Fréttablaðið - 25.06.2011, Blaðsíða 46
25. júní 2011 LAUGARDAGUR10
Kolabrautin, veitingastaður á
fjórðu hæð í Hörpu tónlistarhúsi
óskar eftir að ráða
framreiðslumeistara, faglærðan
þjón og aðstoðarmann í eldhús.
Um er að ræða störf á
nútímalegum stað í hópi
fagmanna í frábæru
starfsumhverfi.
Umsóknir sendist á starf@kolabrautin.is
Upplýsingar veitir einnig
Leifur Kolbeinsson í síma 898 1046.
Dvalar- og hjúkrunarheimilið
Silfurtún
Hjúkrunarforstjóri
Starf hjúkrunarforstjóra Dvalar- og hjúkrunar-
heimilisins Silfurtúns í Búðardal er laust til
umsóknar.
Umsækjendur skulu hafa háskólapróf í hjúkrunar-
fræði, nám og/eða reynsla í stjórnun er kostur.
Ráðið verður í starfið frá 1. október 2011.
Umsóknarfrestur er til og með 4. júlí nk.
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á netfangið
sveitarstjori@dalir.is eða á skrifstofu Dalabyggðar,
Miðbraut 11, 370 Búðardal
Nánari upplýsingar veitir Sveinn Pálsson sveitar-
stjóri í síma 430 4700
Við leitum að forstöðumanni olíudreifingar í krefjandi, áhugavert og gefandi starf.
Forstöðumaður olíudrefingar ber ábyrgð á allri olíudreifingu félagsins á Íslandi
og er næsti yfirmaður framkvæmdastjóra rekstrarsviðs. Leitað er að öflugum og
jákvæðum einstaklingi sem sýnt getur frumkvæði og drifkraft, er talnaglöggur og
hefur reynslu í mannahaldi auk þess að vera hæfur í mannlegum samskiptum.
Starfssvið:
• Fjárhagsleg og rekstrarleg ábyrgð á allri olíu-
dreifingu félagsins á landi
• Dagleg umsjón með dreifingu og stjórnun starfs-
fólks
• Mótun á stefnu og sýn olíudreifingarinnar
Menntun og hæfniskröfur:
• Háskólagráða í verk-, tækni- eða viðskiptafræði
• Frumkvæði og samskiptahæfileikar
• Góð mannleg samskipti
• Stjórnunarhæfileikar, skipulagshæfni og öguð
vinnubrögð
Nánari upplýsingar veitir Mannauðssvið og umsóknum skal skilað inn til starf@skeljungur.is merkt
Forstöðumaður olíudreifingar. Umsóknarfrestur er til 5. júlí.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
7
2
4
4
Forstöðumaður olíudreifingar
Skeljungs
Verkfnisstjóri landsskipulags
Hjá Skipulagsstofnun er laus til umsóknar ný staða
verkefnisstjóra landsskipulags.
Verkefnisstjóri hefur umsjón með gerð tillögu að landsskipulags-
stefnu skv. nýrri skipulagsreglugerð.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf og framhaldsmenntun í skipulagsfræði eða öðrum
greinum sem tengjast stefnumótun, áætlanagerð og samráði.
• Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð. Hæfni til að vinna sjálfstætt
og með öðrum.
• Frumkvæði og hæfni til að leiða vinnu við fjölbreytt verkefni í
samráði við hagsmunaaðila.
• Þekking á landfræðilegum upplýsingakerfum.
Æskilegt er að nýr starfsmaður geti hafið störf 1. september 2011.
Laun eru skv. gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutað-
eigandi stéttarfélags.
Umsóknir skal senda til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150
Reykjavík eða á skipulagsstofnun@skipulagsstofnun.is
Umsóknarfrestur er til og með 18. júlí 2011.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Stefán Thors í síma 595 4100 eða
stefan@skipulagsstofnun.is.
Framhaldsskólakennari
í stærðfræði
Menntaskólinn í Kópavogi óskar eftir að ráða
framhaldsskólakennara (sbr. lög nr. 87/2008) í
stærðfræði.
Umsækjandi þarf að hafa háskólapróf
í stærðfræði eða skyldum greinum og
kennsluréttindi á framhaldsskólastigi.
Umsækjandi þarf að geta kennt bæði
byrjendum og lengra komnum. Launakjör fara
eftir kjarasamningi framhaldsskólakennara og
stofnanasamningi MK.
Umsóknarfrestur er til 30. júní. Ekki þarf að sækja
um á sérstöku umsóknareyðublaði en umsókn
þarf að fylgja afrit af prófskírteini auk yfirlits um
fyrri störf. Umsókn skal senda til skólameistara
(margret.fridriksdottir@mk.is).
Upplýsingar um skólann eru á heimasíðu
www.mk.is. Frekari upplýsingar um starfið
veita skólameistari, Margrét Friðriksdóttir og
aðstoðarskólameistari Helgi Kristjánsson í síma
594 4000.
Skólameistari