Fréttablaðið - 26.05.2011, Síða 58

Fréttablaðið - 26.05.2011, Síða 58
26. maí 2011 FIMMTUDAGUR38 folk@frettabladid.is Leikstjórinn Sofia Coppola ætlar að ganga að eiga kærasta sinn og barnsföður, rokkarann Thomas Mars, á Suður-Ítalíu í sumar. Ætlunin er að halda rómantíska athöfn við sumarhús Coppola- fjölskyldunnar að viðstöddum nánustu fjölskyldumeðlimum. Coppola og Mars eiga tvö börn saman en þetta verður í annað sinn sem leikstýran gengur upp að altarinu. Hún var gift koll- ega sínum, leikstjóranum Spike Jonze, á árunum 1999 til 2003. Sofia Coppola er dóttir leik- stjórans Francis Ford Coppola, en hún vann óskarsverðlaun fyrir myndina Lost in Translation árið 2004. Sumar- brúðkaup í vændum GENGUR Í ÞAÐ HEILAGA Sofia Coppola ætlar að giftast rokkaranum Thomas Mars á Ítalíu í sumar. NORDICPHOTOS/GETTY Þær voru ekki af verri endanum stjörnurnar sem prýddu rauða dregilinn á hinni árlegu Billboard-verðlaunahátíð sem fór fram í Las Vegas um liðna helgi. Justin Bieber var mættur í gulllituðum jakkafötum og tók á móti verðlaunum sem stafræni listamaður ársins og nýliði ársins. Beyoncé flutti nýjasta smell sinn „Run the World (Girls)“ og Rihanna kom fram með poppprins- essunni fyrrverandi, Britney Spears, sem virðist eitt- hvað vera að fikra sig aftur inn í bransann. Það var ekki mikil litadýrðin í kjólum gesta en Kylie Minogue, Britney Spears, Beyoncé og Nicole Kidman völdu allar svart þetta árið. Stjörnurnar sáu svart á Billboard ENDURKOMA Popp- prinsessan Britney Spears dönnuð í svörtum kjól með rykkingum. SÍÐUR Leik- konan Nicole Kidman var glæsileg í þessum síða gegnsæja kjól. FLEGINN Söngdívan Beyonce sló í gegn á Billboard en mætti í svörtum stuttum kjól með flegnu hálsmáli. STUTTUR Söngkonan Fergie úr Black Eyed Peas var í kjól með framúrstefnulegu sniði. ÚTKLIPPT Selena Gomez, bandarísk barnastjarna, sem er hvað frægust fyrir að vera meint kærasta unglingagoðsins Justin Bieber, mætti í flottum svörtum síðkjól og rauðum skóm. GEGNSÆR Ástralski söng- fuglinn Kylie Minogue tók sig einstaklega vel út í þessum svarta kjól og svörtum hælaskóm. NORDICPHOTO/GETTY MILLJÓNIR DOLLARA kostaði trúlofunarhringurinn sem NBA-stjarnan Kris Humphries gaf unnustu sinni, Kim Kardashian. Kærustuparið hafði verið saman í sex mánuði áður en Humphries dró hring á fingur fyrirsætunnar og raunveruleikastjörnunnar.2

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.