Fréttablaðið - 25.06.2011, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 25.06.2011, Blaðsíða 10
25. júní 2011 LAUGARDAGUR10 TÆKNI Allar bækur, á hvaða formi sem þær eru, jafnt prent- aðar sem rafrænar, eiga að bera lægsta mögulega virðisauka- skatt sem völ er á. Þetta segir Fergal Tobin, formaður Samtaka evrópskra bókaútgefenda, hags- munasamtaka forleggjara innan aðildarríkja Evrópusambandsins og landa sem aðild eiga að Evr- ópska efnahagssvæðinu, EES. Tobin er staddur hér á landi um helgina í tengslum við sumarfund samtakanna. Meginviðfangsefni fundarins er tillögur sem aðild- arfélögin í ýmsum löndum ESB leggja til um lækkun á virðis- aukaskatti á bækur. Virðisaukaskattur á bækur er mishár innan ESB-ríkjanna. Alla jafna eru þær undanþegn- ar almennum virðisaukaskatti eins og hér. Í Noregi, Bret- landi, Írlandi og Póllandi er eng- inn virðisaukaskattur á bókum. Undantekningin er Danmörk og Búlgaría, en þar er hæsta álagn- ing sett á prentaðar bækur. Öðru máli gegnir hins vegar um raf- rænar bækur; þær bera hæstu álagningu hins opinbera í öllum aðildarríkjum ESB. Ástæðan fyrir því er sú að rafbækur eru flokkaðar með tölvuvörum. Tobin segir það mjög undarlegt og í raun byggjast á misskilningi á eðli bóka: „Bækur eru ólíkar öðrum vörum; þær miðla upp- lýsingum, uppfræða lesendur um allt á milli himins og jarðar, svo sem viðskipti og stjórnmál, og nýtast sem kennslutæki. Inni- haldið er ætíð það sama, óháð því á hvaða formi bækur eru gefnar út,“ segir hann. Viðræður hafa staðið yfir við ráðamenn hjá ESB um málið og eru þær komnar skammt á veg. Hann segir þetta mikilvægt mál nú, ekki síst þar sem kreppan hafi dregið úr kaupmætti fólks í Evrópu og bóksala dregist saman. Eitt af verkefnum Tobins á fundinum hér verður að ræða við fulltrúa bókaútgefenda frá Búlg- aríu. Hagkerfi landsins er mjög óburðugt, fátækt mikil og bók- sala dræm. „Það kom mér á óvart að í sumum hlutum landsins er aðeins helmingur íbúanna læs. Ég get ekki sagt að það séu bein tengsl á milli þess og álagningar á bækur. En við munum ræða við stjórn- völd í Búlgaríu og leggja til að skatturinn verði lækkaður,“ segir Tobin. jonab@frettabladid.is Bækur eru ólíkar öðrum vörum; þær miðla upplýsingum, upp- fræða lesendur á milli himins og jarðar... FERGAL TOBIN FORMAÐUR EVRÓPSKRA BÓKAÚTGEF- ENDA Lausnir í lánamálum 110% leiðin stendur þér til boða til 1. júlí - Kynntu þér málið sem fyrst Hafðu samband við okkur í síma 444 7000, á arionbanki.is eða komdu í næsta útibú. Við tökum vel á móti þér. Skattlagning á rafbókum er byggð á misskilningi Bækur eru almennt undanþegnar virðisaukaskatti innan Evrópusambandsins. Rafbækur bera hins vegar fulla skatta. Fergal Tobin segir það óskiljanlegt. Innihald bóka sé það sama óháð útgáfuforminu. „Það verður forvitnilegt að fylgjast með þróun í sölu rafbóka á næstu tveimur árum. Sala á lestölvum, svo sem Kindle og öðrum tækjum, hefur verið mjög snörp í Bandaríkjunum og Bretlandi. Þegar salan verður stöðug kemur í ljós hvernig rafbókum reiðir af,“ segir Fergal Tobin og bætir við að vegur rafbóka hafi vaxið mjög í Evrópu, ekki síst í Bretlandi, Frakklandi og Þýskalandi. Hann bendir á að vísbendingar séu um að sala á rafbókum eigi margt sameiginlegt með sölu á prentuðum bókum. „Við vitum að ákveðnir bókmenntageirar eru vinsælli en aðrir, svo sem spennusögur frekar en bækur um sagnfræði og stjórnmál.“ Spennusögur alltaf vinsælastar FORMAÐURINN Í SÓL OG SÆLU Lítið læsi í Búlgaríu kom Fergal Tobin, formanni Samtaka evrópskra bókaútgefenda, á óvart. Hann telur mikilvægt að lækka álögur hins opinbera á bækur óháð útgáfuformi þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HOTT HOTT Á HESTI Þessi vígalegi knapi skemmti sér vel á Jónsmessu- hátíð sem haldin var á spænsku eyjunni Menorca í Miðjarðarhafinu. NORDICPHOTOS/AFP VINNUMARKAÐUR Öll ungmenni sem sóttu um sumarstarf hjá Kópavogsbæ fengu starfsboð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bænum. Alls 1.100 ungmenni, sautján ára og eldri, fengu starfsboð en rúmlega 700 þáðu það. Þá starfa 850 unglingar á aldrinum 14 til 16 ára hjá Vinnuskóla Kópavogs. Flest starfa ungmennin við snyrtingu og fegrun bæjarins auk nokkurs hluta sem vinnur við skógrækt og uppgræðslu. Guðríð- ur Arnardóttir, formaður bæjar- ráðs, fagnar því að tekist hafi að skaffa þessi störf en mun fleiri sóttu um en ráðgert var. - mþl Sumarstörf ungmenna: Allir fengu starf í Kópavogi KÓPAVOGUR Það verður nóg af ungmennum á stjái í Kópavogi í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN VIÐSKIPTI „Menn kunna að meta það úti að við héldum áfram í hruninu. Þetta hefur ekki verið auðveldur tími,“ segir Úlfar Stein- dórsson, forstjóri Toyota-umboðs- ins á Íslandi. Hann og Kristján Þorbergsson, framkvæmdastjóri hjá Toyota, hafa keypt 60 prósenta hlut í umboðinu af Landsbankanum. Útgerðarmaðurinn Magnús Kristinsson keypti umboðið árið 2005 fyrir sjö milljarða króna. Landsbankinn tók félagið yfir í kjölfar bankahrunsins og hefur fjárhagsleg endurskipulagn- ing staðið yfir. Umboðið tap- aði 450 milljón- um árið 2009. Á sama tíma námu skuld- ir 6,7 millj- örðum króna og var eigið féð neikvætt um rúmar 640 milljónir. Skuld- ir voru að mestu í erlendri mynt og átti að greiða 641 milljón króna á ári til 2014. Við fjárhagslega endurskipu- lagningu var hluti skulda afskrif- aður, öðrum breytt í hlutafé og afgangurinn skilinn eftir. Úlfar vill hvorki segja hversu háar skuldir hvíla nú á fyrirtækinu né hversu hátt kaupverðið er. Toyota Motor Europe, dreifing- araðili Toyota í Evrópu, þurfti að samþykkja kaupendur og hefur um skeið legið fyrir að Úlfar væri líklegur kaupandi. Hann var starf- andi stjórnarformaður umboðsins frá 1989 til 1992, starfandi stjórn- arformaður árið 2004 og hefur verið forstjóri frá byrjun árs 2005. - jab Úlfar Steindórsson kaupir sextíu prósenta hlut í Toyota á Íslandi við annan mann: Héldu áfram þrátt fyrir kreppu ÚLFAR STEINDÓRSSON SKIPULAGSMÁL Reykjavíkurborg hefur ákveðið að fresta breyt- ingum á sorphirðureglum fram á haust. Þá verður sérstakt gjald lagt á þá íbúa sem hafa sorptunn- ur sínar lengra en fimmtán metra frá sorphirðubíl. Umhverfis- og samgönguráð ákvað í desember að innleiða þessar nýju reglur Áttu þær upp- haflega að taka gildi í maí en hefur nú verið frestað þar til í ágúst, vegna óvissu um gjald- töku, sem upphaflega átti að vera 4.800 krónur árlega á ílát. - sv Sorphirðubreytingum frestað: Ákvörðun tekin eftir sumarið Salmonella í sjávarfangi Matvælastofnun hafa borist upp- lýsingar um að salmonella hafi greinst í blönduðu sjávarfangi, Seafood Mix Marinaramix og Sjávarkokteil, sem flutt var til Íslands. Blandan er frá Víetnam og inniheldur kolkrabba, kræklinga og rækjur. Búið er að inn- kalla vöruna af markaði hér en þeir sem hafa keypt þessa vöru eru varaðir við að neyta hennar. Hún mun þó örugg til neyslu nái kjarnhiti 72 gráðum við suðu eða steikingu. HEILBRIGÐISMÁL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.