Fréttablaðið - 26.05.2011, Side 64
26. maí 2011 FIMMTUDAGUR44
HANDBOLTI Línumaðurinn Kári
Kristján Kristjánsson er að stíga
upp úr mjög alvarlegum veik-
indum og mun taka þátt í sínum
fyrsta leik af fullum krafti um
helgina. Kári fékk sýkingu í kirtl-
ana sem leiddi síðan út í blóðið og
fór þaðan í lungun.
„Það fór allt í fokk ef ég á að
segja eins og er. Þetta var alvar-
legt mál og ég var alveg frá í
tuttugu daga. Ég er sem betur fer
kominn á rétt ról á nýjan leik,“
sagði Eyjamaðurinn harði við
Fréttablaðið í gær.
Kári Kristján hefur staðið sig
afar vel með þýska úrvalsdeild-
arfélaginu Wetzlar, sem leggur
mikinn metnað í að framlengja
samninginn við Kára sem rennur
út eftir ár.
„Þeir vilja semja til ársins
2014 og ég er svona að velta mál-
unum fyrir mér. Hvort ég taki
öryggið og semji upp á nýtt eða
taki áhættuna og sjái hvað býðst
næsta sumar. Svo skiptir náttúr-
lega máli hvað Wetzlar er til í að
bjóða mér núna.“ - hbg
Kári Kristján veiktist illa:
Fékk slæma
sýkingu í kirtla
KÁRI KRISTJÁN Er í samningaviðræðum
við Wetzlar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Kristinn Steindórsson
skoraði þrennu í 3-1 sigri Breiða-
bliks á Fylki í 5. umferð Pepsi-
deild karla og er besti leikmaður
umferðarinnar að mati Frétta-
blaðsins. Leik Þórs og FH var
frestað fram í júní og er hann að
sjálfsögðu ekki með í samantekt
Fréttablaðsins.
„Þetta byrjaði ekki alveg eins
og við ætluðum okkur en það
hefur verið stígandi í síðustu
leikjum og það var mjög gott að
ná þessum sigri á Fylki. Við erum
farnir að gera það sem við erum
þekktir fyrir og það er allt farið
að ganga miklu betur,“ sagði
Kristinn Steindórsson en Blikar
töpuðu fyrstu tveimur leikjum
sínum en hafa síðan tekið 7 stig
af 9 mögulegum.
Kristinn er orðinn markahæsti
leikmaður deildarinnar með fimm
mörk í fimm leikjum en hann
skoraði tólf mörk við hlið Alfreðs
Finnbogasonar í fyrra.
„Það er kannski fullmikið búið
að tala um Alfreð. Hann er farinn
og mun ekki koma aftur á næst-
unni. Þegar það fer góður leik-
maður eins og Alfreð þá þurfa
aðrir að taka ábyrgð og ég set
pressu á sjálfan mig að standa mig
vel,“ segir Kristinn.
Kristinn fagnar komu Dylans
Macallister í lið Breiðabliks.
„Hann lofar góðu, er stór og sterk-
ur og dregur mikið til sín. Það
skapast pláss fyrir okkur hina
fyrir aftan sem við getum nýtt
okkur,“ segir Kristinn sem nýtti
sér það strax í fyrsta leik við hlið
Ástralans. „Það er gott að spila
upp á hann, hann heldur boltanum
vel og getur spilað honum vel frá
sér á menn sem eru að koma á
ferðinni,“ segir Kristinn.
Kristinn er kominn með fimm
mörk og eina stoðsendingu í
fyrstu fimm leikjunum en hann
var með tólf mörk og sex stoð-
sendingar á öllu síðasta tímabili.
„Maður reynir alltaf að gera betur
og ég ætla ekki að stefna á neitt
minna,“ segir Kristinn aðspurður
um markmið sín í sumar.
Kristinn segir allt tal um titil-
vörn ekki trufla Blikana. „Það
tekur enginn titilinn frá okkur
sem við unnum 2010 og við ætlum
bara að reyna að sækja nýjan. Ég
held að það skipti ekki neinu máli
hvort við erum meistarar eða ekki
því við viljum vinna alla leiki,“
segir Kristinn.
Hann er ánægður með mörk-
in sín en verður aldrei sáttur við
leikinn nema stigin komi líka í
hús. „Það skiptir engu máli ef
maður er að skora ef liðinu geng-
ur illa. Þetta snýst um það að
liðið vinni og ef maður skorar
líka þá er það góður bónus,“ segir
Kristinn.
Kristinn lagði upp mark fyrir
Guðmund Kristjánsson í 1-1 jafnt-
efli í Eyjum og Guðmundur þakk-
aði fyrir með því að leggja upp
tvö marka Kristins á móti Fylki.
„Hann var eitthvað að skjóta á mig
þegar hann skoraði í Eyjum að
hann væri búinn að jafna mig og
ég þurfti að fara að passa mig. Það
er bara fínt að hafa smá pressu
innan hópsins líka. Við erum að
vinna saman, náum vel saman og
vonandi heldur það áfram,“ segir
Kristinn og hann er sáttur við
fyrstu þrennuna sína.
„Þetta var ansi gott dagsverk en
það dugar ekki mikið lengur því
það er bara næsti leikur og maður
fær ekkert að lifa á þessu þar,“
sagði Kristinn að lokum.
ooj@frettabladid.is
ÉG SET PRESSU Á SJÁLFAN MIG
Blikinn Kristinn Steindórsson er besti leikmaður 5. umferðarinnar hjá Fréttablaðinu og ef framhald verður
á frammistöðu hans á móti Fylki þurfa Blikar ekki að gráta lengur brotthvarfs Alfreðs Finnbogasonar.
BYRJAR BETUR EN Í FYRRA Kristinn Steindórsson hefur skorað tveimur mörkum
meira í fyrstu fimm umferðunum í ár en hann gerði í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Svipuð staða og í fyrra
Blikar fengu einu stigi meira í fyrstu
umferðunum í fyrra og Kristinn Stein-
dórsson er búinn að skora fleiri mörk
og koma að fleiri mörkum en Alfreð
Finnbogason á sama tíma í fyrra.
Blikar eftir fimmtu umferð 2010:
Staða 8 stig (3. sæti)
Markatala 7-4
Mörkin (Stoðsendingar): Kristinn
Steindórsson 3 (1), Alfreð Finnbogason
2 (3), Guðmundur Pétursson 1, Haukur
Baldvinsson 1 (1)
Blikar eftir fimmtu umferð 2011:
Staða 7 stig (6. sæti)
Markatala 9-10
Mörkin (Stoðs.): Kristinn Steindórsson
5 (1), Guðmundur Kristjánsson 2 (2),
Haukur Baldvinsson 1, Arnór Sveinn
Aðalsteinsson 1.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
ÍÞRÓTTIR Á ÞÍNUM
HEIMAVELLI
Meira úrval afþreyingar, frétta og myndskeiða í topp-upplausn með greiðara og
einfaldara aðgengi fyrir allar tölvur og farsíma. Horfðu, hlustaðu og fylgstu með
öllu því sem gerist, hvar og hvenær sem er á Vísi.
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf,
meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.
Má bjóða ykkur meiri Vísi?
HANDBOLTI Björgvin Páll Gústavs-
son varð í gær svissneskur meist-
ari með Kadetten Schaffhausen,
annað árið í röð. Reyndar unnu
Björgvin og félagar alla titlana
sem í boði voru í vetur, rétt eins
og í fyrra.
„Það kom ekkert annað til
greina en að klára þetta með
stæl,“ sagði Björgvin við Frétta-
blaðið en Kadetten vann í gær
öruggan sigur á Pfadi Winterthur,
38-25, í þriðja úrslitaleik liðanna
um titilinn. Kadetten vann því
rimmuna örugglega, 3-0.
Björgvin stóð sig frábærlega í
öllum þremur leikjunum og ekki
síst í gær þegar hann varði 21
skot, þar af bæði vítaskotin sem
andstæðingarnir fengu í gær.
„Þetta er mjög viðeigandi og
gott að geta kvatt liðið með þess-
um hætti,“ segir Björgvin en hann
gengur nú í sumar til liðs við
þýska stórliðið Magdeburg eftir
tveggja ára dvöl í Sviss.
„Við héldum dampinum frá því
í fyrra þar sem við unnum einnig
allt sem var í boði auk þess sem
við komust í úrslitaleik Evrópu-
keppni bikarhafa. Í ár sýndum
við svo að við erum með sterk-
ustu liðum Evrópu þegar við
vorum nálægt því að slá Mont-
pellier út í 16-liða úrslitum
Meistaradeildarinnar.“
Björgvin segir að hann hafi
náð öllum þeim markmiðum sem
hann setti sér áður en hann flutti
til Sviss.
„Ég ætlaði að fá að spila mikið
og öðlast reynslu í Evrópukeppn-
um. Ég hef sýnt meiri stöðug-
leika sem var eitthvað sem ég
þurfti og tel að ég sé tilbúinn
fyrir næsta skref, sem er að spila
í þýsku úrvalsdeildinni. Það er
gott að geta tekið það skref með
félagi eins og Magdeburg,“ sagði
Björgvin.
Hann kveður því sáttur og
glaður við Schaffhausen. „Þetta
er geggjaður staður og hér var
frábært að vera. Þetta er miklu
betri deild en ég hélt. Liðið er
nú komið á háan stall og það var
gaman að fá að taka þátt í því að
koma liðinu þangað.“ - esá
Björgvin Páll Gústavsson meistari með Kadetten:
Kvaddi Sviss með
viðeigandi hætti
VANN ALLT SEM VAR Í BOÐI Björgvin Páll Gústavsson vann alla þá titla sem hægt var
að vinna í svissneskum handknattleik og það tvö ár í röð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM