Fréttablaðið - 26.05.2011, Síða 16
26. maí 2011 FIMMTUDAGUR16 16
hagur heimilanna
Um helmingur flugfarþega
hefur ekki fengið þá aðstoð
sem flugrekendum ber að
bjóða vegna seinkunar á
flugi. Þetta eru niðurstöður
rafrænnar könnunar Neyt-
endasamtakanna og Evr-
ópsku neytendaaðstoðar-
innar sem gerð var í apríl
síðastliðnum.
Misbrestur er jafnframt á að flug-
rekendur setji upp auðlæsilega til-
kynningu við innritunarborð um
rétt neytenda eins og þeim ber að
gera. Neytendum er heldur ekki
alltaf kunnugt um rétt sinn.
„Könnunin er ekki hávísindaleg
eða marktæk þar sem aðeins bárust
75 svör en það vakti athygli okkar
að upplýsingar til farþega virðast
ekki skila sér,“ segir Hildigunnur
Hafsteinsdóttir, lögfræðingur hjá
Neytendasamtökunum.
Þegar seinkun verður um tvær
klukkustundir eða meira í styttra
flugi og þrjár klukkustundir eða
meira í flugi sem er 1.500-3.500
km hvíla á flugrekanda ákveðnar
skyldur til að aðstoða farþegana.
Samkvæmt fyrrgreindri könnun
svöruðu 50 prósent farþega í milli-
landaflugi að þau hefðu aldrei notið
lögbundinnar aðstoðar.
Flugrekanda ber til að mynda að
bjóða farþegum upp á hressingu í
samræmi við lengd tafar. Farþegar
eiga rétt á að hringja tvö símtöl eða
senda tölvupóst án endurgjalds og
rétt á gistingu auk ferða til og frá
flugvelli ef þörf er á.
Hildigunnur segir að þótt könn-
unin hafi verið smá í sniðum sé
ljóst að það varði flugfarþega miklu
að vera meðvitaðir um rétt sinn og
einnig þurfi flugrekendur að kynna
réttindi flugfarþega fyrir þeim.
Sé ágreiningur milli farþega og
flugrekanda geta farþegar skot-
ið máli sínu til Flugmálastjórnar
sem nú hefur úrskurðarvald í far-
þegamálum eftir breytingu sem
gerð var á lögum um loftferðir í
fyrra. Stofnunin getur beitt dag-
sektum og eru lágmarkssektirnar
10.000 krónur.
„Áður gátum við bara mælst til
þess að málið skyldi útkljáð með
vissum hætti,“ segir Valdís Aðal-
steinsdóttir, upplýsingafulltrúi hjá
Flugmálastjórn.
„Það er hægt að kæra ákvarð-
anirnar til innanríkisráðuneytis-
ins innan þriggja mánaða frá því
að þær eru teknar. Það er því ekki
fyrr en eftir þessa þrjá mánuði
sem stofnunin getur beitt dagsekt-
um hafi flugrekandinn ekki fylgt
ákvörðuninni,“ greinir Valdís frá.
Flugmálastjórn er farin að
úrskurða í kærumálum, sem eru
þó nokkur, en dagsektum hefur
enn ekki verið beitt.
„Fyrir tveimur vikum ítrekaði
stofnunin á fundi með flugrek-
endum mikilvægi þess að upp-
fylla upplýsingaskyldu til far-
þega. Þeim var jafnframt tjáð að
Flugmálastjórn myndi gera reglu-
bundnar úttektir vegna þessa,“
bætir Valdís við.
Upplýsingar um rétt flugfar-
þega er meðal annars að finna á
vef Flugmálastjórnar, www.flug-
malastjorn.is, og vef Neytenda-
stofu, www.neytendastofa.is.
ibs@frettabladid.is
Flugfarþegar þekkja
ekki nógu vel rétt sinn
Í LEIFSSTÖÐ Upplýsingar um réttindi farþega virðast ekki skila sér til þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Á heimasíðu Leiðbeiningastöðvar heimilanna
er að finna gagnleg ráð til að hreinsa gull- og
silfurskartgripi.
Gull
Blandið 1 msk. af uppþvottalegi saman við 2 dl af soðnu köldu
vatni í glerskál. Gullskartgripirnir eru settir í skálina og látnir liggja í hálfa til
eina klukkustund. Gott er að bursta þá með mjúkum bursta. Þegar skartið er
orðið hreint er hvolft úr skálinni í sigti og skolað yfir með köldu vatni. Leggið
síðan skartgripina á handklæði og fægið með mjúkum klút.
Silfur
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. matarsódi
2 ½ dl kalt vatn
Hitið vatnið og bætið þurrefnunum út í. Látið rjúka og setjið skartgripina í
löginn. Látið liggja um stund, takið skartið upp úr og fægið með mjúkum
klút.
GÓÐ HÚSRÁÐ gull og silfur
Hvernig hreinsa á gull- og silfurskartgripi
SAMGÖNGUR Sumaráætlun Strætó tekur gildi
næstkomandi sunnudag 29. maí. Breytingin
felst í því að vagnar á leiðum 1, 2, 3. 4, 6, 11, 12,
14 og 15 munu aka á 30 mínútna fresti í stað 15
mínútna.
Ferðunum verður fjölgað aftur í haust þegar
skólarnir byrja að nýju og sumarfríum lýkur.
Bergdís I. Eggertsdóttir, verkefnastjóri
Strætó bs., segir sumaráætlunina taka mið af
minni eftirspurn á sumrin en á veturna.
„Eftirspurnin eftir þjónustu Strætó er eðli-
lega minni á sumrin en á veturna. Þar munar
mest um að skólastarf liggur niðri auk þess sem
almenn sumarfrí hafa sitt að segja.“
Nánari upplýsingar um sumaráætlunina er að
finna á vefnum www.straeto.is. Nýjar leiðabæk-
ur eru fáanlegar á öllum sölustöðum.
- ibs
Sumaráætlun Strætó tekur gildi á sunnudaginn:
Ferðum fækkað yfir sumarið
ÞJÓNUSTAN MINNKAR Vegna minni eftirspurnar að sumarlagi
verður ferðum Strætó fækkað. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Spilaðu með og láttu
sólina leika við þig!
SÓLAR
Verð á mann frá:
88.844 kr.
Sólarlottó - Almería
Hálft fæði innifalið!
m.v. 2 fullorðna og 2 börn
17. júní - vika
Höfum til leigu rúmgóða sali fyrir hóptímakennslu sem og einkaþjálfun. Sér tækjasalur með
hlaupabrautum og öðrum upphitunartækjum. Bjóðum upp á fast gjald fyrir einkaþjálfara.
Salirnir henta vel fyrir t.d. danskennslu, Cross fit, boxþjálfun, Fitnessbox, Rope Yoga,
barnaleikfimi o.fl. Einnig er góð aðstaða fyrir nuddara og sjúkraþjálfara.
Einstakt tækifæri þar sem startkostnaður er enginn, aðeins fast leiguverð.
Góð búningsaðstaða er fyrir hendi. Hægt er að leigja sal að hluta til eða að fullu.
Upplýsingar í síma 8615718 (Bergþór) eða á threk@threk.is
Viltu starfa sjálfstætt
við líkamsrækt?
Neytendastofa hefur bannað Múrbúðinni að nota myndmerkið Evidrain.
Tengi leitaði til Neytendastofu með kvörtun yfir notkun Múrbúðarinnar á mynd-
merkinu Evidrain og taldi merkið mjög líkt merkinu Unidrain sem Tengi hefði
umboð fyrir. Í ákvörðun Neytendastofu segir að myndmerkin séu mjög áþekk
og mikil hætta á að ruglingur verði á milli þeirra. „Neytendastofa taldi Tengi eiga
betri rétt til merkisins af því að það félag hafði notað sitt merki lengur,“ segir á
vef Neytendastofu. - óká
■ Viðskipti
Tengi má enn nota sína mynd
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRA SJÓNVARP
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða,
meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.
6.299 KRÓNUR er sú upphæð sem meðalheimili eyðir í bækur, blöð og ritföng í hverjum mánuði samkvæmt könnun Hagstofu Íslands.
Könnunin er ekki
hávísindaleg eða
marktæk þar sem aðeins
bárust 75 svör en það vakti
athygli okkar að upplýsingar
til farþega viðrast ekki skila
sér.
HILDIGUNNUR HAFSTEINSDÓTTIR
LÖGFRÆÐINGUR HJÁ
NEYTENDASAMTÖKUNUM