Fréttablaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 4
12. maí 2011 FIMMTUDAGUR4 EVRÓPUMÁL Á fundi samninga- nefndar Íslands gagnvart Evr- ópusambandinu í mars kom fram að tímabært væri að móta samn- ingsafstöðu Íslands til einstakra kafla aðildarviðræðna Íslands og ESB. Rýniferli, þar sem borin er saman löggjöf Íslands og ESB, lýkur um miðjan júní og eigin- legar aðildarviðræður hefjast í framhaldinu. Samninganefndin kveður mikil vægt að skoða hugsanleg samningsatriði heildstætt til að ná sem bestum samningi með heildarhagsmuni í huga. - kóþ Rýniferli Íslands og ESB lýkur: Afstaða tekin til einstakra kafla LÖGREGLUMÁL Minna umburðar- lyndi gagnvart kynferðisbrot- um ríkir nú hér á landi en áður og jafnframt minni skömm fyrir þolendur að stíga fram. Þetta segir Helgi Gunnlaugs- son afbrotafræðingur spurður um hugsanlegar skýringar á þeim mikla fjölda kæra vegna kynferð- isbrota sem borist hafa til lög- reglunnar á höfuðborgarsvæðinu undanfarna fjóra mánuði. „Þessi aukning er einnig að sýna okkur eitthvað sem fór leynt áður og þolendur sátu einir uppi með sársaukann, en gera það ekki lengur,“ bætir Helgi við. „Þá er líklegt að eðli sumra þessara brota hafi breyst á síðustu árum. Fram kom í Fréttablaðinu í gær að nær áttatíu kærur vegna kyn- ferðisbrota hafa borist kynferðis- brotadeild lögreglunnar á höfuð- borgarsvæðinu á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs, samtals 76 mál. Um var að ræða 33 kærur vegna nauðgunar, tuttugu kærur vegna brota gegn börnum, fjög- ur barnaklámsmál frá Europol og Interpol og nítján blygðunar- semisbrot. Auk þessa bárust nít- ján mál vegna heimilisofbeldis til deildarinnar. Þetta veldur lög- reglu áhyggjum því hún hefur ekki undan þegar mest er. Helgi segir aukningu í kyn- ferðisbrotum ekki fyrst vera að koma fram nú, heldur eigi hún sér lengri aðdraganda eða frá síðustu aldamótum. „Kynferðisbrot er sá mála- flokkur sem við sjáum aukn- ingu í, svo og í fíkniefnabrotum, en aukningin er ekki með sama hætti í öðrum brotaflokkum sem hafa verið mun stöðugri milli ára, til dæmis önnur ofbeldisbrot og manndráp. Það er óneitanlega undirligggj- andi spenna í samfélaginu sem brýst fram með ýmsum hætti og aukning kynferðisbrota gæti að einhverju leyti endurspeglað sérhyggju og græðgi góðæris- áranna sem líkja má við siðrof,“ útskýrir Helgi enn fremur. Hann bendir þó á að annað ofbeldi eins og það birtist í gögnum lögreglu hafi þó ekki fylgt þessu mynstri, sem gangi gegn þeirri skýringu að fjölgun kynferðisbrota bendi til siðrofs í samfélagi. „Annar flötur sem skýrir aukn- inguna er meiri umræða í fjölmiðl- um og vaxandi vitund borgaranna um kynferðisbrot.“ jss@frettabladid.is Minna umburðar- lyndi gegn ofbeldi Minna umburðarlyndi gagnvart kynferðisbrotum og minni skömm fyrir þol- endur að stíga fram getur verið hluti skýringar á þeim mikla fjölda kærumála sem streymt hafa til lögreglu að undanförnu. Þetta segir afbrotafræðingur. OFBELDI Áttatíu kærur vegna kynferðisbrota hafa borist kynferðisbrotadeild lög- reglunnar á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs. MYNDIN ER SVIÐSETT Ranghermt var í grein blaðsins, Niðurnídd miðborg, sem birtist á laugardag, að Klapparstígur 19 væri Veghúsastígur 1. Mynd sem birt var með greininni er af Klapparstíg 19 og er það hús á lista slökkviliðsins yfir brunagildrur. Samkvæmt gömlu borgarskipulagi var húsið áður Veg- húsastígur 1, en því hefur nú verið breytt. Húsið sem stendur nú við Veg- húsastíg 1 er ekki autt og ekki á lista slökkviliðsins. LEIÐRÉTTING VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 23° 21° 20° 17° 22° 19° 16° 16° 21° 17° 19° 22° 34° 17° 18° 16° 17° Á MORGUN 3-8 m/s, skúrir. LAUGARDAGUR Fremur hæg vestanátt. 4 4 4 3 7 7 0 8 9 5 10 6 5 4 2 2 5 1 6 3 2 2 55 6 10 8 6 7 14 10 8 NOKKUÐ GOTT Litlar breytingar á veðri til morguns. Víðast hægur vindur, fínn hiti sunnan til en held- ur svalara nyrðra. Á morgun verður víða skýjað og horfur á skúrum, einkum síðdegis. Á laugardag er útlit fyrir vestlæga átt og líkur á smá vætu vestanlands um kvöldið. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður Það er óneitanlega undirligggjandi spenna í samfélaginu sem brýst fram með ýmsum hætti og aukning kynferðis- brota gæti að einhverju leyti endurspeglað sérhyggju og græðgi góðærisáranna sem líkja má við siðrof HELGI GUNNLAUGSSON AFBROTAFRÆÐINGUR VIÐSKIPTI Sprotafyrirtækið Puzz- led by Iceland hefur nú hafið formlegt samstarf við Unicef á Íslandi. Fyrirtækið, sem Guðrún Heimisdóttir og Þóra Eggerts- dóttir stofnuðu í fyrra, framleið- ir púsluspil og er viðfangsefnið íslensk náttúra og dýralíf. Af söluvirði hvers púsluspils renna 500 krónur til Unicef. Fyrir þær er til dæmis hægt að útvega 28 skammta af bóluefni gegn mænusótt. - ibs Púsluspil úr íslenskri náttúru: Sprotafyrirtæki styrkir Unicef SAMSTARF Guðrún Heimisdóttir, Stefán Ingi Stefánsson og Þóra Eggertsdóttir. FRAKKLAND Dómsmálaráðherra Frakklands, Michel Mercier, ætlar ekki að segja já óski belg- ísk yfirvöld þess að Mic- helle Martin, fyrrverandi eiginkona belg- íska barnaníð- ingsins Marc Dutroux, fái að ganga í franskt klaust- ur. Ónafn- greint klaustur í Frakklandi hefur samþykkt að taka við Michelle Martin en það þarf samþykki yfirvalda til þess. Dutroux var dæmdur í lífs- tíðarfangelsi fyrir fimmtán árum fyrir að hafa rænt og nauðgað sex stúlkubörnum. Fjórar stúlknanna létust úr hungri hjá Dutroux. Eiginkonan var dæmd fyrir aðild að glæpnum. Hún sótti um að verða látin laus vegna góðrar hegðunar í fangelsinu. - ibs Eiginkona Marc Dutroux: Fær ekki að ganga í klaustur Einkasundlaug í Fossvoginn Þó að borgaryfirvöld hafi vegna kreppunnar lagt til hliðar áform um almenningssundlaug í Fossvogsdal láta ekki allir íbúar þar deigan síga í þeim efnum. Þannig hefur eigandi einbýlishúss við Bjarmaland fengið leyfi byggingarfulltrúa til að koma fyrir átta metra sundlaug í garði sínum. REYKJAVÍKURBORG SPÁNN Tíu hið minnsta fórust í jarðskjálfta í bænum Lorca suðaustast á Spáni síðdegis í gær. Skjálftinn var 5,3 stig og felldi marg- ar byggingar í bænum, að því er fréttastofa BBC greinir frá. Jarðskjálftinn átti upptök sín um 120 kílómetra suðvestur af Alicante, sumarleyfisstað sem Íslendingum er að góðu kunnur. Lýsingar frá Lorca greina frá því að hús og spítalar hafi verið rýmdir í öryggisskyni. Gamlar byggingar hafa skemmst og hrunið. Fjöldi slasaðra liggur ekki fyrir, en spænsk- ir fjölmiðlar segja að þeir skipti tugum. Haft er eftir lækni í vefútgáfu El Pais að hann hafi sinnt mörgum íbúum bæjarins sem voru illa slasaðir, sumir meðvitundar- lausir. Þá eru yfirvöld þess fullviss að tala látinna eigi eftir að hækka á næstu klukku- stundum, enda fjölmargir undir rústum húsa. Íbúar bæjarins voru skelfingu lostnir og hópuðust út á götur og torg. Forsætisráðherra Spánar, José Luis Rodríguez Zapatero, hefur sent herlið á stað- inn til að aðstoða við björgunarstarfið. Bærinn Lorca er í Murcia, þar sem jarð- skjálftavirkni er mest á Spáni. Fjöldi eftir- skjálfta reið yfir svæðið í gærkvöldi sem jók enn á ótta íbúanna, greinir BBC frá. - shá Stærsti jarðskjálfti á Spáni í fimmtíu ár reið yfir síðdegis í gær og lagði bæinn Lorca í rúst: Tíu látnir og tugir mikið slasaðir á Spáni SKELFING RÍKIR Í LORCA Þegar er ljóst að tíu eru látnir en yfirvöld óttast að sú tala eigi eftir að hækka verulega. FRÉTTABLAÐIÐ/AP MARC DUTROUX GENGIÐ 11.05.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 218,523 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 113,43 113,97 186,99 187,89 163,08 164 21,87 21,998 20,918 21,042 18,222 18,328 1,4001 1,4083 181,47 182,55 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.