Fréttablaðið - 26.05.2011, Blaðsíða 4
26. maí 2011 FIMMTUDAGUR4
GENGIÐ 25.05.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
220,3911
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
116,55 117,11
189,12 190,04
163,83 164,75
21,968 22,096
20,893 21,017
18,355 18,463
1,4204 1,4288
184,34 185,44
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Í sérblaði um heilsu í gær gleymdist
föðurnafn Jóhanns Leós Lindusonar
Birgissonar í umfjöllun um bók hans Í
annarra manna spor.
LEIÐRÉTTING
postulínsbollar með
sílikonloki og haldi.
kr. 1299.-
Baggubag eru sterkir,
pokar sem rúma jafn
mikið og venjulegur
plastpoki.
minnkum notkun á plasti og pappabollum
kr. 1950.-
IUMHVERF SVÆNT
ÞÆGILEGT &
DÓMSMÁL Tveir meðlimir vélhjóla-
gengisins Black Pistons beittu
mann, sem þeir réðust á og héldu
nauðugum fyrr í mánuðinum,
hrottalegum hótunum og ofbeldi.
Þeir börðu hann klukkustundum
saman í höfuðið og líkama með
ýmsum áhöldum, hýddu hann
með þykkri rafmagnssnúru og
hótuðu honum að skornar yrðu í
sundur sinar á fótleggjum og tenn-
ur dregnar úr honum. Þeir sögðu
fórnarlambinu að það skuldaði
þeim tíu milljónir króna.
Gæsluvarðhald yfir mönnunum,
Ríkharð Júlíusi Ríkharðssyni, for-
sprakka Black Pistons, og Davíð
Frey Rúnarssyni rennur út á
morgun, en þeir sitja jafnframt í
einangrun.
Í kjölfar þessa máls barst lög-
reglunni tilkynning um að menn-
irnir væri viðriðnir önnur mál
af svipuðum toga. Í síðustu viku
greindi maður lögreglunni frá því
að hafa greitt ódæðismönnunum
umtalsverða fjárhæð í því skyni
að koma syni sínum undan þeim.
Af ótta við mennina vildi hann
ekki aðhafast frekar í málinu á
sínum tíma. Lögreglan hefur nú
tekið málið til rannsóknar og mun
reyna að upplýsa það meðal ann-
ars með því að afla upplýsinga um
bankareikninga Black Pistons-
mannanna.
Enn fremur hefur lögreglan
nýverið fengið upplýsingar um
að Davíð Freyr hafi svipt annan
mann frelsi og haldið föngnum og
misþyrmt í bifreið og í iðnaðar-
húsnæði. Rannsókn þess máls er á
algjöru frumstigi, að því er fram
kemur í gögnum frá lögreglustjór-
anum á höfuðborgarsvæðinu, sem
send voru Hæstarétti.
Ofbeldismennirnir tveir sem
sitja nú inni fyrir að hafa haldið
manni nauðugum og misþyrmt
sóttu hann að kvöldi þriðjudags-
ins 10. maí í iðnaðarhverfi á
höfuðborgarsvæðinu. Honum var
ekið að heimili Ríkharðs og mis-
þyrmt þar. Barsmíðarnar stóðu
yfir allt fram til hálf eitt um nótt-
ina. Þá var hann fluttur með hettu
yfir höfðinu í geymsluhúsnæði
sem hann þekkti ekki. Þar var
honum haldið til morguns en þá
sótti Davíð Freyr hann og fór með
hann aftur á heimili Ríkharðs,
þar sem ofbeldismennirnir rukk-
uðu hann um ofangreinda „skuld“.
Síðan var enn ekið með fórnar-
lambið sem tókst að sleppa út úr
bílnum við Borgartún í Reykjavík
um klukkan tólf á hádegi daginn
eftir.
Við leit í íbúð Ríkharðs voru
víða blóðblettir og sams konar
sverð, hnífur og leðurbelti sem
fórnarlambið hafði áður lýst.
ritstjorn@frettabladid.is
OFBELDISVERK Lögregla fann meðal annars sverð, hníf og leðurbelti í íbúð annars
ofbeldismannsins, en þeir hótuðu fórnarlambinu að skera sundur sinar í fótum hans
og draga úr honum tennurnar. Sviðsett mynd.
Rannsaka fleiri brot
félaga í Black Pistons
Tveir meðlimir vélhjólagengisins Black Pistons, sem beittu mann grófu ofbeldi
fyrr í mánuðinum, eru til rannsóknar fyrir fleiri mál. Um er að ræða fjárkúgun,
nauðung og ofbeldi gegn að minnsta kosti tveimur öðrum einstaklingum.
UMHVERFISMÁL Sýnataka úr jarð-
vegi og sjávarseti til mælingar á
díoxíni og fleiri efnum er hafin á
vegum Umhverfisstofnunar.
Umrædd svæði fyrir jarðvegs-
sýnatöku eru í grennd við starf-
andi og aflagðar sorpbrennslur,
sorpflokkunarstöð, stærstu verk-
smiðjur, í nokkrum brennustæðum
fyrir árlegar opnar brennur auk
þess sem sýni verða tekin á tíu við-
miðunarstöðum þar sem ekki er að
vænta díoxíns af manna völdum.
Sýni úr sjávarseti verða tekin í
Skutulsfirði og á viðmiðunarstað.
Við sýnatökuna er gengið út frá
því að taka jarðvegssýnin á lítt
röskuðu landi undan gróðurþekju
þar sem tún eða gras er ekki slegið
og jörð ekki of blaut. Undantekn-
ing er þó Engidalur, inn af Skutuls-
firði, þar sem einnig verður tekið
sýni til samanburðar undan túni
sem slegið er reglulega.
Verkís í samvinnu við rannsókn-
arþjónustuna Sýni hefur tekið að
sér sýnatökuna og mun sjá til þess
að mælingar fari fram í sýnunum.
Mælingarnar munu fara fram
hjá rannsóknarstofunni Eurofins.
Sýnatökunni lýkur á næstu tveim-
ur vikum og er niðurstaðna að
vænta eigi síðar en 20. júní næst-
komandi. - shá
Sýnataka Umhverfisstofnunar vegna Funamálsins hafin víða um land:
Mælingar á díoxíni hafnar
FUNI Á ÍSAFIRÐI Mesta díoxín-mengunin
er talin finnast í nágrenni við sorp-
brennsluna Funa og sérstök áhersla er
lögð á sýnatöku í Skutulsfirði.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
27°
29°
25°
17°
26°
25°
17°
17°
22°
15°
27°
27°
32°
14°
17°
19°
14°Á MORGUN
Strekkingur allra austast
og með SA-ströndinni,
annars hægari.
LAUGARDAGUR
Fremur hægur vindur
víða um land. 78
5
8
8
6
67
76
8
7
7
6
6
7
5
6
6
6
3
5
7
6
5
3
4
3
6
3
4
3
SKIN OG SKÚRIR
Það verður nokkuð
bjart víða um land
í dag en suðvestan
til fer að rigna þeg-
ar líður á daginn og
þá bætir í vind. Á
morgun verður ein-
hver væta víða um
land en mest þó á
Suðausturlandi. Á
laugardag léttir til
sunnanlands og þá
gæti hitinn náð 14
stigum vestan til.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
NOREGUR Sjö íslenskir hestar
drápust þegar þeir urðu fyrir lest
í Meråker í Noregi á þriðjudag.
Alls höfðu ellefu hestar sloppið
út úr gerði í nokkurra kílómetra
fjarlægð og voru á leið yfir járn-
brautarteinana þegar óhappið
átti sér stað.
Fjögurra hrossa var að auki
saknað í fyrstu og óvíst um afdrif
þeirra, en í gær kom hesturinn
Máni í leitirnar, lítillega meiddur.
Eigandi hestanna sagði í sam-
tali við Verdens Gang að Máni
væri frekar styggur og það hafi
sennilega orðið honum til lífs.
60 farþegar voru í lestinni sem
ók á hestana en engan sakaði. - þj
Lestarslys í Noregi:
Sjö íslenskir
hestar drápust
SVEITARSTJÓRNIR Þrír bæjarfulltrú-
ar af sjö í Vesturbyggð eru nú
samtímis í fæðingarorlofi. Sagt
er frá þessu á vef sveitarfélags-
ins undir fyrirsögninni „Bæjar-
fulltrúar í Vesturbyggð leggja
sitt af mörkum við að fjölga í
sveitarfélaginu.“
Fram kemur að bæjarfull-
trúarnir sem um ræðir séu
Ásgeir Sveinsson, Ásdís Snót
Guðmundsdóttir og Guðrún Egg-
ertsdóttir sem öll hafa eignast
syni nú á síðustu mánuðum, nú
síðast Guðrún sem ól son 14. maí
síðastliðinn. „Vesturbyggð óskar
þeim og fjölskyldum þeirra til
hamingju með drengina,“ segir á
heimasíðu Vesturbyggðar. - gar
Frjósemi í Vesturbyggð:
Bæjarfulltrúar
í fæðingarorlofi
EGYPTALAND, AP Egypsk stjórnvöld
hafa ákveðið að frá og með næsta
laugardegi verði landamærahlið-
ið í Rafah yfir til Gasasvæðis-
ins opið fyrir umferð Palestínu-
manna.
Herstjórnin, sem tók við
völdum í Egyptalandi til bráða-
birgða eftir að Hosni Mubarak
forseti hraktist frá völdum,
segir opnun landamæranna eiga
meðal annars að efla sættir milli
Palestínu manna innbyrðis. Þetta
er mikil stefnubreyting frá því að
Mubarak var við völd. - gb
Egyptar opna Rafah:
Opið verður til
Gasa framvegis
LANDAMÆRAHLIÐIÐ Í Rafah verður
framvegis opið fyrir Palestínumenn.
NORDICPHOTOS/AFP
DÝRAHALD Umhverfis- og sam-
gönguráð Reykjavíkur hefur
samþykkt að öryggi hunda og
hundaeigenda verði bætt á næstu
dögum á Geirsnefi við Elliðaár-
ósa. Þetta er gert með því að loka
fyrir akstur inn á svæðið. Lokun
verður beggja vegna við hunda-
gerðið. Þetta var samþykkt ein-
róma á fundi ráðsins á þriðjudag.
Kvartanir hafa borist undan-
farin misseri um að akstur á
þessum slóðum dragi úr öryggi
hunda en leyfilegt er að sleppa
hundum lausum á þessu svæði.
- shá
Hundahald í Reykjavík:
Öryggi hunda
bætt á Geirsnefi
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært tæplega fimmtugan karl-
mann fyrir umboðssvik.
Manninum er gefið að sök að
hafa ítrekað á árinu 2007 mis-
notað aðstöðu sína, sem versl-
unarstjóri Byko á Selfossi, og
án heimildar komið því til leiðar
að 5x ehf. fékk afhentar vörur
frá versluninni án þess að stað-
greiða þær, sem var andstætt
lánareglum Byko hf. Byko krefst
þess að maðurinn verði dæmdur
til greiðslu skaðabóta að upphæð
6.508.140 króna. - jss
Verslunarstjóri fyrir dóm:
Ákærður fyrir
umboðssvik