Fréttablaðið - 14.04.2011, Side 49

Fréttablaðið - 14.04.2011, Side 49
brúðkaup ● fréttablaðið ●FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2011 19 ampírur, ndanna? VIVA LAS VEGAS Brúðkaup í Las Vegas er auð vitað hálfgerð klisja, en borg syndanna hefur óneitanlega aðdráttarafl, þótt fólk hafi kannski ekki áhuga á að láta Elvis-eftirhermu í bíla- lúgu gifta sig. Auk spila vítanna er þar að finna nánast allt sem hugurinn girnist, svo sem há- klassatónleika, skemmtigarða og einhver háþróuðustu heilsu- hótel í heimi. Ætti að vera óhætt að lofa ógleymanlegri brúðkaups- ferð þeirra sem leggja leið sína þangað. HVEITIBRAUÐSDAGAR Í MEXÍKÓ Acapulco í Mexíkó var einhver vinsælasti staður ungra Amerík- ana á brúðkaupsferð á fimmta og sjötta áratugnum. Ekki ómerkari brúðhjón en John F. Kennedy og Jackie eyddu hveitibrauðsdögun- um þar. Síðustu árin hefur Aca- pulco rokið upp vinsældalista brúðkaupsferðaseljenda á ný, enda býður Acapulco upp á nán- ast allt sem fólk dreymir um í frí- inu, fallegt umhverfi, sól og hita, og hlýjan sjó sem ómótstæðilegt er að synda og kafa í. Acapulco er þar fyrir utan til þess að gera ódýr kostur, það er að segja, eftir að fólk er komið á staðinn. Hvert sem leiðin liggur skiptir þó auðvitað mestu máli að njóta þess að vera saman og vera góð hvort við annað hvort sem stefn- an er sett á fimm stjörnu hótel eða tjaldútilegu. Hveitibrauðsdagarn- ir hafa nefnilega forspárgildi um hamingju og endingu hjónabands- ins. - fsb Morgungjöf er að uppruna germanskur siður brúðguma að morgni fyrsta dags nýgiftra hjóna og markaði eins konar reikningsskil á sönnun þess að brúðurin hafi reynst honum óspjölluð á brúðkaupsnóttina. Í nútíma hafa nýbakaðir eiginmenn fært konu sinni persónulega morgungjöf í nafni ástarinnar. Lofa skal mey að morgni Allar konur elska demanta og líta á demantaskart sem ósvikinn tryggðarpant af hálfu eiginmanns- ins. Persónuleg áletrun inni í hring eða aftan á hálsnisti gerir gjöfina enn hjartfólgnari. Óvænt ástarferð á rómantískar slóðir er spennandi morgungjöf, eins og til ástarhofsins Taj Mahal sem lætur engan ósnortinn. Kisur eru margar heimilislausar og hjart- næm gjöf að gefa frúnni fagran kött sem heldur henni félagsskap þegar hennar heittelskaði er fjarri en setur líka heimilis- legan brag á heimilislíf nýgiftra hjóna.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.