Fréttablaðið - 26.05.2011, Page 28

Fréttablaðið - 26.05.2011, Page 28
26. maí 2011 FIMMTUDAGUR2 bætir við að hún sé afar hrifin af kjólunum í þeirri verslun. Sjálfur drottningarkjóllinn er hins vegar fenginn frá Bandaríkjunum, en Guðlaug valdi hann í gegnum internetið og tengdamóðir hennar sá svo um að ferja hann með sér heim til Íslands. „Ég lá yfir kjólasíðunum þar sem auðvitað komu endalaust margir til greina en ég var heppin með valið því auðvitað rennir maður svolítið blint í sjóinn. Ef frá eru taldir kjól- arnir kann ég annars alltaf best við mig í gallabuxum og leggings og er hrifin af því að vera í eilítið rómantískum blússum við, úr þunnu efni, með blúndum og slíku.“ juliam@frettabladid.is Framhald af forsíðu „Nei, langt því frá, ég er ekkert inni í tölvuleikjum,“ segir Linda Jóhannsdóttir, nemandi í fata- hönnun, hlæjandi þegar blaðamað- ur spyr hvort hún sé leikjanörður. Linda fékk þó fyrstu verðlaun fyrir hönnun sína á persónur í tölvuleiknum EVE Online í samstarfsverkefni leikja- framleiðandans CCP og Listaháskóla Íslands. Nemendur á fyrsta ári í fatahönnun hönn- uðu hver sex til átta alklæðnaði og voru verðlaun veitt fyrir fyrstu þrjú sætin. „Ég fékk pen- ingaverðlaun og skrifaði undir plagg um að CCP hefði notkunarrétt á línunni. Það er auðvitað það sem mann lang- ar allra mest, að hönnunin verði notuð í leik- inn og maður sjái hana í þrí- vídd,“ segir Linda. Hún segir verkefnið hafa verið mjög krefj- andi og stíll persónanna í tölvuleiknum eins langt frá hennar eigin og hugsast geti. Það hafi þó verið gaman að tak- ast á við persónur EVE Online. „Þetta var krefjandi en ótrúlega skemmti- legt. Leikurinn er byggð- ur upp á ættbálkum sem hafa hver sína sögu og menningu. Ég valdi mér Galante-ættbálkinn sem er glyskenndari en hinir og reyndi að ímynda mér hverju ég vildi klæðast í leiknum. Ég vildi hafa fötin kvenleg en þó sterk og sexí og notaði leður, blúndur og prjónaefni, sem ég held að hafi ekki verið notað áður í tölvuleik,“ segir Linda. „Ég reikna samt ekki með að ég taki upp á því að spila leikinn sjálf, og þó, maður veit aldrei.“ heida@frettabladid.is Er enginn leikjanörður Linda Jóhannsdóttir, nemandi í fatahönnun við Listaháskóla Íslands, fékk fyrstu verðlaun í samkeppni leikjaframleiðandans CCP um hönnun á fatnaði fyrir persónur í tölvuleiknum EVE Online. Linda Jóhannsdóttir segist seint munu verða tölvuleikjanörður en hún lenti í fyrsta sæti í hönnunarkeppni um fatnað á persónur EVE Online hjá leikjaframleiðandanum CCP. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Ég reyndi að ímynda mér hverju ég vildi klæðast í leiknum,“ segir Linda. Linda notaði leður, blúndur og prjónaefni, sem ekki hafa sést í leiknum áður. Linda hannaði á Galante-ættbálkinn, sem hún segir glyskenndari en hina ættbálkana í leiknum. 10% 20% Spennandi borgir i beinu flugi í sumar og haust Tallinn Zagreb Riga Tískurisarnir Yves Saint Laurent og Christian Louboutin takast nú á í réttarsal. Málið snýst um að Louboutin telur Saint Laurent hafa stolið hönnun fyrirtækisins með því að setja rauðan lit á sóla skónna sinna en það er einmitt einkennismerki skófatnaðar frá Louboutin. Söng- og leikkonan Queen Latifah hefur hannað sína fyrstu tískulínu fyrir fyrirtækið HSN og mun hún koma á markað í ágúst. Samkvæmt tímaritinu People mun línan, sem kallast Queen collection, innihalda föt og fylgihluti fyrir konur í stærðunum 2 til 24. Lathifah er sjálf íturvaxin og taldi nauðsynlegt að fötin í hennar línu yrðu til í öllum stærðum. Í línunni er einnig að finna leðurveski, en stjarnan segist sjálf vera brjáluð í veski. „Ég get þess vegna gengið um í joggingbuxum en með þrjú þúsund dala veski við.” Drottningin með eigin tískulínu QUEEN LATIFAH HEFUR HANNAÐ TÍSKULÍNU FYRIR FYRIRTÆKIÐ HSN. Queen Latifah hannar tískulínu með fötum og fylgihlutum fyrir konur í stærðum frá tveimur upp í tuttuguogfjóra.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.