Fréttablaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 9
Kynntu þér nýja námsmöguleika í framhaldsskólum, frumgreinadeildum,
háskólum og fullorðinsfræðslu. Ráðgjafar frá Vinnumálastofnun og skólunum
aðstoða þig við að finna heppilegustu leiðirnar til að bæta menntun, auka hæfni
þína og fjölga atvinnumöguleikum. Kynningin er opin öllum.
Í DAG, 12. MAÍ KL. 11-16
OPIN NÁMSKYNNING
Í LAUGARDALSHÖLL
SKÖPUN TÆKNI UMÖNNUN
Skapandi greinar verða sífellt mikilvægari í atvinnu-
lífinu og nú eru ársverk í þeim geira nærri 10.000.
Ný hugverk eru verðmæti, störfin skemmtileg og
þörfin fyrir skapandi starfskrafta mun halda áfram
að aukast. Námsráðgjafar og skólar munu kynna
námsleiðir og nýja möguleika á þessu sviði.
Á næstu árum er áætlað að fjöldi nýrra starfa
skapist ár hvert í verk- og tæknigeiranum. Aukin
þörf fyrir starfsfólk með menntun og hæfni í verk-
legum greinum skapar spennandi tækifæri fyrir
alla sem vilja bæta við grunnmenntun sína og bæta
stöðu sína á vinnumarkaði. Fjölmörg námstækifæri
á þessu sviði verða kynnt á námsstefnunni.
Með hækkandi meðalaldri og sífellt betri aðbúnaði
fjölgar umönnunarstörfum ár frá ári. Eftirspurn
eftir menntuðu starfsfólki er mikil og líklegt er að
hún fari vaxandi næstu ár. Störf í þessum geira
eru fjölbreytt og tækifærin mörg. Námsmöguleikar
á framhalds- og háskólastigi verða kynntir auk
ýmissa símenntunartækifæra.
Nú verður mun auðveldara en áður að komast að í framhaldsskóla eftir námshlé. Haustið
2011 munu skólarnir taka inn alla umsækjendur undir 25 ára aldri sem uppfylla skilyrði,
ásamt eldri umsækjendum sem hafa lokið raunfærnimati vorið 2011.
1000 NÝ TÆKIFÆRI FYRIR ATVINNULEITENDUR
OPNIR FRAMHALDSSKÓLAR
Þeim sem verið hafa á atvinnuleysisskrá frá því fyrir 1. mars gefst nú kostur á að stunda nám
á haustönn án þess að greiða skólagjöld. Markmiðið er að veita 1000 umsækjendum aðgang
að framhaldsskólum, frumgreinadeildum, háskólum og framhaldsfræðslu – með óskertum
atvinnuleysisbótum í eina önn.