á Akureyri.
Sofðu rótt elsku Pabbi. Þín mun verða sárt saknað.
Aðstandendur og aðrir ástvinir.
Ástkær faðir minn, tengdafaðir,
afi og langafi
Jónas Valdimarsson
Kleppsvegi 62,
áður til heimilis að Rauðalæk 23, Reykjavík,
lést laugardaginn 9. apríl. Útförin fer fram frá
Laugarneskirkju miðvikudaginn 27. apríl kl. 11.
Valdemar Steinar Jónasson Unnur Kristinsdóttir
Hrafnkell Tjörvi Stefánsson Davíð Nóel Jógvansson
Arndís Reynisdóttir
Hrólfur Þór Valdemarsson Valdís Karen Smáradóttir
Hilda Valdemarsdóttir Birgir Már Björnsson
Steinar Smári Hrólfsson
Þóra Dís Hrólfsdóttir
Þökkum hjartanlega sýndan hlýhug
og samúð vegna andláts
Guðmundar Sveinssonar
trésmiðs.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Valgerður Jónsdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ólafur Pálsson
Áshamri 55,
lést á Heilbriðisstofnuninni í Vestmannaeyjum
miðvikudaginn 6. apríl. Útförin fer fram frá
Landakirkju föstudaginn 15. apríl kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þórey Guðrún Björgvinsdóttir.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Hulda G Guðjónsdóttir,
Brekkubyggð 12, Garðabæ,
lést á líknardeild Landsspítalans í Kópavogi þriðjudag-
inn 12. apríl sl. Jarðaförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Haukur Geir Garðarsson, Sigríður Huld Garðarsdóttir og
Heimir Garðarsson.
Leifur Vilhelmsson
Jökulgrunni 8,
lést mánudaginn 11. apríl.
Sæunn Eiríksdóttir
Þorsteinn Leifsson
Uppbygging og skipulag ferðamannastaða
verður umræðuefni málþings sem Ferðamála-
stofa efnir til á Grand hóteli dag klukkan 8.30.
Meðal frummælenda er Audun Pettersen frá
Noregi, sem fræðir fólk um fyrirkomulag þess-
ara hluta í sínu heimalandi.
Meðal þess sem rætt verður er kortlagning á
auðlindum ferðaþjónustunnar, hönnun trappna
og útsýnispalla við Seljalandsfoss og Skóga-
foss, vistvæn þjónustuhús og langtímahugsun
í ferðamennsku.
Málþinginu lýkur klukkan 11.30 og síðasta
klukkutímann mun Sævar Kristinsson, ráð-
gjafi hjá Netspori, stjórna umræðuhópum.
Fundarstjóri verður Ólöf Ýrr Atladóttir ferða-
málastjóri. - gun