Fréttablaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 54
12. maí 2011 FIMMTUDAGUR38 tonlist@frettabladid.is Tony Allen er einn af dáðustu trommuleikurum heims. Hann er þekkt- ur sem „maðurinn sem bjó til bítið í afróbít tónlistinni“. Hann var trommuleikari Fela Kuti á hátindi ferilsins, á árunum 1964-1979. Það eru til ótal sögur um Tony. Brian Eno sagði einhvern tímann að hann væri „ef til vill besti trommari sem uppi hefði verið“ og svo er það sagan af því þegar James Brown spilaði í Nígeríu 1970 og setti sínum mönnum fyrir það verkefni að stúdera þennan galdramann sem spilaði á trommur með Fela. Ginger Baker er líka aðdáandi og lærði sitthvað af Tony. Tony Allen hefur gefið út slatta af sólóplötum sem eru flestar frá- bærar. Sú fyrsta heitir Jealousy og kom út 1975, en sú nýjasta er Secret Agent sem kom út hjá heim- stónlistarrisanum World Circuit fyrir tveimur árum. Fín plata. Tony býr í dag og starfar í París. Hann er eftirsóttur til að starfa með og hefur á undanförnu árum m.a. spilað með Sébastien Tellier, Charlotte Gainsbourg, Manu Dibango, Zap Mama og Grace Jones. Árið 2006 fékk Damon Albarn hann með sér í spútniksveitina The Good The Bad & The Queen ásamt Clash- bassaleikaranum Paul Simonon og gítarleikaranum Simon Tong úr The Verve, og fyrir tveimur árum gerðu Tony Allen og Finninn frækni Jimi Tenor saman plötuna Inspiration Information 4. Koma Tony Allen á Listahátíð er einstakt tækifæri til þess að upplifa mjög áhrifamikinn og öflugan tónlistarmann. Það verður spennandi að sjá hvernig þessum gamla meistara tekst að sameinast Stórsveit Samú- els Samúelssonar og sjá og heyra hvaða lög verða á efnisskránni. Tón- leikar Tony Allen og Stórsveitar Samma verða í Tjarnarbíói 1. júní. TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson TÓNLISTINN Vikuna 5. - 11. maí 2011 LAGALISTINN Vikuna 5. - 11. maí 2011 Sæti Flytjandi Lag 1 Adele ...................................................Someone Like You 2 Megas & Senuþjófarnir ...Lengi skal manninn reyna 3 Valdimar ..............................................................Yfirgefinn 4 Jessie J ..................................................................Price Tag 5 Bubbi Morthens................................................... Ísabella 6 Vinir Sjonna.............................................. Coming Home 7 Eyjólfur Kristjánsson & Björn Jörundur .........Allt búið 8 Valdimar ............................................................. Brotlentur 9 Páll Rósinkranz & Magnús Þór Sigmundss... .. Loforð 10 Britney Spears .................................Till The World Ends Sæti Flytjandi Plata 1 Ýmsir ......Eurovision Song Contest 2011: Düsseldorf 2 Megas og Senuþjófarnir ..... (Hugboð) um vandræði 3 Sjonni‘s Friends ...................................... Coming Home 4 Valdimar ............................................................Undraland 5 Ýmsir .........................Gleðibankinn: 25 ár í Eurovision 6 Eyfi .....................................Ykkur syng ég mína söngva 7 Skálmöld ...................................................................Baldur 8 Svavar Knútur ..........................................................Amma 9 Magnús og Jóhann ................Ástin og lífið 1971-2011 10 Páll Rósinkranz ...........................................Ó hvílík elska Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds- son, 12 tónar, Smekkleysa plötubúð, Havarí, Elkó, tonlist.is Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is. Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista Skýringar: SPILAR Á LISTAHÁTÍÐ Tony Allen spilar með Stórsveit Samma á Listahátíð 1. júní. Lifandi goðsögn á Listahátíð Okkervil River er ekki þekktasta hljómsveit heims, en hefur engu að síður verið dáð af tónlistargrúskurum síðustu ár. Ný plata hljóm- sveitarinnar markar skil og gefur til kynna að nú stefni hljómsveitin á megin- straumsvinsældir líkt og Arcade Fire. Indí-hljómsveitin Okkervil River sendi frá sér plötuna I Am Very Far í vikunni. Plötunni var lekið á netið í apríl og fór í kjölfarið að vekja mikla athygli tónlistar- grúskara um allan heim. Okkervil River hefur farið erfiðu leiðina á ferli sínum og byggt upp vinsældir sínar hægt, en örugglega. Hljómsveitin var stofnuð í Texas í Bandaríkjunum, nánar tiltekið í borginni Austin, árið 1998 og dregur nafn sitt af rússneskri smásögu höfundarins Tatyana Tolstaya. Hljómsveit- in gaf sjálf út fyrstu plötuna og kom í kjölfarið fram á South by Southwest-tónlistarhátíðinni í Texas. Plötusamningur fylgdi í kjölfarið og fleiri plötur. Þemaplatan Black Sheep Boy, sem kom út árið 2005, sló í gegn og var sérstaklega vel tekið af gagn- rýnendum. Okkervil River hélt áfram að hamra járnið, kom fram í kvöldþætti Conans O‘Brien og tróð upp með listamönnum á borð við Lou Reed og snillingunum í The National. I Am Very Far er sjötta plata Okkervil River og sú fyrsta í átta ár sem er ekki þemaplata (e.þ. con- cept). Gagnrýnendur hafa keppst við að ausa plötuna lofi og Alexis Petridis, gagnrýnandi breska dag- blaðsins The Guardian segir að nú sé Okkervil River að gera tilraun til að spila með stóru strákunum – fara upp um deild. Hann segir plötuna grípa strax ólíkt mörgum öðrum plötum sem taka tíma í að síast inn hjá hlustendum. Platan inniheldur engu að síður ekkert vinsældapopp og þykir nokkuð til- raunakennd. Meðlimir hljómsveit- arinnar fóru ýmsar óhefðbundn- ar leiðir við upptökur á plötunni, tóku upp hljóð í skjalaskáp sem þeir rúlluð um hljóðverið og próf- uðu að syngja á röltinu í stað þess að standa kyrrir. Petridis nefnir hljómsveitina Arcade Fire sem dæmi um hvert Okkervil River stefnir. Arcade Fire hefur náð gríðarlegum vin- sældum undanfarin ár, án þess að fórna tónlistarlegum metnaði. Síðasta plata hljómsveitarinnar, The Suburbs, þótti algjört meist- arastykki og styrkti stöðu hljóm- sveitarinnar á meðal þeirra bestu. Þangað stefnir Okkervil River að mati gagnrýnanda The Guardian. atlifannar@frettabladid.is Okkervil River reynir að spila með stóru strákunum STEFNA HÁTT Okkervil River hefur sent frá sér nýja plötu sem gæti gert hljómsveitina miklu stærri að mati The Guardian. Í SPILARANUM Andrea Gylfadóttir og Blúsmenn - Rain On Me Rain Guðmundur - Guðmundur Cex - Tiny Creature Eurovision - Song Contest Düsseldorf 2011 Las Vegas-hljómsveitin The Killers hefst handa við að semja nýtt efni í næstu viku, samkvæmt trommaranum Ronnie Vannucci. Vannucci lýsti því yfir í við- tali á útvarpsstöðinni XFM í London að meðlimir The Killers ættu hrúgu af hug- myndum að lögum sem þeir vilji leyfa hver öðrum að heyra. Þá bætti hann við að þeir væru búnir að ákveða að hittast þriðjudaginn 17. maí. „Við ætlum að koma saman og byrja að vinna,“ sagði hann. The Killers sendi síðast frá sér plötuna Day & Age árið 2008, sem var þriðja plata hljómsveitarinnar. Meðlimir The Killers hafa einbeitt sér að eigin verkefnum undan- farin misseri og söngvarinn Brandon Flowers sendi til að mynda frá sér nokkuð vel heppnaða sólóplötu í fyrra. Killers vinnur að nýju efni AFTUR AF STAÐ The Killers hefur látið lítið fyrir sér fara undanfarið, en hyggst byrja á nýrri plötu í næstu viku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.