Fréttablaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 12. maí 2011 23 Oft heyri ég sagt, einkum eftir hrun, að Íslending- ar séu of fáir til að geta hald- ið uppi hagsælu og heilbrigðu samfélagi. Þessi skoðun hvílir á tveim meginstoðum. Önnur er þessi: Lítið land líður fyrir skort á hæfum mannskap. En þá segi ég: Fólk er að jafnaði alls staðar eins að upplagi hvort heldur í litlum löndum eða stórum. Eini markverði munurinn á fólki frá einu landi til annars er sá, að sum lönd hlúa betur en önnur að sínu fólki. Málið snýst um þróunarstig, ekki fólksfjölda. Hráefnið er alls staðar eins, en það er af manna völdum mis- langt komið á þroskabrautinni. Í Aþenu til forna bjuggu 200.000 manns og vegnaði vel. Feneyjar og Flórens blómstruðu á miðöld- um með 115.000 og 70.000 íbúa. Fámenni: Böl eða blessun? Hin stoðin undir þeirri skoðun, að fámennið sé „mesta félags- böl Íslendinga,“ eins og Einar Benediktsson skáld komst að orði (Íslendingar voru þá um 100.000), er þessi: Fámenn- ið kallar á innherjaviðskipti, klíkuskap og spillingu, því að allir þekkja alla og hylma yfir með öllum. Þessu er ég ekki heldur sammála. Í fámennum löndum ætti að veitast auðveld- ara en ella að reisa skorður við spillingu einmitt vegna þess, að allir vita, hvar skórinn kreppir. Hér er að ýmsu að hyggja, bæði rökum og reynslu. Löndum heimsins hefur fjölg- að verulega síðustu ár, og þau eru nú að meðaltali fámennari en fyrr. Árin 1990-1994 urðu til tuttugu ný lönd við hrun Sovét- ríkjanna og af öðrum ástæð- um. Smæðin gerir nú minna til en áður, þar eð greið milli- landaviðskipti gera hverju landi kleift að bæta sér upp óhagræði smæðarinnar með viðskiptum við útlönd. Smæð, það er fólksfæð, hefur bæði kosti og galla. Grísku heimspekingarnir Platon og Ari- stóteles héldu fram kostunum. Platon færði rök að því, að réttur fjöldi heimila hvers lands væri 5.040; þetta er ekki prentvilla. Miðað við tíu manns í heimili (börn, gamalmenni, þræla og annað búalið) þýðir þetta um 50.000 manns í allt. Platon vildi, að fólksfjöldinn væri ekki meiri en landið þolir. Aristóteles taldi, að hvert ríki þyrfti að vera nógu lítið til að láta að stjórn og jafn- framt nógu stórt til að geta staðið undir sér. Rök Aristóte- lesar hafa staðizt tímans tönn. Kjarni málsins er sá, að smálönd eru samheldnari en stór lönd og hafa því jafnan færri sérhags- munahópa og að því skapi skárri stjórn á sínum málum í friði fyrir úlfúð og sundurþykkju, sem einkennir sum fjölmenn samfélög, þó ekki Japan. En smæðin kostar sitt, því að færri skattgreiðendur standa þá bak við fastakostnaðinn við opinbera þjónustu. Smálönd þurfa að bæta sér upp óhagræði smæðarinnar með skilvirkri hagstjórn og eru ólíklegri til að búa yfir nægum auði til að hafa ráð á góðri og óspilltri stjórnsýslu. Þannig getur smæð leitt af sér spillingu og einnig í gegnum fákeppni, klíkuskap og refsileysi í skjóli meðvirks ákæruvalds og dóms- kerfis. Auk þess eiga stjórnvöld í litlum löndum auðveldara með að halda fjölmiðlum í skefjum. Hagkvæmni stærðarinnar er þó ekki heldur einhlít, þar eð í stórum löndum geta stjórnvöld í krafti stærðarinnar stund- um kreist meira út úr auðlind- um lands og sjávar til að frið- þægja bakhjarla sína og komast því upp með verri stjórnar- hætti en ella. Af þessum rökum á báða bóga má ráða, að við þurfum að spyrja: Hvort vegur þyngra, kostir smæðarinnar eða gallarnir? Fegurð smæðarinnar Hér koma reynslurökin til skjalanna. Rannsóknir sýna, að spilling er á heildina litið minni í litlum löndum en stórum, ef eitthvað er. Smæðin virðist efla aðhaldið að spillingaröflunum meira en hún ýtir undir spill- inguna. Spilling er alvarlegt vandamál í Indlandi og Kína, tveim langfjölmennustu löndum heims. Rannsóknir sýna einnig, að litlum löndum vegnar að jafn- aði betur en stórum í efnahags- legu tilliti. Kostir smæðarinn- ar yfirgnæfa gallana. Risunum tveim í Asíu fleygir samt fram. Ég gerði fyrir nokkrum árum eigin athugun á málinu og komst að sömu niðurstöðu og flestir aðrir. Einn lykillinn að velgengni smálandanna virðist vera, að þeim tekst oft að velta ýmsum fastakostnaði smæðar- innar yfir á herðar fjölmennari vinaríkja líkt og Íslendingar létu Atlantshafsbandalags- þjóðirnar kosta varnir Íslands í meira en 60 ár, þar til herinn hvarf á braut um árið gegn vilja íslenzkra stjórnvalda. Ef fólksfæð dregur úr spill- ingu og örvar hagvöxt, svo sem rannsóknir virðast benda til, bæta þau tíðindi horfur Íslands. Reynslan sýnir að auki, að minni spilling glæðir vöxtinn. Vandi Íslands er því ekki fólksfæðin, heldur spillingin auk annars. Það er gott, þar eð það er miklu hampaminna að uppræta spill- inguna en margfalda fólks- fjöldann. Við þurfum að snúast gegn spillingunni með hug og orði. Þess vegna lagði ég til hér í Fréttablaðinu 8. júlí 2010, að sér- stök stofnun yrði sett á fót til að hamla spillingu á Íslandi líkt og gert var í Svíþjóð 2006, óspilltu landi að kalla. Nú leyfi ég mér að ítreka tillöguna. Erum við of fá? Í DAG Þorvaldur Gylfason prófessor Ef fólksfæð dregur úr spillingu og örvar hagvöxt, svo sem rannsóknir virðast benda til, bæta þau tíðindi horfur Íslands. AF NETINU Hagsmunir og klíkur Nú skilst mér að fram sé komið frumvarp um breytingu á stjórnun fiskveiða, eða hvað svo sem það heitir; kallað kvótafrumvarp. Ég sé að flokkssystir mín hún Ólína Þorvarðardóttir, biður fólk um að bíða með að tjá sig mikið um frumvarpið fyrr en eftir að það hefur verið birt en ég er alveg ósammála henni þar. Einfaldlega vegna þess að það átti fyrir löngu síðan að vera búið að birta það. Ég er kominn með bölvaða leyndarhyggjuna upp í kok og þegar þingmaður biður mig að tjá mig ekki strax, kasta ég hlutum. Og ég er alls ekki viss um að þetta frumvarp geti talist efndir á kosningaloforðum og stjórnarsátt- málum. blog.eyjan.is/sludrid Björgvin Valur Guðmundsson Af hverju? Frumvarp ríkisstjórnarinnar um sjávarútvegsmál er loksins komið fram. Það nær auðvitað ekki nógu langt til að gleðja þá sem vildu fara lengst í breytingum, og heldur ekki nógu stutt til að gleðja hina sem engu vildu breyta. Og nú verður rifist um það fram og til baka á næstunni hvað það þýðir. Sem mér finnst í rauninni stór- skrýtið. Þetta er mál sem ætti að vera búið að ræða í þaula. Allir ættu að vera búnir að koma sér upp viðamikilli þekkingu á jafnvel hinum fínustu blæbrigðum kvótakerfisins. Og vita nákvæm- lega hvaða afleiðingar hvaða breytingar hafa. blog.eyjan.is/illugi Illugi Jökulsson FORSÍÐA VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN BESTU RITDEILURNAR, ÁDREPURNAR, SKAMMIRNAR OG ALLAR HINAR AÐSENDU GREINARNAR ERU Á VÍSI. Meiri Vísir. m.visir.is Fáðu Vísi í símann! Meira úrval afþreyingar, frétta og myndskeiða í topp–upplausn með greiðara og einfaldara aðgengi fyrir allar tölvur og farsíma. Horfðu, hlustaðu og fylgstu með öllu því sem gerist, hvar og hvenær sem er á Vísi. Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi. Má bjóða ykkur meiri Vísi?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.