Fréttablaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 18
12. maí 2011 FIMMTUDAGUR18 18
hagur heimilanna
Þegar skipta þarf tertubotni í tvennt, til
dæmis til að setja fyllingu á milli, þá er gott
að nota tvinna eða tannþráð svo skurður-
inn verði jafn.
Fyrst skaltu skera beina línu með hníf
allan hringinn og síðan leggur þú spottann
í skurðinn, heldur í báða endana og dregur
tvinnann í gegnum botninn.
Einnig er hægt að nota þessa aðferð þegar skera á
köku í jafnar sneiðar.
Sérstakt átak Matvælastofnunar
og heilbrigðiseftirlits með merk-
ingu ofnæmisvalda í matvöru
hefur skilað sér í aukinni árvekni
neytenda. Jónína Stefánsdóttir,
matvælafræðingur hjá Matvæla-
stofnun, segir tíðari fregnir af inn-
köllunum matvæla hafa gert það að
verkum að fólk fylgist betur með
og ábendingum til stofnunarinnar
hafi fjölgað.
Ríflega tveir þriðju hlutar allra
innkallana Matvælastofnunar á
matvöru það sem af er ári eru
vegna ófullnægjandi innihaldslýs-
ingar. Þá er yfir helmingurinn til
kominn frá því í aprílbyrjun þegar
eftirlitsátakið til að fylgjast með
merkingum matvæla hófst.
Meðal nýlegra innkallana má
nefna kjúklingasúpu frá Ektafiski
þar sem hveitis var ekki getið í
innihaldslýsingu, en það er algeng-
ur ofnæmisvaldur. Sama átti við
um innköllun á Gunnars kokteil-,
hamborgara-, sinneps-, graflax- og
Dijon hunangssósum.
Þá skorti á að í kassa með íspinn-
um frá Emmessís, merktum Topp
5, væri getið um óþols- og ofnæm-
isvaldana sojalesitín og hnetur
(möndlur) sem er að finna í Daim-
toppum.
Alvarlegt jarðhnetuofnæmiskast
drengs sem flytja varð á sjúkrahús
varð til þess að móðir hans lét vita
af því að Kryddkaka frá bakaríinu
Hjá Jóa Fel væri ekki rétt merkt. Í
kjölfarið kannaði Heilbrigðiseftir-
lit Reykjavíkur málið og lét kalla
inn vöruna.
Jónína segir annars allan gang
á því hvað verði til þess að vara
sé innkölluð, hvort það sé eftir-
lit heilbrigðiseftirlits, ábendingar
einstaklinga eða heilbrigðisstarfs-
fólks þar sem hægt hefur verið að
greina uppruna ofnæmiskasta.
Á vef Matvælastofnunar er
áréttað að til að vernda heilsu neyt-
enda sem þjást af fæðuofnæmi, eða
-óþoli, sé mikilvægt að tryggja að
fyrir liggi ítarlegar upplýsingar
um samsetningu matvæla. Fjöldi
innkallana vegna vanmerktra
ofnæmis- og óþolsvalda á umbúð-
um hafi orðið til þess að stofnunin
hafi á vef sínum birt sérstaka upp-
lýsingasíðu um merkingar ofnæm-
is- og óþolsvalda og leiðbeiningar
um hvernig beri að merkja þá á
matvörum. olikr@frettabladid.is
Móðir lét vita af of-
næmisvaldi í köku
Innköllunum vegna ofnæmisvalda og ófullnægjandi innihaldslýsinga matvöru
hefur fjölgað mjög síðustu vikur. Í gangi er sérstakt eftirlitsverkefni Matvæla-
stofnunar og heilbrigðiseftirlits. Fólk fylgist betur með en áður og lætur vita.
813
Innkallanir Matvælastofnunar það sem af er ári*
Dags. Mál Vara
07.02.11 Mengun af völdum nóróveira Alletiders Frugt Hindbær
09.02.11 Grunur um díoxín Íslandsnaut hamborgarar/lasagne og Bónus borgarar
14.02.11 Grunur um listeríu Reykás grafinn lax
08.03.11 Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar Hagkaup pizza (pepperoni/skinka)
11.03.11 Lyfjavirk efni í vaxtarræktarvöru SuperPump 250
18.03.11 Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar Grænn kostur Hummus og döðluvefja
18.03.11 Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar Krónan Kartöflusalat
18.03.11 Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar Krónan „Lasagne ferskt“
24.03.11 Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar Bónus Hrásalat og Kartöflusalat
25.03.11 Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar Kjarnafæði kartöflu- og hrásalat
31.03.11 Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar Fjöldi salata frá Salathúsinu
04.04.11 Mítlar í blönduðum ávöxtum Hagver blandaðir ávextir
06.04.11 Kristallamyndandi efni í fóðri Icelandpet gæludýrafóður
07.04.11 Vanmerktar umbúðir Goði blóðmör og Goði lifrarpylsa
07.04.11 Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar Emmessís Skafís/Rjómaís með Daim-kúlum
08.04.11 Óleyfileg litarefni í fæðubótarefnum EAS Myoplex og Finish
13.04.11 Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar Euroshopper Fish Fingers
15.04.11 Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar Krónan Bragðarefur
26.04.11 Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar Kryddkaka frá Hjá Jóa Fel
26.04.11 Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar Topp5 ís frá Emmessís
03.05.11 Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar Gunnars Majones sósur
09.05.11 Vanmerktir ofnæmis- og óþolsvaldar Kjúklingasúpa frá Ektafiski
*Frekari upplýsingar um vöruheiti, framleiðanda og framleiðsludagsetningar
innkölluðu vörunnar er að finna á vef Matvælastofnunar, www.mast.is.
Í BÚÐINNI Alla jafna er innihaldslýsing vöru ítarleg enda löggjöf sem kveður á um
hvernig að henni skuli staðið orðin nokkurra ára gömul. Nokkur misbrestur hefur
hins vegar reynst á að ofnæmis- og óþolsvalda sé getið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÓB, sem er í eigu Olíuverzlunar
Íslands, mátti auglýsa að þar væri
besta veðrið, samkvæmt úrskurði
áfrýjunarnefndar neytendamála.
Skeljungur kærði ÓB til Neyt-
endastofu á síðasta ári vegna aug-
lýsingu bensíns ÓB. Auglýsingin
var lesin í útvarpi og hljóðaði svo:
„ÓB, besta veðrið.“
Að mati Skeljungs fól auglýs-
ingin í sér brot gegn ákvæðum
laga um eftirlit með viðskipta-
háttum og markaðssetningu.
„Nokkuð augljóst sé að ÓB geti
ekki staðið við það að á bensín-
stöðvum þess sé besta veðrið.
Kærandi telji því að í auglýs-
ingunni sé verið að vísa til þess
tungubrjóts að segja „veðrið“ í
staðinn fyrir „verðið“ og öfugt,
sbr. tungubrjótinn: „Það er farið
að verða verra ferðaveðrið.“ [...]“,
er kemur fram í úrskurði áfrýj-
unarnefndar neytendamála. Fram
kemur einnig í bréfi kæranda að
Orkan, sem er rekin af Skelj-
ungi, sé í flestum tilfellum með
ódýrara bensín en ÓB.
ÓB hætti útsendingu auglýs-
inganna og ákvað Neytendastofa
því ekki að aðhafast meira í mál-
inu. Þá niðurstöðu staðfesti áfrýj-
unarnefndin eftir að Skeljungur
áfrýjaði málinu í upphafi árs. - sv
Skeljungur kærði ÓB vegna tungubrjóts í auglýsingu:
ÓB var heimilt að
auglýsa besta veðrið
GOTT VEÐUR HJÁ OLÍS ÓB tók auglýs-
ingu úr birtingu eftir kæru Skeljungs.
GÓÐ HÚSRÁÐ Skipta tertubotni
Botninn skorinn með tvinna
Fram kemur á vef Matvælastofnunar (www.mast.is) að samkvæmt reglugerð
séu helstu ofnæmisvaldar: „Allt korn sem inniheldur glúten (hveiti, rúgur,
bygg, hafrar, spelt og kamut), egg, fiskur, jarðhnetur, sojabaunir, mjólk
(þ.m.t. laktósi), hnetur (möndlur, heslihnetur, valhnetur, kasúhnetur, pekan-
hnetur, pistasíuhnetur og macadamia-hnetur), sellerí, sinnep, sesamfræ,
brennisteinsdíoxíð og súlfít, úlfabaunir, krabbadýr og lindýr.“
Ofnæmisvaldar
KRÓNUR er lítraverðið á rjóma samkvæmt nýjustu mælingu
Hagstofu Íslands. Lítraverðið var 654 krónur snemma árs 2008 og
hefur síðan hækkað um 24 prósent.
Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka
ferðaþjónustunnar, þarf ekki að hugsa sig lengi
um þegar hún er spurð um bestu kaupin sem
hún hafi gert.
„Það eru tvímælalaust gönguskórnir mínir.
Ég keypti þá fyrir átján árum og nota þá enn
í dag. Þeir voru mjög dýrir á sínum tíma en
reyndust hverrar krónu virði.“
Svo skemmtilega vill til að verstu kaup
sem Erna hefur gert tengjast einnig hreyfingu
eða mögulega hreyfingarleysi.
„Ég gerði mín verstu kaup þegar ég fjár-
festi í þrekhjóli á sínum tíma. Það er eitt-
hvað það allra leiðinlegasta sem ég hef
eignast og endaði með því að eftir
nokkrar árangurslausar tilraunir gaf
ég bróður mínum það. Ég keypti
mér í staðinn alvöru hjól, sem
reyndist mun betri fjárfesting.“
NEYTANDINN: ERNA HAUKSDÓTTIR FRAMKVÆMDASTJÓRI
Gönguskór bestu kaupin
… og passar með öllu
www.ms.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA