Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.04.2011, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 14.04.2011, Qupperneq 40
14. APRÍL 2011 FIMMTUDAGUR10 ● fréttablaðið ● brúðkaup Jóhanna Vala Höskuldsdóttir og Eva Rún Snorradóttir gengu í það heilaga fyrir skemmstu og er óhætt að segja að giftingin hafi verið með óhefðbundnu sniði. Kirkja, giftingarhringar og orgel- tónlist voru víðsfjarri þegar Jóhanna Vala Höskuldsdóttir og Eva Rún Snorradóttur giftu sig fyrir skemmstu. Athöfnin fór fram á skemmtistaðnum Barböru, á kvenna og hinsegin uppákomunni Skyndilega greip mig óstjórnleg löngun, og kom vinum og vanda- mönnum í opna skjöldu. „Flestir ráku upp stór augu en þegar þeir urðu þess áskynja hvers kyns var brut- ust út heilmikil fagnaðarlæti,“ segir Vala. Leiðir þeirra Evu lágu saman norður á Ak- ureyri fyrir rúmum þremur árum, „í fimbul- kulda rétt eftir hrun,“ eins og Vala orðar það. „Við kynntumst við uppsetningu á gjörningi sem deildi á íslenska bankakerfið og eitt leiddi af öðru.“ Samband varð að sambúð og eftir búferlaflutning til Reykjavík- ur barst brúðkaup í tal. „Við vorum farnar að spá í framtíðina og langaði heilmikið að gifta okkur. Vild- um hins vegar fara eigin leiðir og jafnframt setja út á hefðbundnar hugmyndir um hjónabandið sem stofnun.“ Lausnin reyndist skammt undan. „Eva hefur um nokkurt skeið átt þátt í að skipuleggja skemmtikvöld á Barböru og okkur datt í hug að helga það næsta trú- lofunum. Þá hugsuðum við með okkur: „Af hverju ekki að ganga skrefinu lengra og bara gifta okkur á staðn- um, enda leitun að jafn viðeigandi giftingarstað fyrir lesbískt par fyrst kirkja var úr myndinni,“ segir Vala. Flestir gestanna mættu síðan í brúðkaupið með öllu grunlausir um hvað væri í vændum. „Við settum því upp hápólitískan gjörning sem hófst sem power point- sýning og fólk vissi því varla hvaðan á sig stóð veðr- ið þegar ég birtist í brúðarkjól, með prest og brúðar- meyjar í eftirdragi.“ Þótt aðstæður væru óvenjulegar var athöfnin bæði hjartnæm og alvöruþrungin. „Presturinn, Auður Eir, flutti fallega ræðu; sagði brúðkaupið í raun vera kaup kaups þar sem við værum tvær konur. Svo lét hún bræður okkar skiptast á örbylgjuofnum og eftir að við höfðum játast hvor annarri hentu brúðarmeyjarnar yfir okkur húlahringjum til að innsigla hjónabandið,“ segir Vala og getur þess að jafnvel harðgerðustu karl- ar hafi þerrað tárin. „Margir sögðu þetta eitt fallegasta brúðkaup sem þeir hefðu upplifað um ævidagana og það þótti okkur dýrmætt að heyra.“ - rve Innsigluðu hjónabandið með HÚLAHRINGJUM Gifting Evu Rúnar og Völu var með óhefðbundnu og skemmtilegu sniði. „Mörgum finnst spennandi að gista til dæmis á hóteli eða í sumarbú- stað á sjálfa brúðkaupsnóttina og jafnvel nokkrar nætur eftir brúð- kaupið en það að breyta um um- hverfi getur verið nóg til að krydda aðeins upp í kynlífinu,“ segir Sigga Dögg kynfræðingur spurð hvort brúðkaupsnóttin hafi enn þá sér- staka merkingu í hugum fólks sem kannski hefur búið saman í mörg ár. „Þar sem brúðkaup geta stað- ið fram eftir nóttu þá getur einnig verið notalegt að koma heim til sín eftir veisluna og fara svo á hótel eða í sumarbústað daginn eftir brúðkaupið. Stundum hafa nánir vinir eða fjölskyldumeðlimir skreytt íbúð brúðhjóna með kampavíni, kertum, jarðar- berjum og rósarblöðum til að skapa rómantíska stemn- ingu. Það mætti svo nýta sér daginn eftir ef brúð- hjón eiga ekki kost á því að breyta um um- hverfi. Þá væri það gott ef einhver gæti komið öllum gjöfunum fyrir heima hjá brúð- hjónunum svo þau þurfi ekki að hafa áhyggjur af því daginn eftir. Mín reynsla er hins vegar sú að eftir að löngum degi lýkur þá lang- ar mann bara heim að sofa. Dag- inn eftir brúðkaupið, þegar stress- ið er búið og sæluvíman situr eftir þá væri sniðugt að opna gjafirnar í rólegheitum og skipta um hugar- far og njóta þess að vera nýgift og kela fram eftir degi.“ En hvað ber að varast á brúð- kaupsnótt? „Of miklar vænting- ar um frábært kynlíf, eða kynlíf yfirhöfuð, er það sem ber að var- ast,“ segir Sigga Dögg. „Ég tel brúðkaupsnæturkynlíf vera mýtu og setja alltof mikla pressu á allan daginn. Mér finnst að fólk eigi að fá að vera í þægilegum undirfötum á brúðkaupsdaginn sjálfan og megi svo fara heim til sín og sofna bara í faðmlögum ef það kýs svo. Næstu daga eftir brúðkaupið má gera sér glaðan dag með tæl- andi blúndu, freyðibaði, heilnuddi og þess hátt- ar punti.“ - fsb Kynlíf á brúðkaups- nótt er bara mýta „Of miklar væntingar um frábært kynlíf, eða kynlíf yfirhöfuð, er það sem ber að varast,“ segir Sigga Dögg. Sigríður Dögg
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.