Fréttablaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2011
Veitingastaðurinn Italiano að
Hlíðasmára 15 býður upp á
girnilegar þunnbotna pizzur
sem bakaðar eru í funheitum
steinofni.
Högni Jökull Gunnarsson, sem er
eigandi veitingastaðarins og pizzerí-
unnar Italiano ásamt Mörtu Hall-
dórsdóttur, hefur lifað og hrærst í
pizzuheiminum um langa hríð. „Ég
byrjaði á botninum og hef unnið mig
upp á við,“ segir hann glaðlega en
Högni hóf störf sem pizzasendill
meðfram námi, gerðist síðar pizzu-
bakari, þá yfirmaður og tók loks við
rekstri pizzastaðar. Um tíma átti
hann hlut í Hróa Hetti en fyrir ári
stofnaði hann veitingastaðinn Ital-
iano sem hefur mælst vel fyrir hjá
pizzuunnendum á Íslandi.
„Við bjóðum upp á þunnbotna
pizzur með ferskri sósu, ostinum
undir og fyrsta flokks hráefni ofan
á. Pizzan er bökuð á steini í ofni og
verður þannig ákaflega bragðgóð,“
lýsir Högni og telur upp fleira sem
er í boði á Italiano. „Við bjóðum
upp á fersk salöt sem hægt er að
bæta í kjúklingi, humar, nachos
og nánast hverju sem er. Við erum
með speltpizzur, brauðstangir og
hvítlauksbrauð og því geta allir
fundið eitthvað við sitt hæfi,“ segir
hann.
Andrúmsloftið á Italiano er afar
þægilegt. Salurinn tekur allt að
80 manns í sæti og þar er hægt að
setjast niður og eiga góðar stund-
ir. „Gestir okkar sitja oft lengi og
spjalla enda spilum við notalega
tónlist á staðnum,“ segir Högni
og bætir við að gestir geti einnig
gætt sér á rauðvíni eða hvítvíni
með matnum enda staðurinn með
vínveitingaleyfi.
Italiano er afar fjölskylduvænn.
„Við erum með mjög gott barna-
horn þar sem börn geta leikið sér,
lesið eða horft á dvd,“ segir Högni
en börnin geta komið sér notalega
fyrir undir teppum og með púða.
„Við viljum að fjölskyldan geti átt
notalega stund saman og að krakk-
arnir þurfi ekki að láta sér leiðast
meðan þau bíða eftir matnum.”
Góðri kvöldstund á Italiano má
svo ljúka með dýrindis eftirrétti
en gestir geta valið milli hins ít-
alska tíramísú, heitrar súkkulaði-
tertu og vanilluíss með súkkulaði-
sósu auk ekta ítalsks illy-eðal-
kaffis. Fólk ætti því ekki að verða
fyrir vonbrigðum með máltíð á
Italiano Pizzeria.
Italiano fagnar
eins árs afmæli sínu
Í opnunarpartíi Italiano fyrir ári spiluðu Sjonni Brink og Gunni Óli
við mikinn fögnuð viðstaddra.
Börnum líður vel í barnahorninu.
Á veitingastaðnum Italiano er
boðið upp á ýmis girnileg tilboð.
Hádegistilboð er í boði alla daga
frá 11 til 14. Ávallt er boðið upp á
pizzu mánaðarins og er hún með
verulegum afslætti í sal.
Á föstudögum er upplagt að
slaka aðeins á en þá er boðið upp
á 2 fyrir 1 af köldum bjór með
keyptum mat.
Sunnudagar eru fjölskyldu-
dagar á Italiano. Þá fá börn upp
að 12 ára aldri frítt að borða. Það
er ein barnamáltíð fylgir frítt
með þegar fullorðinn kaupir mat
og drykk. Í barnamáltíð felst
pizza, calzone eða brauðstangir
og drykkur. Auk þess fá öll börn
glaðning sem þau fá að velja úr
stórum dalli.
Starfsfólk Italiano tekur vel á
móti hópum og býður sérstök til-
boð fyrir þá. Til dæmis geta hópar
sem telja fleiri en 10 fengið hlað-
borð af ýmsum pizzum af mat-
seðli. Þannig getur fólk smakkað
margar pizzur. Við það myndast
skemmtileg stemning enda gaman
fyrir fólk að geta smakkað pizzur
sem það venjulega pantar ekki.
Einnig er Italiano í sam-
starfi við limo.is sem býður upp
á hvítan Hummer sem tekur 16
farþega. Hægt er að panta fyrir
hópa pizzur, drykki og akstur með
limo.is fyrir aðeins 3.900 krónur
á mann.
Þeir sem sækja pizzuna á stað-
inn og fara með heim njóta góðs
af. 20% afsláttur er veittur af mat-
seðilspizzu en 30% afsláttur ef
viðskiptavinir velja áleggið sjálfir.
Pizza er ekki bara pizza
Italiano er í alfaraleið við Reykjanes-
braut beint fyrir ofan Smáralind.
Högni er með áratugareynslu í pizzabakstri og velur steinofna.