Fréttablaðið - 26.05.2011, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 26.05.2011, Blaðsíða 8
26. maí 2011 FIMMTUDAGUR8 Verulega hefur dregið úr virkni eldgossins í Grímsvötnum og um miðjan dag í gær rann ekkert hraun úr gígum fjallsins. Gígar sem gosið hefur í eru fullir af vatni og leggur gufustróka upp af þeim milli þess sem sprengingar verða í fjallinu. „Þetta er orðið mjög lítið gos sem hefur bara áhrif í gígnum og næsta nágrenni hans,“ segir Magnús Tumi Guðmundsson, pró- fessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands. Hann varar þó fólk við því að fara of nærri eldstöðinni, enda séu sprengingarnar sem komi af og til þegar kvika komi upp á yfirborðið afar hættulegar fólki sem fari of nærri gígunum. Slíkar sprengingar mældust aðfaranótt miðvikudags, og fór öskustrókurinn frá fjallinu í allt að tólf kílómetra hæð eftir slíkar sprengingar. Strókurinn fór hæst í yfir 20 kílómetra hæð stuttu eftir að gosið hófst. Flugvél Landhelgisgæslunn- ar, TF-SIF, flaug áleiðis að gos- inu með vísindamenn seinni- part dags í gær, en þurfti frá að hverfa vegna gjóskumisturs áður en hún komst nægilega nálægt gosstöðinni. „Aðalgosið er búið, þetta hefur öll einkenni þess að eldgosið sé að deyja út,“ segir Magnús Tumi. Hann segir að gosið geti kraum- að svona í einhvern tíma. Það gæti þess vegna hætt alveg í dag, eða það gæti kraumað í nokkrar vikur eða jafnvel mánuði áður en því lýkur endanlega. Eldgosið í Grímsvötnum var mjög öflugt samanborið við fyrri gos í fjallinu. Leita þarf aftur til ársins 1873 til að finna viðlíka öfl- ugt gos þar, segir Magnús Tumi. Hann segir ekkert hægt að segja til um það út frá sögu eld- gosa í Grímsvötnum hvort líkur séu á því að næsta gos þar verði álíka öflugt og þetta gos var í upphafi. Aska frá gosinu berst ekki leng- ur nægilega hátt til að hafa áhrif á flugumferð. Enn gætir þó áhrifa frá öskuskýi frá fyrsta degi goss- ins, en það hefur borist undan vindi til norðanverðrar Evrópu, og gæti haft áhrif á flug næstu daga. brjann@frettabladid.is Orka fyrir samgöngur Dagskrá: Clean and Renewable Energy Philip Metcalfe, ráðgjafi á sviði endurnýjanlegrar orku Orka í samgöngum - hvaða lausn er best? Guðrún Sævarsdóttir, lektor við Tækni- og verkfræðideild HR Græna orkan - vettvangur stefnumótunar í orkuskiptum Sverrir Viðar Hauksson, formaður verkefnisstjórnar Grænu orkunnar Philip Metcalfe er rafmagnsverkfræðingur og starfar sem ráðgjafi með áherslu á fjárfest- ingar í endurnýjanlegri orku. Hann hefur m.a. starfað í verkefnum um lífdísel, vindmyllur og kolefnisviðskipti. Fundarstjóri: Orri Hauksson, framkvæmdastjóri SI Fundurinn er opinn og aðgangur ókeypis Skráning á www.si.is Samtök iðnaðarins, Háskólinn í Reykjavík og Samál standa fyrir fundaröð um orkumál í Háskólanum í Reykjavík, Herkúles 5, 2. hæð Föstudaginn 27. maí kl. 8.30 - 10.00 ELDGOS Í GRÍMSVÖTNUM Ekki er útlit fyrir að frekari tafir verði á millilandaflugi í Evrópu sökum ösku frá Grímsvatnagosi, en tæplega 450 flugferðum var aflýst á þýskum flugvöllum í gær, aðallega í Bremen, Hamborg og Berlín. Ösku varð einnig vart í Rúss- landi en það hafði ekki áhrif á flugumferð. Samkvæmt tilkynningu frá Eurocontrol, loftferðaeftirliti Evr- ópu, eru þýskir flugvellir opnir að nýju og er ekki gert ráð fyrir frekari töfum í dag. Í tilkynningu frá Isavia segir jafnframt að ekki sé búist við frekari töfum á flugi frá Kefla- víkurflugvelli. Þó eru enn deilur í Bretlandi þar sem flugfélög telja að flugbannið á þriðjudag hafi verið allt of víð- tækt. British Airways fóru að for- dæmi Ryanair frá deginum áður og sendu þotu í rannsóknarflug upp í meint öskusvæði. Þeir sögðu engin merki um skemmdir vegna ösku. Þýski samgönguráðherrann sagði í viðtali við AP að varúðar- ráðstafanirnar væru réttlætanleg- ar. Gosið í Eyjafjallajökli í fyrra hafi verið lærdómsríkt og yfirvöld séu vel undir slík tilvik búin. - þj Útlit fyrir að engar frekari tafir verði á flugi: Flug í Evrópu aftur komið á fulla ferð ALLT Í SAMT LAG Ólíklegt er að frekari tafir verði á millilandaflugi í Evrópu sökum Grímsvatnagoss. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞORGILS Gufa stígur upp af gígum Lítið bar á eldgosinu í Grímsvötnum í gær þótt af og til kæmu sprengingar. Fólk er varað við því að fara of nærri eldfjallinu. Flugvél Landhelgisgæslunnar komst ekki að fjallinu í gær vegna gjóskumisturs. EFTIRLITSFLUG Vísindamenn flugu að gosstöðvunum í Grímsvötnum í flugvél Land- helgisgæslunnar í gær, en komust ekki nærri vegna gjóskumisturs. MYND/SIGURJÓN Settur hefur verið á laggirnar sjóður sem ætlað er að safna fé meðal fyrirtækja til að styrkja bændur á því svæði sem orðið hefur fyrir búsifjum af völdum eldgossins í Grímsvötnum. Í tilkynningu frá Guðna Ágústssyni, fyrrverandi landbún- aðarráðherra, sem situr í verk- efnisstjórn sjóðsins, er skorað á fyrirtækin í landinu að leggja framtakinu til fé. Þar segir að þótt hluti þess tjóns sem bændur hafa orðið fyrir fáist bættur sýni reynsl- an að margt muni þar standa útaf. Bændur verði að óbreyttu að bera verulegan hluta af tjóni vegna gossins sjálfir. - bj Söfnun meðal fyrirtækja: Styrkja bændur á gossvæðinu ASKA Bændur hafa orðið fyrir miklum búsifjum í eldgosinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HREINSUNARSTARF Mikið verk er fram undan við að hreinsa ösku sem fokið hefur í skafla. Björgunarsveitarmenn tóku til hendinni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Gosaska getur virkað eins og sandblástur á bíla, að því er fram kemur hjá Ævari Friðrikssyni, tæknistjóra Félags íslenskra bif- reiðaeigenda, á vef félagsins. „Lakk á bílum og framrúður eru auðvitað í hættu ef ekið er langtímum saman í gosmekk- inum og sérstaklega ef ekið er greitt,“ er eftir Ævari haft. „Lakk og jafnvel framrúðurnar verða mattar. Ennfremur geta loftsíur orðið fljótar að fyllast og jafnvel stíflast.“ Hann segir því skyn- samlegt af bíleigendum að eiga loftsíu til vara. - óká Askan getur skemmt bíla: Lakk og fram- rúður í hættu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.