Fréttablaðið - 25.06.2011, Qupperneq 2
25. júní 2011 LAUGARDAGUR2
FÓLK Þórður Örn Kristjánsson
hefur ekki látið heyrnarleysi aftra
sér frá því að lifa lífinu. Hann
varð fyrstur heyrnarlausra til
að útskrifast með mastersgráðu
frá Háskóla Íslands árið 2008 og
stundar nú doktorsnám í líffræði
við sama skóla. Líffræðiáhugi
Þórðar nær hins vegar út fyrir
kennslustofuna því hann hefur
brennandi áhuga á veiði. Hann fór
ásamt fjölskyldu sinni í sitt mesta
ævintýri hingað til á dögunum þar
sem honum tókst að fella 200 kílóa
svartbjörn.
„Þessi veiði- og útivistaráhugi er
algjörlega meðfæddur. Pabbi drösl-
aði mér með í allar sínar veiðiferð-
ir þegar ég var yngri og mamma
tók mig með í líffræðirannsóknir
sínar þegar ég var smápatti. Ég hef
því alltaf verið með annan fótinn
úti í náttúrunni og líður hreinlega
illa ef ég er fastur innan bæjar of
lengi,“ segir Þórður, sem stundar
bæði skot- og stangveiði af krafti.
Þórður varð þrítugur á árinu
en auk þess varð Þórarinn bróð-
ir hans tvítugur og Kristján faðir
þeirra sextugur. Af þessu tilefni
skelltu þeir sér til Kanada með
Ásgeiri Heiðar leiðsögumanni og
fóru á bjarnarveiðar, en með í för
var frændi þeirra, Erling Valdi-
marsson.
„Þetta fór rólega af stað en
pabba tókst svo að fella einn svart-
björn sem var í kringum 100 kíló.
Þegar ekki nema klukkustund var
eftir af veiðitímanum sá ég síðan
skyndilega eina gríðarlega flotta
skepnu,“ segir Þórður um ferðina
og bætir við: „Það er ólýsanleg til-
finning að rekast á svona björn,
setur allt adrenalínflæðið af stað
enda stór dýr og færið stutt í skóg-
inum. Ég hef aldrei titrað jafn
mikið á veiðum og þegar dýrið kom
í skotfæri. En mér tókst sem sagt
að fella björninn, sem mældist yfir
sex fet og var áætlaður 200 kíló.“
Þórður var heyrandi til sextán
ára aldurs en missti þá heyrn á
öðru eyranu eftir skurðaðgerð og
svo á hinu átján ára. Hann þjáist af
sjaldgæfum sjúkdómi sem mynd-
ar taugaæxli í líkama hans. Hann
segir heyrnarleysið vitaskuld há
sér en er ánægður með þann stuðn-
ing sem hann hefur fengið í námi
sínu. Hann segist fá aðstoð túlka
og nýtur jafnframt góðs af því að
kennsluefni og fyrirlestrar eru
fáanleg í tölvutæku formi.
„Aðalatriðið er samt auðvitað
að ef að fólk leggur á sig að lesa,
glósa og vinna verkefni þá geng-
ur því vel,“ segir Þórður. Hann er
hins vegar ekki jafn ánægður með
Ríkissjónvarpið, sem hann gagn-
rýnir fyrir að texta ekki frétta-
tíma. „Þetta ætti að vera lítið mál
en það er eins og vilji sé bara ekki
til staðar og því eru heyrnarlausir
hafðir úti í kuldanum þegar kemur
að upplýsingagjöf,“ segir hann að
lokum. magnusl@frettabladid.is
Það er ólýsanleg
tilfinning að rekast á
svona björn, setur allt adrena-
línflæðið af stað...
ÞÓRÐUR ÖRN KRISTJÁNSSON
DOKTORSNEMI Í LÍFFRÆÐI
Finnbogi, eru þetta flekaskil á
þínum ferli?
„Ef verkefnunum fer að gjósa upp.“
Finnbogi Þorkell Jónsson er íslenskur
leikari. Hann fór nýverið með hlutverk
vísindamannsins Alfreds Wegener í þýskri
heimildarmynd. Wegener setti fram land-
rekskenninguna sem byggir á hreyfingum
jarðskorpuflekanna.
SAMGÖNGUR Katrín Júlíusdóttir
iðnaðarráðherra útilokar ekki að
sett verði lög á kjaradeilu flug-
manna fari yfirvinnubann þeirra
að valda ferðaþjónustunni skaða.
Katrín sagði í viðtali við Stöð
2 að slík aðgerð væri þó neyðar-
úrræði.
Yfirvinnubann hófst hjá atvinnu-
flugmönnum Icelandair klukkan
tvö í gærdag. Samninganefndir
funduðu í húsakynnum ríkissátta-
semjara í gærkvöld. Sex ferðum
Icelandair hefur verið aflýst á
morgun vegna yfirvinnubannsins.
Í tilkynningu frá félaginu segir að
ef ekki náist að semja í dag muni
fyrirsjáanlega þurfa að fella niður
sex ferðir til viðbótar mánudaginn
27. júní og verði það gert með 24
klukkustunda fyrirvara.
„Ákvörðun um að fella niður
flugin með þessum fyrirvara er
tekin til þess að eyða óvissu og
gefa farþegum tækifæri á því að
gera nauðsynlegar ráðstafanir.
Í heild eru um 1.500 ferðamenn
bókaðir í þau 12 flug sem um er
að ræða og er upplýsingum komið
til þeirra um stöðuna meðal ann-
ars með textaskilaboðum og tölvu-
pósti,“ segir í tilkynningunni. Þá
segir að það séu mikil vonbrigði að
félagið þurfi að grípa til þessara
aðgerða. - sv
Iðnaðarráðherra útilokar ekki aðgerðir gegn yfirvinnubanni flugmanna:
Sex ferðum aflýst á morgun
Felldi risabjarndýr
í veiðiferð í Kanada
Þórður Örn Kristjánsson missti heyrnina átján ára og varð fyrstur heyrnar-
lausra til að útskrifast úr mastersnámi við Háskóla Íslands. Þórður fór nýverið í
veiðiferð til Kanada þar sem honum tókst að fella óvenjustórt bjarndýr.
VEIÐIMENN OG BRÁÐIN Þórður sést hér lengst til hægri ásamt ferðafélögunum með
200 kílóa svartbjörn sem honum tókst að fella.
ICELANDAIR Á KEFLAVÍKURVELLI Ef ekki
næst að semja mun félagið aflýsa sex
ferðum til viðbótar á mánudag.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SJÁVARÚTVEGUR Jón Bjarnason,
sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra, gaf í gær út reglugerð
um auknar strandveiðar í sam-
ræmi við nýsamþykkt lög um
breytingar á lögum um stjórn
fiskveiða.
Alþingi samþykkti að heimila
aukningu strandveiða um allt að
1.900 tonn af óslægðum þorski
og 600 af óslægðum ufsa. Aukn-
ingin skiptist þannig að 33,3 pró-
sent koma til aukningar á svæði
A, 23,7 prósent á svæði B, 25,5
prósent á svæði C og 17,5 pró-
sent á svæði D.
Aukningin kemur þegar til
framkvæmda þannig að heim-
ildir nú í júnímánuði aukast um
633 tonn af óslægðum þorski og
200 tonn af óslægðum ufsa. - shá
2.500 tonn til strandveiða:
Veiðiheimildir
aukast verulega
Í HÖFN Strandveiðimenn fá meira til
skiptanna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað-
fest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir
öðrum tveggja Black Pistons-
manna, sem sitja inni fyrir meint
ofbeldi, hótanir og frelsissvipt-
ingu manns.
Maðurinn skal sæta gæsluvarð-
haldi til 21. júlí. Félaga hans, sem
er jafnframt leiðtogi vélhjóla-
gengisins, var gert að afplána 240
daga eftirstöðvar refsingar, en
honum hafði verið veitt reynslu-
lausn í september á síðasta ári.
Gæsluvarðhald framlengt:
Black Pistons
áfram í gæslu
BANDARÍKIN, AP Fulltrúadeild
Bandaríkjaþings felldi í gær með
yfirgnæfandi meirihluta heimild
til handa Bandaríkjaforseta til
að halda áfram þátttöku í loft-
árásum á Líbíu. Jafnt demókratar
sem repúblikanar á þingi eru æfir
út í forsetann fyrir að hafa tekið
ákvörðun um þátttöku Banda-
ríkjahers í stríðinu án þess að fá
fyrst til þess heimild frá þinginu,
eins og bandarísk lög þó krefjast.
Utanríkismálanefnd öldunga-
deildar þingsins fær til afgreiðslu
sams konar ályktun eftir helgi. - gb
Obama fær ekki stuðning:
Bandaríkjaþing
hafnar stríðinu
DÓMSMÁL Gæsluvarðhald yfir
ungum manni sem grunaður er
um að hafa orðið barnsmóður
sinni að bana í Heiðmörk fyrir
fáeinum vikum hefur verið
framlengt til 21. júlí. Maðurinnn
er vistaður á Sogni og er niður-
stöðu geðrannsóknar beðið.
Maðurinn kom með lík kon-
unnar í skotti bifreiðar sinnar á
Landspítalann í Fossvogi 12. maí
síðasliðinn. - jss
Gæsluvarðhald framlengt:
Bíða niðurstöðu
geðrannsóknar
FJÁRMÁL Íbúar Reykjavíkur borga mörg hundruð
milljónir í auknar álögur á næsta ári ef Reykjavík-
urborg lækkar ekki fasteignaskattinn áður en fast-
eignamatið hækkar. Stöð 2 sagði frá í gær.
Fasteignamat skráðra íbúða á höfuðborgarsvæð-
inu hækkar að meðaltali um 8,9 prósent á næsta
ári en í Reykjavík er hækkunin mismunandi á milli
hverfa.
Stöð 2 tók dæmi af íbúð í miðborg Reykjavíkur,
en þar hækkaði fasteignamatið að meðaltali um 14
prósent. Þannig verður fasteignamat íbúðar sem
nú er 21.8 milljónir króna orðið 24.9 á næsta ári.
Það þýðir að fasteignaskatturinn sem áður var 49
þúsund krónur á ári verður 56 þúsund krónur á ári.
Í Grafarvogi hækkaði fasteignamatið að meðal-
tali um tæplega átta prósent. Fasteignamat tveggja
hæða raðhúss í Foldahverfi sem nú er 38 milljón-
ir hækkar í rúma 41 milljón. Fasteignaskatturinn
eykst þar um rúmar sjö þúsund krónur.
Reykjavíkurborg hefur þó í gegnum tíðina reynt
að lækka fasteignaskattinn þegar fasteignamat
hækkar í þeim tilgangi að hækka ekki álögur, í
krónum talið, á íbúa borgarinnar. Í samtali við
fréttastofu sagði Dagur B. Eggertsson, formaður
borgarráðs, enga ákvörðun hafa verið tekna um
lækkanir. - jmi, shá
Að óbreyttu aukast álögur á borgarbúa mikið vegna hækkaðs fasteignamats:
Tugir þúsunda á eina fasteign
VESTURBÆR REYKJAVÍKUR Fasteignamatið hækkar mest í
grónum hverfum borgarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MENNTAMÁL Framkvæmdir geta
hafist í haust við uppbyggingu
stúdentagarða í Vatnsmýrinni.
Ríkisstjórnin samþykkti í gær
fjárheimildir fyrir Íbúðalánasjóð
sem tryggja fjármögnun fram-
kvæmdanna. Heildarkostnaður
er áætlaður um fjórir milljarðar
króna.
Félagsstofnun stúdenta hefur
síðustu ár undirbúið þessar fram-
kvæmdir. Áformað er að reisa
byggingu með 280 íbúðum fyrir
um 320 námsmenn en að jafnaði
eru um 350–550 manns á biðlista
eftir leiguíbúðum.
Framkvæmdir ættu að geta
hafist í haust og er áætlað að þær
skapi um 300 ársverk. Gert er
ráð fyrir að fyrri áfanga verksins
ljúki í 2013 en að framkvæmdun-
um í heild ljúki árið 2014. - shá
4 milljarða framkvæmd:
Grænt ljós á
stúdentagarða
Peter Falk látinn
Leikarinn Peter Falk er látinn, 83 ára
að aldri. Falk var þekktastur fyrir að
leika lögreglumanninn Columbo
í fjölda sjónvarpsþátta. Talsmaður
fjölskyldu Falk sagði leikarann, sem
þjáðist af Alzheimer, hafa hlotið
friðsælan dauðdaga á heimili sínu.
Falk skilur eftir sig eiginkonu og tvær
dætur af fyrra hjónabandi.
BANDARÍKIN
SPURNING DAGSINS
16´´ BRAKANDI PIZZATILBOÐ FRÁ PIZZAHÖLLINNI
Tilboðinu fylgir 2 l kók, stór
pakki af brauðstöngum og
einstök brauðstangasósa sem
er leyniuppskrift frá USA.
www.pizzahollin.is
100 viðskiptavini þarf til að virkja tilboðið
HÓPKAUP.IS Í DAG
í krafti fjöldans
hópkaup.is
1.790 kr. GILDIR Í 48 TÍMA
3.690 kr.
Verð
51%
Afsláttur
1.900 kr.
Afsláttur í kr.