Fréttablaðið - 26.05.2011, Side 58
26. maí 2011 FIMMTUDAGUR38
folk@frettabladid.is
Leikstjórinn Sofia Coppola ætlar
að ganga að eiga kærasta sinn og
barnsföður, rokkarann Thomas
Mars, á Suður-Ítalíu í sumar.
Ætlunin er að halda rómantíska
athöfn við sumarhús Coppola-
fjölskyldunnar að viðstöddum
nánustu fjölskyldumeðlimum.
Coppola og Mars eiga tvö börn
saman en þetta verður í annað
sinn sem leikstýran gengur upp
að altarinu. Hún var gift koll-
ega sínum, leikstjóranum Spike
Jonze, á árunum 1999 til 2003.
Sofia Coppola er dóttir leik-
stjórans Francis Ford Coppola,
en hún vann óskarsverðlaun fyrir
myndina Lost in Translation árið
2004.
Sumar-
brúðkaup
í vændum
GENGUR Í ÞAÐ HEILAGA Sofia Coppola
ætlar að giftast rokkaranum Thomas
Mars á Ítalíu í sumar. NORDICPHOTOS/GETTY
Þær voru ekki af verri endanum stjörnurnar sem prýddu
rauða dregilinn á hinni árlegu Billboard-verðlaunahátíð
sem fór fram í Las Vegas um liðna helgi. Justin Bieber
var mættur í gulllituðum jakkafötum og tók á móti
verðlaunum sem stafræni listamaður ársins og nýliði
ársins. Beyoncé flutti nýjasta smell sinn „Run the
World (Girls)“ og Rihanna kom fram með poppprins-
essunni fyrrverandi, Britney Spears, sem virðist eitt-
hvað vera að fikra sig aftur inn í bransann. Það var
ekki mikil litadýrðin í kjólum gesta en Kylie Minogue,
Britney Spears, Beyoncé og Nicole Kidman völdu
allar svart þetta árið.
Stjörnurnar sáu svart á Billboard
ENDURKOMA Popp-
prinsessan Britney
Spears dönnuð í
svörtum kjól með
rykkingum.
SÍÐUR Leik-
konan Nicole
Kidman var
glæsileg í
þessum síða
gegnsæja kjól.
FLEGINN Söngdívan
Beyonce sló í gegn
á Billboard en mætti
í svörtum stuttum
kjól með flegnu
hálsmáli.
STUTTUR Söngkonan
Fergie úr Black Eyed
Peas var í kjól með
framúrstefnulegu
sniði.
ÚTKLIPPT Selena Gomez,
bandarísk barnastjarna,
sem er hvað frægust fyrir
að vera meint kærasta
unglingagoðsins Justin
Bieber, mætti í flottum
svörtum síðkjól og
rauðum skóm.
GEGNSÆR
Ástralski söng-
fuglinn Kylie
Minogue tók
sig einstaklega
vel út í þessum
svarta kjól
og svörtum
hælaskóm.
NORDICPHOTO/GETTY
MILLJÓNIR DOLLARA kostaði trúlofunarhringurinn sem NBA-stjarnan Kris Humphries gaf unnustu sinni, Kim Kardashian.
Kærustuparið hafði verið saman í sex mánuði áður en Humphries dró hring á fingur fyrirsætunnar og raunveruleikastjörnunnar.2