Fréttablaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 8
12. maí 2011 FIMMTUDAGUR8
Landsbankinn býður
Pizza-Pizza ehf. til sölu
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Hömlur ehf., dótturfélag Landsbankans hf., hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf
Landsbankans að annast sölu á öllu hlutafé í matvælafyrirtækinu
Pizza-Pizza ehf.
Pizza-Pizza ehf. er umboðsaðili Domino’s Pizza International á Íslandi og
rekur 14 sölustaði undir vörumerki Domino’s.
Söluferlið er opið öllum áhugasömum fjárfestum sem sýnt geta fram á
fjárfestingargetu umfram 300 milljónir króna og hafa þekkingu og reynslu
til að takast á við fjárfestingu af þessari stærð og í þessari atvinnugrein.
Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um söluferlið, stutta sölukynningu,
www.landsbankinn.is.
Frestur til að skila óskuldbindandi tilboði rennur út kl. 12:00,
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Fastus ehf. | Síðumúla 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900 | www.fastus.is
SJÁVARÚTVEGUR Bæði útgerðarmenn og sjó-
menn gera alvarlegar athugasemdir við
fyrirhugaðar breytingar á lögum um stjórn
fiskveiða, sem kynnt var í þingflokkum stjórn-
arflokkanna í gær. Þeir óttast að fá ekki að
njóta uppbyggingarstarfs á fiskistofnunum
þrátt fyrir að hafa fært fórnir.
„Okkur líst afar illa á þá búta sem hafa
verið að sjást úr þessu frum-
varpi í fréttum undanfarna
daga,“ segir Friðrik J. Arn-
grímsson, framkvæmda-
stjóri Landssambands
íslenskra útvegsmanna
(LÍÚ). „Mér sýnist þetta
jaðra við skemmdarverk á
íslenskum sjávarútvegi, svo
ég segi ekki meira.“
Hann segir frumvarpið
ganga þvert gegn þeim
markmiðum að byggja upp
traust á því að hægt sé að
byggja upp með varanlegum
hætti í þessari atvinnugrein.
„Núna er loksins að verða
búið að byggja upp þorsk-
stofninn með því að draga
verulega úr aflaheimildum,
og svo á að hirða stóran
hluta af því og ráðstafa til
strandveiðimanna, sem eru
flestir búnir að selja afla-
heimildir. Nú á að hirða heimildirnar af þeim
sem keyptu af strandveiðimönnunum og láta
þá hafa þær aftur,“ segir Friðrik.
Sævar Gunnarsson, formaður Sjómanna-
sambands Íslands, er einnig ósáttur við að sjó-
menn fái ekki að njóta uppbyggingar á fiski-
stofnunum. Hann segir sjómenn hafa misst
tekjur og margir hafi misst vinnuna vegna
aflasamdráttar undanfarinna ára. Nú þegar
horfi til betri vegar eigi ábatinn að fara til
annarra en þeirra sem fært hafi fórnirnar.
Sævar, sem hafði ekki séð frumvarpið
þegar Fréttablaðið hafði samband, gagnrýnir
stjórnvöld fyrir að hafa ekki birt frumvarpið
opinberlega fyrr. Ljóst sé að tekist verði á um
málið og þá þurfi að fá það upp á yfirborðið
sem fyrst.
Friðrik gagnrýnir stjórnvöld fyrir skort
á samráði við útvegsmenn. „Þetta svokall-
aða samráð er bara sýndarmennska,“ segir
Friðrik. Hann segir að kalla hefði átt hags-
munaaðila að borðinu við undirbúning frum-
varpsins. Þó að frestur verði gefinn til að gera
athugasemdir bendi fæst til þess að stjórn-
völd ætli sér að hlusta á andstæð sjónarmið í
málinu.
Framtíðarsýnin í sjávarútvegi, verði frum-
varpið að lögum, er einföld, segir Friðrik:
„Við verðum með mun lakari sjávarútveg en
áður ef þetta gengur eftir, það blasir við, og þá
lakari tekjur líka.“
Hann segir lítið vit í því að draga hundruð
báta á flot til strandveiða yfir sumartímann, á
meðan atvinnumenn í greininni séu atvinnu-
lausir vegna skorts á aflaheimildum.
brjann@frettabladid.is
Óttast að fá ekki að njóta
uppbyggingar fiskistofna
Útgerðarmenn og sjómenn gagnrýna að fá ekki að njóta betra ástands fiskistofna eftir að hafa lagt mikið á sig
til að byggja þá upp. Frumvarp um fiskveiðistjórnun jaðrar við skemmdarverk, segir framkvæmdastjóri LÍÚ.
BREYTINGAR Útvegsmenn segja lítið vit í að draga hundruð báta á sjó til strandveiða á meðan atvinnumenn í
greininni sitji atvinnulausir vegna skorts á aflaheimildum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FRIÐRIK J.
ARNGRÍMSSON
SÆVAR
GUNNARS SON
UMHVERFISMÁL Svandís Svavars-
dóttir umhverfisráðherra undir-
ritar verndaráætlun Mývatns og
Laxár í Mývatnsstofu á laugar-
dag.
Unnið hefur
verið að vernd-
aráætluninni
um nokkurt
skeið en áætl-
unin leggur
traustan grunn
að verndun og
uppbyggingu
á svæðinu og
markar tíma-
mót í verndun
Mývatns og
Laxár.
Lífríki Mývatns er einstætt
og er talið að þar haldi sig
fleiri andategundir en á nokkr-
um öðrum stað á jörðinni. Í
Mývatnssveit er náttúrufar afar
fjölbreytt og landslag sérstætt.
Mývatn og Laxá eru á skrá um
alþjóðlega mikilvæg votlendis-
svæði, samkvæmt Ramsar-
sáttmálanum. - shá
Verndaráætlun undirrituð:
Mývatn og Laxá
fá loksins skjól
SVANDÍS
SVAVARSDÓTTIR
VEISTU SVARIÐ?
1. Hvaða frægi hjólabrettamaður
er staddur á Íslandi?
2. Hvaða íþróttalið átti 100 ára
afmæli í gær?
3. Hvað heitir verjandi Geirs H.
Haarde fyrir landsdómi?
SVÖR
1. Tony Hawk. 2. Valur. 3. Andri Árnason.
UMHVERFISMÁL Þyrla Landhelgis-
gæslunnar fór í gær í eftirlitsflug
um friðlandið á Hornströndum
þar sem sérstaklega var leit-
ast við að finna merki um hvíta-
birni á svæðinu. Mikill almenn-
ur þrýstingur hefur verið um
að farið yrði í slíkt flug, eftir að
hvítabjörn var felldur í Rekavík
bak Höfn 2. maí síðastliðinn, að
því er segir í tilkynningu.
Frá Ísafirði voru firðir og
fjörur kannaðar frá Aðalvík að
Furufirði. Hvorki hvítabirni
né spor var að finna en gömul
för sáust í snjóskafli skammt
frá þeim stað sem björninn var
felldur fyrir tíu dögum.
Ágætt skyggni var til leitar,
hæg breytileg átt en þó skýjað í
1.500 feta hæð. - shá
Gæslan leitar bjarndýra í eftirlitsflugi yfir Vestfjörðum:
Engin ný spor að sjá
HÆLAVÍKURBANGSINN Þessi hvítabjörn
var skotinn fyrir réttum tíu dögum.
Engin ummerki eru um fleiri dýr. MYND/LHG