Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.04.2011, Qupperneq 78

Fréttablaðið - 14.04.2011, Qupperneq 78
14. apríl 2011 FIMMTUDAGUR50 MORGUNMATURINN „Lýsi og latté er bara til að komast út. Stundum fæ ég mér ristað brauð. Á tyllidögum er góður bröns með mimosa, en það er allt of sjaldan.“ Vera Sölvadóttir kvikmyndagerðarkona „Ég vil ekki gefa mikið upp, en það eru stórir hlutir að gerast á FM,“ segir Heiðar Austmann, dagskrárstjóri FM 957. Uppstokkun er væntanleg á FM 957 fyrir sumarið. Tveir útvarps- menn, þeir Yngvi Eysteinsson og Atli Már Gylfason, yfirgáfu útvarpstöðina á dögunum og réðu sig á Flass FM. Heiðar vill ekki gefa upp hvernig starfslokum þeirra var háttað, en óskar þeim góðs gengis á nýjum vettvangi. „Við erum að fara að ráðast í stór verkefni og einhverjar dag- skrárbreytingar,“ segir Heiðar en vill þó lítið tjá sig nánar um hvað sé fólgið í breytingunum. Hann segir að von sé á nýju fólki, en gefur ekki upp um hverja ræðir. „Það er mögulega nýtt fólk á leiðinni. Gætu verið reyndir menn og reyndar konur. Gæti verið fólk sem var á FM áður,“ segir Heiðar dularfullur. Heimildir Fréttablaðsins herma að ýmis þekkt andlit hafi verið kölluð til. Fréttablaðið kannaði málið og upp úr krafsinu kom að Agli Gillz Einarssyni hefði verið boðið að vera með regluleg heils- ávörp á FM. Egill segist ekki hafa áhuga á að starfa í útvarpi og bætti við að hann væri með andlit fyrir sjónvarp. Þá áréttaði hann að útvarpsmennirnir Kalli Lú og Rikki G hentuðu í starfið. Spurður hvenær hlustendur heyri breytingarnar á FM 957 segir Heiðar að það verði fyrr en fólk grunar og játar að um mikla andlitslyftingu sé að ræða. - afb Uppstokkun á FM 957 LEYNDARDÓMSFULLUR AUSTMANN Heiðar Austmann vill lítið gefa upp um væntanlegar breytingar á FM 957 en segir að þær verði talsverðar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Ég var að koma heim frá Ástralíu þar sem við vorum að hljóðblanda nýjustu myndina mína, The Killer Elite, og rakst þá á Jake í flughöfninni,“ segir Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi með meiru. Hann hitti Jake Gyllenhaal á mánudaginn í flugstöð Leifs Eiríkssonar þegar leikarinn var að yfirgefa landið eftir ævintýralega helgi. Eins og Fréttablaðið greindi frá í vikunni var bandaríski stórleikarinn Jake Gyllenhaal staddur hér á landi yfir helgina við tökur á ævintýraþættinum Man vs. Wild sem Bear Grylls stjórnar. Tökur fóru fram í aftakaveðri á Eyja- fjallajökli og Fimmvörðuhálsi en það var True North sem aðstoðaði töku- liðið. Alls unnu tuttugu starfsmenn að tökunum en mikil leynd hvíldi yfir þeim. Leiðir Sigurjóns og Jake Gyllenhaal hafa legið saman áður; Gyllenhaal lék aðalhlutverkið í hinni dramatísku kvik- mynd Brothers sem Sigurjón framleiddi og skartaði einnig Natalie Portman og Tobey Maguire í stórum rullum. „Þetta var algjör tilviljun og það var virkilega skemmtileg að hitta hann. Hann talaði ákaflega fallega um landið og náttúrlega tökurnar uppi á jökli þar sem hann lenti nánast í lífsháska með þessum Bear Grylls,“ segir Sigurjón „Jake átti ekki orð yfir hvað Ísland væri frábært og hann vildi koma hingað aftur sem fyrst í frí. Það hafði víst líka eitthvað að gera með stelpurnar,“ segir Sigurjón kank- vís. -fgg Gyllenhaal hreifst af íslensku stelpunum ÆTLAR AÐ KOMA AFTUR Miklir fagnaðarfundir voru í Leifsstöð á mánudag þegar Sigurjón Sighvatsson og Jake Gyllenhaal hittust fyrir algjöra tilviljun. Eiður Arnarsson, útgáfustjóri afþreyingarfyrirtækisins Senu, hefur misst þrettán kíló síðan hann byrjaði að stunda langhlaup í septem ber ásamt eiginkonu sinni. Hann stefnir á að hlaupa hálf- maraþon (21 km) í Reykjavíkur- maraþoninu í haust. „Það var engin sérstök ástæða fyrir því að ég ákvað að prófa þetta. Það var kominn tími til að reyna að gera eitthvað. Ég var orð- inn aðeins of þungur,“ segir Eiður, sem hafði ekki hreyft sig að ráði síðan hann var kjörinn besti leik- maður 5. flokks B-liða hjá Þór í Vestmannaeyjum árið 1978. Hann fær mikla ánægju út úr hlaupun- um, auk þess sem þau nýtast honum vel í starfinu. „Ég held að þetta sé þetta margfræga endorfínkikk sem margir tala um og ég get ekki hugs- að mér að fara út að hlaupa án þess að hlusta á músík. Fyrir vikið er ég að hlusta ennþá meira en áður.“ Hann hleypur í Elliðaárdalnum fjórum til fimm sinnum í viku, tíu til tuttugu kílómetra í senn. „Ein- hver benti mér á að maður ætti að nota önnur áhugamál inn í þetta til að hjálpa sér. Ég er eins og flest- ir karlmenn með óttalega tækni- dellu og ég er búinn frá fyrsta degi að hlaupa með GPS-staðsetn- ingarkerfi. Þannig að maður er að nota nýja, flotta snjallsímann til að halda utan um vegalengdir og hraða.“ Eiður er mikill matgæðingur og hefur verið duglegur að deila því áhugamáli með vinum sínum á Facebook. Hann segir að hlaupin geri sér kleift að halda áfram að borða gómsætan mat án þess að fá of mikið samviskubit. „En eflaust kemur að því að maður þarf að vitk- ast á þeim vettvangi líka.“ freyr@frettabladid.is EIÐUR ARNARSSON: ÉG VAR ORÐINN AÐEINS OF ÞUNGUR AUKAKÍLÓIN HRYNJA AF SKOKKANDI ÚTGÁFUSTJÓRA Í HLAUPAGALLANUM Útgáfustjórinn Eiður Arnarsson hleypur í Elliðaárdalnum fjórum til fimm sinnum í viku. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Ást Lilju Pálmadóttur á hestum er öllum kunn og hún nýtur lífsins norður í Skagafirði við að ríða út og þjálfa á meðan eiginmaður hennar, Baltasar Kormákur, klippir til Hollywood-myndina Contra- band. Lilja er nú sest á skólabekk Háskólans á Hólum þar sem hún er við diplómanám í þjálfun og reiðkennslu. Lilja keppti á dögunum í fjórgangsmóti með ágætis árangri; hún og gæðingurinn Mói fengu 5,4 í einkunn og náðu tíunda sæti. Ítarlega er fjallað um tónlistar-og ráðstefnuhúsið Hörpuna í Condé Nast Traveler á vefsíðunni con- cierge.com. Þar er húsinu hrósað í hástert og þætti Ólafs Elíassonar í hönnuninni gerð góð skil. Greinar- höfundur gerir jafn- framt mikið úr því að Íslendingar eigi fjölbreytta tónlistarmenn- ingu; Airwaves og Björk. Hann spáir því að Harpan eigi eftir að verða nefnd í sömu andrá og þessi tvö fyrirbæri. - fgg FRÉTTIR AF FÓLKI Sun 17.4. Kl. 15:00 Sun 1.5. Kl. 15:00 Sindri silfurfiskur (Kúlan) Brák (Kúlan) Fös 15.4. Kl. 20:00 síð.sýn U Lau 16.4. Kl. 20:00 Sun 17.4. Kl. 20:00 Lau 30.4. Kl. 20:00 Sun 1.5. Kl. 20:00 Hedda Gabler (Kassinn) Ö Ö Allir synir mínir (Stóra sviðið) Fim 14.4. Kl. 20:00 Mið 27.4. Kl. 20:00 Lau 30.4. Kl. 20:00 Mið 4.5. Kl. 20:00 Fim 5.5. Kl. 20:00 Mið 11.5. Kl. 20:00 Fim 12.5. Kl. 20:00 Mið 18.5. Kl. 20:00Ö U Sun 17.4. Kl. 14:00 Sun 17.4. Kl. 17:00 Sun 1.5. Kl. 14:00 Sun 1.5. Kl. 17:00 Sun 8.5. Kl. 14:00 Sun 8.5. Kl. 17:00 Sun 15.5. Kl. 14:00 Sun 22.5. Kl. 14:00 Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið) Bjart með köflum (Stóra sviðið) Fös 15.4. Kl. 20:00 3. sýn Lau 16.4. Kl. 20:00 4. sýn Fim 28.4. Kl. 20:00 5. sýn Fös 29.4. Kl. 20:00 6. sýn Fös 6.5. Kl. 20:00 7. sýn Lau 7.5. Kl. 20:00 8. sýn Fös 13.5. Kl. 20:00 Lau 14.5. Kl. 16:00 br.sýn Fim 19.5. Kl. 20:00 Fös 3.6. Kl. 20:00 Lau 4.6. Kl. 20:00 Fim 9.6. Kl. 20:00 U Ö U Ö Ö Ö Ö Ö U Ö U Ö U U Ö Ö U FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MEIRI FRÓÐLEIKUR Meiri Vísir. *Sam kvæ m t prentm iðlakönnun C apacent G allup janúar – m ars 2011
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.