Fréttablaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 62
12. maí 2011 FIMMTUDAGUR46
sport@frettabladid.is
VALSMENN hafna kvörtun KR sem sakar Frey Alexandersson, aðstoðarþjálfara liðsins, um að
hafa rætt ólöglega við Ingólf Sigurðsson, leikmann KR. Valur sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem
félagið hafnar með öllu að einhver á þeirra vegum hafi rætt við Ingólf. KSÍ á eftir að taka málið fyrir.
VALUR 0-1 ÍBV
0-1 Þórarinn Ingi Valdimarsson (90.+1.)
Vodafone-völlurinn, áhorf.: 2.348
Dómari: Kristinn Jakobsson (6)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 12–6 (4–1)
Varin skot Haraldur 0 – Abel 3
Horn 13–5
Aukaspyrnur fengnar 15–7
Rangstöður 3–0
Valur 4–5–1 Haraldur Björnsson 5 - Jónas Tór
Næs 5, Halldór Kristinn Halldórsson 6, Atli Sveinn
Þórarinsson 5, Pól Jóhannus Justinussen 6 - Haukur
Páll Sigurðsson 6 (70., Andri Fannar Stefánsson 6),
Guðjón Pétur Lýðsson 5, Arnar Sveinn Geirsson 5
(37., Jón Vilhelm Ákason 6) - Matthías Guðmunds-
son 6, Christian R. Mouritzen 6 (54., Rúnar Már
Sigurjónsson 5), Hörður Sveinsson 4.
ÍBV 4-5-1 Abel Dhaira 6 - Kelvin Mellor 5, Rasmus
Christiansen 7, Eiður Aron Sigurbjörnsson 6,
Matt Garner 5 - Andri Ólafsson 5, Bryan Hughes
5 (81., Anton Bjarnason -), Tony Mawejje 5 (50.,
Guðmundur Þórarinsson 6), Tryggvi Guðmundsson
4, *Þórarinn Ingi Valdimarsson 7 - Jordan
Connerton 5 (61., Denis Sytnik 5).
BREIÐABLIK 2-1 GRINDAVÍK
0-1 Paul McShane (14.)
1-1 Kristinn Steindórsson (77.)
2-1 Arnór Sveinn Aðalsteinsson (82.)
Kópavogsvöllur, áhorf.: 1.157
Dómari: Þóroddur Hjaltalín Jr. (7)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 15–6 (7-4)
Varin skot Ingvar 2 – Jack 5
Horn 12–1
Aukaspyrnur fengnar 12–11
Rangstöður 1–8
Breiðablik 4–3–3 Ingvar Þór Kale 6 - Kristinn
Jónsson 6 (81., Arnar Már Björgvinsson -), Kári
Ársælsson 5 (46., Viktor Unnar Illugason 6), Elfar
Freyr Helgason 5, Arnór Sveinn Aðalsteinsson 6 -
Finnur Orri Margeirsson 5, Guðmundur Kristjánsson
5, Rafn Andri Haraldsson 5 - Tómas Óli Garðarsson
7, Andri Rafn Yeoman 6 (72., Olgeir Sigurgeirsson -),
Kristinn Steindórsson 6.
Grindavík 4-3-3 Jack Giddens 7 - Ray Anthony
Jónsson 5, Ólafur Örn Bjarnason 6, Guðmundur
Andri Bjarnason 5, Alexander Magnússon 7 -
Jóhann Helgason 5, Jamie McCunnie 5, Paul
McShane 5 (81., Bogi Rafn Einarsson -) - Orri Freyr
Hjaltalín 5, Magnús Björgvinsson 5 (66., Matthías
Örn Friðriksson 5), *Robbie Winters 7 (72.,
Michal Pospisil -).
UPPLIFUN SEM
ALDREI GLEYMIST
Ef þú notar MasterCard kort frá Kreditkorti gætirðu
tryggt barninu þínu ógleymanlega upplifun. Nafn eins
barns á aldrinum 7–9 ára verður dregið út og fer ásamt
fylgdarmanni á UEFA Champions League úrslitaleikinn
á Wembley 2011 og fær að leiða leikmenn inn á völlinn
í boði MasterCard, aðalstyrktaraðila UEFA Champions
League. Til að taka þátt þarf að nota MasterCard
kortið a.m.k. 10 sinnum frá 14. apríl–15. maí 2011.
Barnið þitt gæti fengið að leiða leikmann inn á völlinn í
UEFA Champions League úrslitaleiknum á Wembley 28. maí
2011 í London
Dregið vikulega um skemmtilega aukavinninga
Skráðu þig til leiks á www.kreditkort.is
FÓTBOLTI Þjálfarar beggja liða
gerðu nokkuð róttækar breyting-
ar á liðum sínum fyrir leikinn og
virtust breytingarnar ætla að skila
Grindvíkingum árangri. Þeir kom-
ust yfir snemma leiks með snyrti-
legu skallamarki Paul McShane.
Enn á ný virtust heilladísirnar
ætla að leika við Grindvíkinga sem
höfðu sigrað í sjö af síðustu átta
heimsóknum sínum í Kópavog-
inn. Skömmu síðar var Guðmundi
Andra Bjarnasyni, varnarmanni
Grindvíkinga, vikið af velli fyrir
brot á Andra Rafni Yeoman sem
var sloppinn einn í gegn og Grind-
víkingar manni færri.
Það sem eftir lifði leiks var
knötturinn mestmegnis á vallar-
helmingi Grindvíkinga sem pökk-
uðu í vörn, staðráðnir í að halda
marki sínu hreinu. Stórsókn Blik-
anna bar ekki árangur fyrr en
stundarfjórðungi fyrir leikslok
þegar Kristinn Steindórsson kom
boltanum yfir línuna.
Blikarnir í stúkunni fögnuðu en
Blikarnir á vellinum ætluðu sér
stigin þrjú og aðeins þremur mín-
útum síðar skoraði Arnór Sveinn
Aðalsteinsson sigurmarkið. Sigur
Blikanna var verðskuldaður en
Grindvíkingar mega vera ánægð-
ir með frammistöðu sína manni
færri í sjötíu mínútur.
Guðmundur Benediktsson,
aðstoðarþjálfari Blika, var virki-
lega ánægður með stigin þrjú.
„Þetta var erfitt, sérstaklega eftir
að þeir misstu mann út af. Þó það
ætti að vera léttara þá þekkjum
við það sjálfir að menn pakka
aðeins meira niður og reyna að
verjast. Þetta var þolinmæðis-
vinna að komast í gegnum það og
við gerðum það vel.“
Robbie Winters, framherji
Grindavíkur, var ánægður með
baráttu Grindvíkinga.
„Ákefðin og vinnuframlagið var
frábært. Ólíkt leiknum um dag-
inn [gegn Val] náðum við að halda
boltanum á jörðinni í kvöld. Auð-
vitað var þetta erfitt manni færri
en mér fannst karakterinn í liðinu
frábær.“ - ktd
Breiðablik lagði Grindavík, 2-1, í leik þar sem Blikar voru manni fleiri lengstum:
Fyrstu stig Íslandsmeistaranna
GLEÐI Blikarnir fögnuðu fyrstu stigunum
vel. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI „Þetta gerist ekki sæt-
ara en þetta, en þetta er jafn-
framt í annað skiptið á tímabilinu
sem við klárum leik svona og það
er bara frábært,“ sagði Þórarinn
Ingi Valdimarsson, hetja Eyja-
manna í 1-0 sigri á Val í hundr-
að ára afmælisleik Valsmanna á
Vodafone-vellinum í gær. Þórarinn
sá til þess að Valsmenn fóru stiga-
lausir heim úr 100 ára afmælis-
veislunni á Vodavone-vellinum
í gærkvöldi. Eyjamenn spiluðu
manni færri allan seinni hálf-
leikinn en tókst að halda aftur af
heimamönnum áður en Þórarinn
skoraði sigurmarkið með stórkost-
legu skoti í uppbótartíma.
„Ég held að ég hafi ekki skor-
að sætara mark,“ sagði Þórarinn
kátur en fyrirliðinn Andri Ólafs-
son hafði reyndar smá áhyggjur
af Þórarni þegar hann snýr heim
til Eyja.
„Það er verra að Þórarinn hafi
skorað þetta mark því hann er með
nóg egó fyrir. Ég veit ekki hvernig
næsta vika verður í Eyjum því ég
held að eyjan sé of lítil fyrir þetta
mark hjá honum,“ sagði Andri í
léttum tón en það var hálfleiks-
ræða Heimis Hallgrímssonar sem
gaf Eyjaliðinu kraftinn í seinni
hálfleik. „Það var gargað á okkur
í fimmtán mínútur í hálfleik. Hann
var ekki sáttur með vinnufram-
lagið og menn lögðu sig því fram
þótt það hafi ekki verið mikið spil
hjá okkur,“ sagði Andri, stoltur af
sínu liði.
Valsmenn voru manni fleiri
allan síðari hálfleikinn eftir að
Eyjamaðurinn Tryggvi Guð-
mundsson fékk beint rautt spjald í
lokin á fyrri hálfleik en tókst ekki
að nýta sér liðsmuninn. Rauða
spjaldið var umdeilt, ekki síst
þar sem Valsmaðurinn Haukur
Páll Sigurðsson slapp alveg hjá
Kristni Jakobssyni dómara en
þeim tveimur hafði lent saman.
„Við gefumst aldrei upp og það
er mottóið okkar. Við ætlum að
klára alla leiki af fullum krafti og
það skilaði okkur þremur stigum í
dag,“ sagði Þórarinn og hann rifj-
aði upp sams konar karakter liðs-
ins á móti Val á svipuðum tíma í
fyrra. „Þetta er fínn völlur til þess
að starta tímabilinu almennilega.
Það var upphafið að einhverju
góðu þegar við náðum stigi hér á
móti þeim í fyrra manni færri og
af hverju ekki núna,“ sagði hetja
Eyjamanna.
Valsmenn fóru illa með góða
stöðu og það vantaði bara miklu
meiri grimmd til þess að klára
þennan leik í gær.
„Það er alveg skelfilegt að fá
á sig sigurmark á 91. mínútu en
þetta var bara orsök, afleiðing.
Við vorum ekki nógu góðir í seinni
hálfleik og færðum boltann ekki
nógu hratt. Við áttum að skora í
fyrri hálfleik á meðan við vorum
jafnmargir inni á vellinum. Þegar
við erum einum fleiri í seinni hálf-
leik þá færum við boltann alltof
hægt,“ sagði Kristján Guðmunds-
son, þjálfari Vals.
„Þetta er ekkert áfall. Við bara
töpuðum einum fótboltaleik. Það
er hundleiðinlegt og sérstaklega á
þessum degi. Við áttum alla mögu-
leika á að vinna þennan leik en
gerðum það ekki. Við vorum síðan
kærulausir í lokin, fengum á okkur
mark og töpuðum leiknum,“ sagði
Kristján. ooj@frettabladid.is
Eyjan of lítil fyrir þetta
mark hjá Þórarni Inga
Andri Ólafsson, fyrirliði ÍBV, hefur áhyggjur af egói Þórarins Inga Valdimars-
sonar næstu daga í Eyjum eftir að Þórarinn eyðilagði 100 ára afmælisveislu
Valsmanna með stórkostlegu sigurmarki í uppbótartíma.
RAUTT Tryggvi Guðmundsson var rekinn
af velli eftir viðskipti við Hauk Pál
Sigurðsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON