Fréttablaðið - 26.05.2011, Side 60

Fréttablaðið - 26.05.2011, Side 60
40 26. maí 2011 FIMMTUDAGUR Hljómsveitin Gusgus og fjöldi annarra þekktra flytjenda hafa staðfest komu sína á Bestu útihátíðina sem verður hald- in á Gaddstaðaflötum við Hellu helgina 8. til 10. júlí. Gusgus gaf nýverið út sjöttu plötu sína, Arabian Horse, og sveitin er þekkt fyrir að spara hvergi til þegar kemur að sviðs- framkomu. Sveitin spilar á laugardagskvöldinu, sama kvöld og hljómsveitin Quarashi rís upp frá dauðum. Aðrir sem stíga á svið eru Skítamórall, sem er að koma saman eftir nokkurt hlé, Ingó & Veðurguðirnir, XXX Rottweiler, SSSól, Friðrik Dór, Í svörtum fötum, Jón Jónsson, Auddi & Sveppi, Kristmundur Axel, Dyna- mic, Dj Áki Pain og Steindi Jr. sem flytur tónlistina úr þáttum sínum með aðstoð Ásgeirs Orra Ásgeirsson úr upptökuteyminu Stop Wait Go. Miðasalan hefst 1. júní í versl- unum Símans um allt land og kostar miðinn 7.900 krónur í forsölu en 9.500 kr. við hlið. Gusgus spilar á Bestu hátíðinni GUSGUS Daníel Ágúst (t.h.) og Biggi Veira úr Gusgus verða á Bestu úti- hátíðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Það getur tekið á að vera eina stelpan í hópi sex stráka en Þorbjörg Roach Gunnarsdóttir, meðlimur hljómsveitarinnar Retro Stefson, ber sig vel eftir tæplega tveggja mánaða búsetu í Berlín. „Sambúðin gengur vel en það getur tekið á að vera eina stelpan. Ég hlakka til að koma heim í smá frí,“ segir Þorbjörg Roach Gunn- arsdóttir, einn af meðlimum stuð- hljómsveitarinnar Retro Stefson, sem hafa undanfarna mánuði verið búsettir í Berlín til að koma tón- list sinni á framfæri á meginlandi Evrópu. „Það er ekki langt síðan við fengum alvöru æfingahúsnæði og við höfum því verið iðin við að æfa okkur þessa vikuna,“ segir Þorbjörg, en tónum Retro Stefson hefur verið vel tekið í Þýskalandi. „Þjóðverjar eru skemmtilegir tón- leikagestir og duglegir að dansa. Okkur hefur líka þótt gaman hvað það er breiður aldurshópur sem mætir að hlusta á okkur,“ segir Þorbjörg og bætir við að tónleika- gestir komi alla jafna til þeirra eftir tónleikana til að hrósa þeim fyrir frammistöðuna. Húsreglur og mútur Sveitin býr saman í lítilli íbúð í útjaðri Berlínar þar sem Þor- björg deilir herbergi með Unn- steini, Þórði og Gylfa. Húsregl- urnar eru einfaldar, hver og einn vaskar upp eftir sig og það er bannað að vera of lengi á klósett- inu, en það fer helst í taugarnar á Þorbjörgu að vera ekki með sérher- bergi. „Ég þarf alltaf að fara inn á bað til að skipta um föt, það er pínu þreytandi,“ segir Þorbjörg en í bakgrunninum má heyra hlátra- sköll frá hinum meðlimum Retro Stefson. „Unnsteinn er að reyna að múta mér með 25 evrum til að segja að sambúðin við hann sé best. Þeir eru allir ágætir en Haraldur, Þórður og Ingvar sjá eiginlega alfarið um matseldina enda góðir kokkar, annað en ég. Svo skiptum við á milli okkar þrifunum.“ Sveitin er að leita að nýrri íbúð í Berlín en það er ekki auðvelt fyrir sjö tvítuga krakka í hljómsveit að finna íbúð við hæfi. „Stefnan er að fá aðeins stærri íbúð í sumar og þar geng ég fyrir að fá sér- herbergi. Held að það sé óskrifuð regla hjá okkur,“ hlær Þorbjörg. Góðir dómar Platan Kimbabwe hefur feng- ið frábæra dóma í þýsku tón- listarpressunni, þar sem krökk- unum er hrósað fyrir frumleika og hressa popptónlist. Vefsíðan roteraupe.de lýsir plötunni sem „diskómetalafrópoppi í íslenskri lopapeysu“. Aðrar vefsíður hafa ekki sparað stjörnurnar, en Kim- babwe hefur fengið fjórar og jafn- vel fjóra og hálfa stjörnu af fimm mögulegum á þýsku tónlistar- síðunum intro.de og laut.de. Þrátt fyrir að sveitin ætli sér að þeysast á milli tónlistarhátíða í Evrópu í sumar fá Íslending- ar tækifæri til að berja sveitina augum 1. júní næstkomandi, en þá heldur Retro Stefson tónleika á skemmtistaðnum Nasa. „Ég er mjög spennt að koma heim og hitta fjölskylduna mína og vini. Maður er farinn að sakna ótrúlegustu hluta frá Íslandi. Ég get til dæmis ekki beðið eftir að fá mér saltstangir með Vogaídýfu og fara í sund,“ segir Þorbjörg. alfrun@frettabladid.is Skiptir um föt inni á baði SKEMMTA EVRÓPUBÚUM Meðlimir Retro Stefson búa saman í lítilli íbúð í góðu hverfi í Berlín en húsreglurnar eru tvær: hver og einn vaskar upp eftir sig og það er bannað að vera of lengi á klósettinu. DYLAN DOG: DEAD OF NIGHT 8 og 10.10 PAUL 5.50, 8 og 10.10 GNÓMÍÓ OG JÚLÍA 3D - ISL TAL 5 GNÓMÍÓ OG JÚLÍA 2D - ISL TAL 5 FAST & FURIOUS 5 7 og 10 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar T.V. - kvikmyndir.is FRÁBÆR SPENNUMYND MEÐ ÍSLENSKU STÓRSTJÖRNUNNI ANÍTU BREIM www.laugarasbio.is -bara lúxus sími 553 2075 Miðasala og nánari upplýsingar t þér miða á gðu ygr Jack Sparrow er mættur í stærstu mynd sumarsins! Stórkostleg þrívíddarævintýramynd með Johnny Depp, Penélope Cruz, Ian McShane og Geoffry Rush. Sýnd í Disney Digital 3D í völdum kvikmyndahúsum -BoxofficeMagazine ÁLFABAKKA EGILSHÖLL 12 12 12 12 16 10 10 10 L L L L PIRATES OF THE CARIBBEAN 3D kl. 5 - 8 - 10 - 11 DÝRAFJÖR (ANIMALS UTD) M/ ísl. Tali kl. 5:30 DRIVE ANGRY 3D TEXTALAUS kl. 10.30 THOR 3D kl. 8 - 10 30 SOMETHING BORROWED kl. 5.30 12 12 12 KRINGLUNNI 10 V I P 16 10 L AKUREYRI PIRATES OF THE CARRIBEAN 4 kl. 6 - 9 ANIMALS UNITED ísl tal kl. 6 DRIVE ANGRY kl. 8 - 10:20 12 16 10 SELFOSS PIRATES OF THE CARRIBEAN 4 kl. 8 - 10:50 FAST FIVE kl. 8 PRIEST kl. 10:50 THE HANGOVER 2 Forsýnd kl. 8 - 11 THE HANGOVER 2 Forsýnd kl. 11 PIRATES OF THE CARRIBEAN 4 3D kl. 5 - 8 - 10:20 PIRATES OF THE CARRIBEAN 4 2D kl.9:20 (2D) PIRATES OF THE CARRIBEAN 4 kl. 5 - 8 DÝRA FJÖR M/ ísl. Tali kl. 6 FAST FIVE kl. 5:20 - 8 - 10:40 SOMETHING BORROWED kl. 5:50 - 8 - 10:20 THE HANGOVER 2 Forsýnd kl. 8 PIRATES OF THE CARRIBEAN 4 kl. 6 - 9 - 10:20 FAST FIVE kl. 5:30 - 10:20 THE LINCOLN LAWYER kl. 8 t gðu þér miða áygr FORSÝND Í KVÖLD! SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ BORGARBÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS GLERAUGU SELD SÉR “BESTA ‘PIRATES’ MYNDIN” - M.P FOX TV P.H. BOXOFFICE MAGAZINE NÁNARI UPPLÝSINGAR OG MIÐASALA Á PIRATES 4 3D KL. 4 - 5 - 8 - 10 - 11 10 PIRATES 4 3D Í LÚXUS KL. 5 - 8 - 11 10 PRIEST 3D KL. 6 - 8 - 10.30 16 GNÓMEÓ OG JÚLÍA 3D KL. 4 - 6 L FAST FIVE KL. 8 - 10.40 12 THOR 3D KL. 8 12 RIO 3D ÍSLENSKT TAL KL. 3.40 L ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ GILDA EKKI Í BORGARBÍÓI DYLAN DOG KL. 8 - 10 14 PAUL KL. 8 - 10 12 FAST FIVE KL. 5.40 12 GNÓMEÓ & JÚLÍA 3D KL. 5.40 L DYLAN DOG KL. 5.40 - 8 - 10.20 14 WATER FOR ELEPHANTS KL. 5.30 - 8 - 10.30 L GNÓMEÓ OG ÚJ ÍL A 3D KL. 6 L HÆVNEN KL. 5.40 - 8 12 HANNA KL. 10.20 16 PRIEST 3D KL. 8 - 10 16 STÓRKOSTLEG ÞRÍVÍDDARÆVINTÝRAMYND BARA GÓÐAR MYNDIR www.bioparadis.is HUR MÅNGA LINGON FINNS DET I VÄRLDEN? ÞÖGLAR MYNDIR: PHANTOM OF THE OPERA OKKAR EIGIN OSLÓ ROUTE IRISH BOY DJÖFLAEYJAN (ENGLISH SUBTITLES) ASTRÓPÍA (ENGLISH SUBTITLES) HEIMA A FILM BY SIGUR RÓS (ENGLISH SUBTITLES) 18:00, 20:00, 22:20 20:00 18:00, 20:00 22:20 18:00, 22:00 18:00 20:00 22:00 MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS BAR & CAFÉ – Lifið heil www.lyfja.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 5 46 67 0 4/ 11Lægra verð í Lyfju 15% afsláttur í maí á öllum stærðum af Nicotinell IceMint Dæmi: 2 mg, 204 stk. með afslætti 5.516 kr.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.