Fréttablaðið - 25.06.2011, Blaðsíða 44
25. júní 2011 LAUGARDAGUR8
Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar
Sálfræðingar
Stöður sálfræðinga við Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar eru
lausar til umsóknar. Um er að ræða hlutastörf til eins árs fyrir
skólaárið 2011-2012 með möguleika á framlengingu.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Löggiltur sálfræðingur
• Frumkvæði og samstarfshæfni
• Góðir skipulagshæfileikar
• Viðkomandi hafi áhuga á skólastarfi og reynslu af sálfræði
störfum í leik- og grunnskóla
• Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og í teymi við
aðra sérfræðinga
• Þekking og reynsla af PMT-FORELDRAFÆRNI mikilvæg
Allar upplýsingar um störfin veitir Eiríkur Þorvarðarson, yfir-
sálfræðingur í s. 585 5800 netfang eirikurth@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til 30. júní 201.
Laun og kjör fara eftir samningum stéttarfélags sálfræðinga
við launanefnd sveitarfélaga.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar jafnt
sem konur hvattir til að sækja um starfið.
Fræðslustjórinn í Hafnarfirði
Óskum eftir að ráða rafeindavirkja eða tæknimenntaðan aðila
í vinnu við að þjónusta siglingar- og fiskileitartæki og annan
tengdan búnað.
Brúin ehf starfar í þjónustu við sjávarútveg og er með starfstöð á
Akureyri. Óskað er eftir vönum aðila sem getur unnið sjálfstætt og
í teymi með öðrum.
Nánari upplýsingar veitir Finnur í síma 8945572.
Umsóknir skulu sendar á netfangið finnur@bruin.is eða í
pósti á: Brúin ehf. Baldursnesi 4, 603 Akureyri.
RAFEINDAVIRKI
www.kopavogur.is
KÓPAVOGSBÆR
Álfhólsskóli auglýsir lausar stöður
í sérdeild fyrir einhverfa.
Álfhólsskóli óskar eftir að ráða þroskaþjálfa,
sérkennara og stuðningsfulltrúa í sérdeild fyrir
einhverfa. Ráðningartími er frá 1. ágúst 2011.
• Þroskaþjálfari – 100% starfshlutfall
• Sérkennari – 100% starfshlutfall
Krafa er gerð um þroskaþjálfamenntun eða
sérkennsluréttindi, reynslu af kennslu barna með
einhverfu og þekkingu á kennslufræði TEACCH
• Stuðningsfulltrúi – 50-100% starfsflutfall
Krafa er gerð um góða almenna menntun, sjálfstæði
í vinnubrögðum, hæfni í mannlegum samskiptum,
þolinmæði og umburðarlyndi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar
sveitarfélaga og KÍ eða Starfsmannafélags
Kópavogsbæjar.
Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá grunnskólum
Kópavogs þurfa að skila sakavottorði.
Umsóknarfrestur er til og með 3. júlí 2011.
Upplýsingar gefur Sigrún Bjarnadóttir skólastjóri í
síma 570-4150 og 863-6811
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um
störfin.
Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt á
vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is
Frá Álfhólsskóla
Sanco Shipping AS is an offshore shipping company
located in a new and modern office building in
Gjerdsvika on the west coast of Norway.
The operations are international with ships operating
world wide. The company has the management for 5
sailing ships, and a seismic ship under construction is
to be delivered in 2013.
As our QHSE Manager is leaving us, we are
searching for a qualified person to replace him.
QHSE Manager
Central tasks and area of responsibility:
• Maintenance and development of the company’s
control system for quality, health, safety and
environment.
• Planning, coordinating and implementing internal
and external revisions.
• Identify and monitor changes in requirements
and regulations.
• Follow up injuries, incidents and situations and, if
necessary, carry out internal investigation.
• Report internally, and to clients and authorities.
• Other responsibilities naturally sorted under
this position.
Qualifications:
• Experience from corresponding position.
• Relevant HMS-competence.
• Good knowledge of English, both written and
spoken, is highly required.
• Capacity for working structured and independent.
• Take an interest in and knowledge of using PC.
We can offer competitive conditions in an exciting
and attractive place of employment in a sometimes
hectic environment.
Questions can be directed to:
Ivar Slettevoll, +004770026391 / +00479570603
or e-mail ivar@sanco.no.
Written application with CV to be delivered
before June 30th, 2011.
*****************************************************
Sanco Shipping AS
Industriparken, N-6083 Gjerdsvika, Norway
Telefon: 70026390. www.sanco.no
Sérfræðingur
á skattasviði
Við erum að stækka hópinn og leitum að metnaðarfullum
og framsýnum einstaklingi á skatta- og lögfræðisvið.
Á sviðinu starfa um 20 sérfræðingar sem sinna fjölbreyttri
skattaráðgjöf og lögfræðiþjónustu fyrir viðskiptavini
okkar. Viðkomandi þarf að hafa frumkvæði, sjálfstæði í
vinnubrögðum og góða samstarfshæfileika.
Menntunar- og hæfniskröfur
Umsókn ásamt ferilskrá sendist með
tölvupósti til Andrésar Guðmundssonar,
starfsmannastjóra, á netfangið
agudmundsson@kpmg.is. Nánari
upplýsingar veitir Andrés í síma 545 6077.
Umsóknarfrestur er til 8. júlí nk. og fyllsta
trúnaðar er gætt varðandi allar umsóknir,
fyrirspurnir og persónulegar upplýsingar.
kpmg.is
Félagsþjónusta Sandgerðisbæjar,
Garðs og Voga
Félagsþjónusta Sandgerðisbæjar, Garðs og Voga
óskar eftir að ráða forstöðumann fyrir
skammtímavistunina Heiðarholt í Sveitarfélaginu
Garði.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
Stjórnun og starfsmannahald
Umsjón með faglegu starfi
Þátttaka í þróun þjónustu sveitarfélaganna
á sviði málefna fatlaðs fólks
Leitað er að einstaklingi sem hefur:
menntun á sviði félags-, mennta- eða
heilbrigðisvísinda
reynslu á sviði málefna fatlaðra
skipulagshæfileika, frumkvæði og leikni í
mannlegum samskiptum.
Laun eru skv. kjarasamningi Launanefndar
sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttafélag.
Umsóknarfrestur er til og með 10. júlí 2011
Upplýsingar veitir R. Helga Guðbrandsdóttir
ráðgjafaþroskaþjálfi, rhelga@sandgerdi.is í síma 420
7555.
Atvinnuumsókn ásamt ferilskrá sendist á netfangið
kristin@sandgerdi.is eða á heimilisfangið Varðan,
Miðnestorgi 3, 245 Sandgerði.