Fréttablaðið - 14.04.2011, Síða 60

Fréttablaðið - 14.04.2011, Síða 60
14. apríl 2011 FIMMTUDAGUR32 32 menning@frettabladid.is LJÚFUR LJÓÐASÖNGUR Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzosópran heldur ljóðasöngtónleika í Salnum á laugardag. Með henni á tónleikunum eru þær Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari og Anna Guðný Guð- mundsdóttir píanóleikari. Tónleikarnir verða í Salnum á laugardag og hefjast klukkan 17.00. Eru þetta síðustu tónleikarnir þennan veturinn í Tíbrárröð Salarins. Svonefnd höfundakvöld hefja göngu sína í Norræna húsinu í kvöld klukk- an átta. Þau snúast um norræna höfunda en nokkrir úr hópi þeirra munu sækja Ísland heim á næstu mánuðum og hitta fyrir íslenska lesendur. Kvöldið verður tileinkað grænlenskum höfundum en þau Kristian Olsen Aaju og Mariane Petersen kynna þá verk sín. Kristian Olsen Aaju er þekktur sem rithöfundur, ljóðskáld og lista- maður. Bækur hans fjalla um átökin milli horfins veiðimannasam- félags og iðnaðarsamfélags dagsins í dag. Þess má geta að bók hans, Det tatoverede budskap, var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlanda- ráðs. Mariane Petersen er þýðandi og ljóðskáld. Ljóðsafnið Storfanger- ens efterkommere eftir hana kom nýverið út og sló í gegn á Grænlandi. Jórunn Sigurðardóttir, dagskrárgerðarkona á RÚV, mun ræða við bæði skáldin um verk þeirra og innblástur. - sbt Norræn höfundakvöld „Ljóðið rúllar“ Ljóðaþýðingar Einars Thoroddsens á ljóðabálki Heines, Þýskaland – Vetrarævintýri, eru komnar út. Tvímála útgáfa á íslensku og þýsku 1 3 5 7 9 2 4 6 8 10 Morð og möndlulykt Camilla Läckberg Mundu mig, ég man þig kilja - Dorothy Koomson Djöflastjarnan - kilja Jo Nesbø Ég man þig - kilja Yrsa Sigurðardóttir Konan í búrinu - kilja Jussi Adler Olsen Á réttri hillu Árelía Eydís Guðmundsdóttir METSÖLULISTI EYMUNDSSON SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT 06.04.11 - 12.04.11 Betri næring - betra líf Kolbrún Björnsdóttir Myrkraslóð - kilja Åsa Larsson Máttur viljans Guðni Gunnarsson Handbók um íslensku Jóhannes B. Sigtryggsson ritst. Þrjátíu og átta listaverk eftir íslenska og erlenda samtímalistamenn verða boðin upp í Þjóðmenningar- húsinu á þriðjudag. Verkin verða öll til sýnis í i8 gall- eríi frá og með morgun- deginum fram að uppboði. Uppboðið er til styrktar náttúrusjóðnum Auðlind. Listamenn í fremstu röð gáfu verk sín fúslega, segir Börkur Arnarson hjá i8. Sýning á 38 samtímalistaverkum verður opnuð í gallerí i8 á morg- un, föstudaginn 15. apríl. Verk- in eiga það öll sammerkt að þau verða boðin upp næsta þriðjudag og rennur afraksturinn allur til nátt- úrusjóðsins Auðlindar, sem vinnur að endurheimt landgæða á Íslandi með höfuðáherslu á votlendi. Að sögn Þrastar Ólafssonar, formanns stjórnar Auðlindar, bar sýninguna að með þeim hætti að haft var sam- band við Börk Arnarson hjá i8 og fal- ast eftir samstarfi við hann. „Okkur hjá Auðlind þótti afar gaman að sjá hvað listamennirnir tóku vel í mála- leitan okkar,“ segir Þröstur. Börkur segir að hann hafi um skeið haft hug á að styrkja gott málefni í samstarfi við listamenn og þetta verkefni hafi heillað. Afraksturinn sé svo mjög góður. „Ég er mjög ánægður með samsetninguna á verkunum og tel að sýningin endurspegli samtíma- list afar vel,“ segir Börkur og tekur undir með Þresti að listamennirnir hafi tekið umleitan hans afar vel. „Listamennirnir virtust flestir vera sammála um ágæti og þörf málefnis- ins.“ Börkur valdi listamenn til sam- starfs og eru verkin sem þeir gáfu flest ný. Þess má geta að þetta er í fyrsta sinn sem i8 stendur að upp- boði. „Flestir listamannanna eru enn starfandi, en tveir reyndar látnir, Birgir Andrésson og Dieter Roth. Óhætt að segja að verkin séu fjöl- breytt, þarna eru bæði málverk, skúlptúrar, ljósmyndir og nokk- ur verkanna hafa ekki sést áður,“ segir Börkur sem telur gott tæki- færi til að gera góð kaup á sam- tímalist næsta þriðjudag. Spurð- ur um heildarverðmæti verkanna vildi hann ekki gefa það upp en sagði þau vera á verðbilinu 30.000 til rúmrar milljónar króna. Sýningin verður opnuð klukkan 17 á morgun og verður opin fram á þriðjudag. Uppboðið fer fram í Þjóð- menningarhúsinu á þriðjudag klukk- an 18. sigridur@frettabladid.is Nútímalist boðin upp í þágu votlendis á Íslandi MÁLNINGIN VART ÞORNUÐ Eggert Pétursson málaði þessa mynd sér- staklega fyrir uppboðið til styrktar náttúrusjóðnum Auðlind, sem berst fyrir endurheimt votlendis á Íslandi. Hin verkin eru ljós eftir Ólaf Elíasson og ljósmynd eftir Magnús Sigurðarson. MYND/I8

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.