Fréttablaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 64
12. maí 2011 FIMMTUDAGUR48
Víkingsvöllur, áhorf.: 1.613
Víkingur KR
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 4–8 (1–6)
Varin skot Magnús 4 – Hannes 1
Horn 5–5
Aukaspyrnur fengnar 14–12
Rangstöður 1–6
KR 4–3–3
Hannes Halldórsson 6
Magnús Lúðvíksson 6
Skúli J. Friðgeirsson 6
Grétar Sigurðarson 7
Guðm. Gunnarsson 7
Bjarni Guðjónsson 7
*Viktor Arnarsson 7
(88., Dofri Snorra. -)
Baldur Sigurðsson 5
(62., Ásgeir Ólafs. 5)
Óskar Örn Hauksson 7
Kjartan Finnbogason 7
(75., Gunnar Jóns. -)
Guðjón Baldvinsson 6
*Maður leiksins
VÍKING. 4–3–3
Magnús Þormar 6
Walter Hjaltested 4
Egill Atlason 5
Mark Rutgers 6
Hörður Bjarnason 6
Denis Abdulahi 3
(50., Ingólfur Þórar. 4)
Halldór Sigurðsson 4
Baldur Aðalsteinsson 5
Sigurður Lárusson 3
(75., Pétur Markan -)
Gunnar Steindórsson 3
(62., Björg. Takefusa 5)
Helgi Sigurðsson 4
0-1 Óskar Örn Hauksson (33.)
0-2 Viktor Bjarki Arnarsson (70.)
0-2
Guðm. Guðmunds. (6)
Nettóvöllur, áhorf.: 1.480
Keflavík FH
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 9–12 (5–5)
Varin skot Ómar 4 – Gunnleifur 4
Horn 4–6
Aukaspyrnur fengnar 15–11
Rangstöður 3–2
FH 4–3–3
Gunnleifur Gunnleifs. 6
Ásgeir G. Ásgeirsson 6
Freyr Bjarnason 7
Pétur Viðarsson 6
Viktor Guðmundsson 7
Björn D. Sverrisson 6
Hólmar Rúnarsson 7
(73., Bjarki Gunnl. -)
*Matthías Vilhjálm. 8
Ólafur Páll Snorras. 5
(91., Gunnar Krist. -)
Atli Guðnason 4
(73., Hannes Sig. -)
Atli Viðar Björnsson 4
*Maður leiksins
KEFLAVÍK 4–5–1
Ómar Jóhannsson 7
Guðjón Antoníusson 6
Haraldur Guðmunds. 7
Adam Larsson 5
Goran Jovanovski 6
Einar O. Einarsson 5
(83., Grétar Hjartar. -)
Andri St. Birgisson 5
Hilmar Geir Eiðsson 6
Jóhann B. Guðm. 4
(73., Magnús Þorst. -)
Magnús Matthíasson 5
Guðmundur Steinars. 4
(60., Arnór Trausta. 5)
0-1 Matthías Vilhjálmsson (80.)
1-1 Grétar Ólafur Hjartarson (90.+1)
1-1
Valgeir Valgeirsson (4)
Þórsvöllur, áhorf.: 1.068
Þór Stjarnan
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 3–11 (2–6)
Varin skot Srdjan 5 – Magnús 2
Horn 7–7
Aukaspyrnur fengnar 11–14
Rangstöður 14–2
STJARN. 4–5–1
Magnús K. Pétursson 7
Jóhann Laxdal 6
Daníel Laxdal 6
Nikolaj Pedersen 7
Hörður Árnason 6
Björn Pálsson 6
Þorvaldur Árnason 6
Aron Jafetsson 5
(75., Bjarki Eysteins. -)
Jesper Jensen 6
Halldór O. Björnsson 6
(46., Víðir Þorvarð. 5)
*Garðar Jóhan. 7
*Maður leiksins
ÞÓR 4–3–3
Srdjan Rajkovic 7
Gísli Páll Helgason 4
Atli Jens Albertsson 4
Þorsteinn Ingason 5
Aleksandar Linta 6
(46., Ingi Hilmars. 5)
Janez Vrenko 6
(72., Ármann Ævars. -)
Gunnar Guðmunds. 6
Atli Sigurjónsson 6
Sigurður Kristjánsson 4
(72., David Disztl -)
Sveinn Elías Jónsson 5
Jóhann Hannesson 5
0-1 Garðar Jóhannsson, víti (56.)
0-1
Þorvaldur Árnason (7)
Fylkisvöllur, áhorf.: 1.242
Fylkir Fram
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 8–14 (4–8)
Varin skot Fjalar 8 – Ögmundur 4
Horn 5–6
Aukaspyrnur fengnar 10–11
Rangstöður 0–2
FRAM 4–3–3
Ögmundur Kristins. 6
Daði Guðmunds. 5
*Jón Orri Ólafsson 7
Kristján Hauksson 6
Sam Tillen 6
Jón Guðni Fjóluson 6
Halldór H. Jónsson 6
Kristinn I. Halldórs. 6
Guðmundur Magnús. 5
(67., Andri Júlíus. 5)
Almarr Ormarsson 6
Arnar Gunnlaugsson 5
(80., Tómas Leifs. -)
*Maður leiksins
FYLKIR 4–3–3
Fjalar Þorgeirsson 7
Þórir Hannesson 6
Kristján Valdimars. 5
Valur F. Gíslason 6
Tómas J. Þorsteins. 5
Baldur Bett 5
(46., Oddur Guðm. 5)
Gylfi Einarsson 7
Andrés Jóhannesson 6
Ingimundur Óskars. 6
(62., Rúrik Þorfinns. 5)
(83., Davíð Ásbjör. -)
Jóhann Þórhallsson 6
Albert B. Ingason 5
0-0
Magnús Þórisson (7)
Pepsi-deild karla:
STAÐAN:
KR 3 2 1 0 6-3 7
Valur 3 2 0 1 3-1 6
ÍBV 3 2 0 1 3-2 6
Keflavík 3 1 2 0 6-4 5
FH 3 1 1 1 5-3 4
Fylkir 3 1 1 1 4-4 4
Víkingur 3 1 1 1 2-2 4
Stjarnan 3 1 1 1 3-4 4
Grindavík 3 1 0 2 4-6 3
Breiðablik 3 1 0 2 5-8 3
Þór 3 1 0 2 1-3 3
Fram 3 0 1 2 0-2 1
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
með Miele
kr.: 24.900
Verðlistaverð kr.: 33.200
Tango Plus er vinsælasta ryksugan frá Miele
Miele ryksugurnar eru traustar
og kraftmiklar, með stillanlegu
röri og úrvali fylgihluta. Þær
hafa hlotið hæstu einkunn hjá
neytendasamtökum í Þýskalandi.
AFSLÁTTUR
Care Collection ryksugupokar
og ofnæmissíur eru sérstaklega
framleidd fyrir Miele ryksugur
Farðu alla leið með Miele
FÓTBOLTI Gamla kempan Grétar
Hjartarson tryggði Keflavík eitt
stig með marki á lokaandartökum
leiksins gegn FH. Skömmu áður
hafði Matthías Vilhjálmsson, fyr-
irliði FH-inga, komið sínum mönn-
um yfir.
Freyr Bjarnason, miðvörður FH-
inga, átti hættulegasta færi fyrri
hálfleiks þegar kollspyrnu hans var
bjargað á marklínu. Heimir Guð-
jónsson, þjálfari FH-inga, hefur
eflaust messað ærlega yfir sínum
strákum í leikhléinu því leikurinn
umbreyttist í seinni hálfleik. FH-
ingar höfðu tögl og hagldir og sköp-
uðu þeir sér mýgrút færa.
Það var loks eftir 80. mínútna
leik sem Keflavíkurvörnin lét
undan. Matthías Vilhjálmsson
skoraði þá úr aukaspyrnu af um
það bil 25 metra færi. Við mark
Matthíasar var sem Keflvíkingar
vöknuðu af værum blundi.
Á 86 mínútu fékk Viktor Guð-
mundsson FH-ingur að líta sitt
annað gula spjald og þar af leið-
andi það rauða. Keflvíkingar nýttu
sér liðsmuninn og á 91. mínútu
jafnaði Grétar Hjartarson leikinn
þegar hann potaði boltanum inn
eftir skot Magnúsar Þorsteins-
sonar.
Grétar Hjartarson var kampa-
kátur í leikslok. „Auðvitað er frá-
bært að koma inn á og skora jöfn-
unarmarkið og ég get ekki verið
annað en virkilega sáttur. Þetta
var baráttuleikur og þó að FH-ing-
ar hafi stjórnað leiknum í seinni
hálfleik þá fannst mér þetta sann-
gjarnt heilt yfir.“
Spurður hvort hann geri þá ekki
kröfu um byrjunarliðssæti í næsta
leik hafði Grétar þetta að segja:
„Ég leyfi nú bara þjálfaranum að
ráða. Hann velur liðið og ég bíð
bara eftir mínu tækifæri og reyni
bara að nýta það sem ég fæ, en það
að skora svona mark er gott fyrir
sjálfstraustið.“ - ae
Grétar Ólafur Hjartarson kom af bekknum og tryggði Keflavík stig gegn FH:
Grétar nýi bjargvætturinn í Keflavík
FÓTBOLTI KR vann góðan og verð-
skuldaðan 2-0 útisigur á Víkingi
í gærkvöld eftir að hafa verið 1-0
yfir í hálfleik.
„Mér fannst við seinir í gang.
Þetta var ekki áferðarfallegur fót-
bolti fyrsta hálftímann. Þá náðum
við yfirhöndinni á miðjunni og
spiluðum mjög vel út fyrri hálf-
leik og í seinni hálfleik. Við náðum
að setja pressu á þá fyrir fyrsta
markið og svo áttum við allan
seinni hálfleikinn skuldlaust,“
sagði Viktor Bjarki Arnarsson sem
skoraði seinna mark KR í leiknum.
Víkingar léku ágætis varnar-
leik lengst af leiknum en áttu erfitt
uppdráttar sóknarlega og sköpuðu
sér fá færi við mark KR. „Sókn-
in hefur verið sterk hjá þeim. Þeir
eru með virkilega sterka fram-
herja en við lögðum þetta upp með
að vera rólegir á boltann og þreyta
þá og það gekk eftir,“ sagði Viktor
Bjarki.
Andri Marteinsson, þjálfari
Víkings, var alls ekki ósáttur við
frammistöðu síns liðs þrátt fyrir
tapið.
„Leikurinn er í algeru jafnvægi
þegar menn gleyma sér í fimm
mínútur og eru seinir að elta
mennina og miðjan dettur niður
í varnarlínuna og KR-ingar setja
á okkur mikla pressu sem kostaði
mark.“
Aðdragandi seinna marks KR
var vægast sagt umdeildur því
brotið var á Walter Hjaltested
sem velti sér sárþjáður útaf vell-
inum. KR-ingar nýttu sér gatið
sem myndaðist í hægri bakverði
Víkings og gerðu út um leikinn
með öðru marki sínu. Andri var
allt annað en sáttur við Guðmund
Ársæl dómara í aðdragandanum.
„Dómarinn sem hafði ekki beitt
hagnaðarreglunni allan leikinn
ákveður að beita henni fyrir okkur
sem verður til þess að við fáum
sókn í bakið og við fáum á okkur
mark. Það segir allt sem segja
þarf um hans frammistöðu hér í
kvöld,“ sagði Andri.
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR,
var eðlilega himinlifandi með
stigin þrjú. „Það er erfitt að koma
hingað og mæta vel skipulögðu
Víkingsliði. Við þurftum eins og
alltaf að gefa okkur alla í leikinn.
Við sækjum ekki þrjú stig í nein-
um leik í Íslandsmótinu án þess að
hafa fyrir því,“ sagði Rúnar. - gmi
Sannfærandi hjá KR-ingum
KR skellti sér á topp Pepsi-deildarinnar í gær með sannfærandi sigri, 0-2, á
Víkingi. Góð byrjun Vesturbæinga í sumar heldur því áfram og þeir öflugir.
FAGNAÐ KR-ingar fagna hér marki
Óskars Arnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FANN SIG VEL Í VÍKINNI Viktor Bjarki Arnarsson lék vel gegn sínum gömlu félögum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON